Feykir - 12.06.2008, Page 4
4 Feykir 23/2008
Síðustu geiturnar
Dýr í útrýmingarhættu
í kjölfar frétta og umræðu um
ísbjarnadráp og dýr í
útrýmingarhættu er ágætt að
benda á, að hér á landi eru íslensk
dýr í útrýmingarhættu.
íslenski geitastofninn á í vök að
verjast og á tilveru sina, áhugafólki
um viðhaldi stofnsins, allt að þakka.
Stofnstærðin hefur sveiflast á milli
u.þ.b. eitthundrað til fjögurhundruð
fullorðinna dýra. Af því hann telur
undir eitt þúsund einstaklinga er hann
talinn í bráðri útrýmingarhættu. Á
Háafelli í Hvítársíðu er kona að nafni
Jóhanna Þorvaldsdóttir sem berst
íyrir því að útvega fjármagn til að setja
á stofh geitasetur. Tilgangurinn er að
bjarga íslensku geitinni frá algerri
útrýmingu en Jóhanna bjargaði
einmitt síðustu kollóttu geitunum
sem eftir voru á landinu og telja þær
núna um fjörtíu talsins. í Skagafirði
teljast rúmlega sjötíu geitur en í
Húnavatnssýslum innan við tuttugu.
Væri ekld athugandi að leggja f
væntanlegt geitasetur, þá upphæð
sem hugsanlega hefði farið í það að
fanga og flytja hvítabjörninn til síns
heima?
Ólafur Þ. Hallgrímsson skrifar
Enn mun reimt á Kili
Dagana 27. apnl til 18.
maf stóð yfir í Safnahúsinu
á Sauðárkróki sýning
á málverkum eftir
listamanninn Baska, þar
sem rakin er feigðarför
Reynistaðarbræðra og
fylgdarmanna þeirra í
vetrarbyrjun 1780.
Sýningin bar heitið: Enn mun
reimt á Kili.
Baski heitir raunar fullu nafni
Bjarni Skúli Ketilsson, Akurnesingur
að ætt, en hefur verið búsettur í
Hollandi frá 1996. Baski stundaði
nám í listmálun og teikningu í
Hollandi og lauk
þaðan BA - prófi árið
1998. Hann hefur
haldið einkasýningar
víðsvegar í Evrópu
og tekið þátt í
fjölda samsýninga
og hlotið ýmsar
viðurkenningar.
Á sýningunni í
Safnahúsinu voru 26
verk, allt olíumálverk
á striga utan tvær
blýantsmyndir. í dagskrá segir
listamaðurinn, að hugmyndin að
því að tjá sögu Reynistaðarbræðra
í málverki hafi kviknað fyrir fimm
árum. Hann hafi heyrt söguna og
heillast af dulúð hennar, myndirnar
birtust í huganum og komust á
strigann.
í myndunum er örlagasaga
Reynistaðarbræðra og félaga þeirra
rakin í eins konar tímaröð, raunar
allt frá því hún hefst í hlaðvarpanum
heima á Reynistað og þar til henni
lýkurviðBeinhóláKili.þarsemþeirra
allra beið „beiskur aldurtili“. Verður
ekki annað sagt en listamanninum
hafi tekist ótrúlega vel að túlka þessa
feigðarför í verkum sínum og þá
dulúð og óhugnað, sem jafnan hefur
fylgt henni í vitund þjóðarinnar.
Myndirnar eru vel gerðar og litagleði
mikil. Þær tala sínu máli og segja
meira en mörg orð. Þar er vissulega
sjón sögu ríkari.
Iveglegrisýn-ingarskrá,semfylgir,
er örlagasaga Reynistaðarmanna
rakin eftir bestu heimildum ásamt
myndum af nokkrum verkanna á
sýningunni, sem gefa skránni aukið
gildi. Sagan hefst i rauninni með
myndinni Búist til brottferðar frá
Reynistað, þar sem Ragnheiður,
húsfreyja, sést kveðja Bjarna son
sinn, sem ríður bleikum stóðhesti.
I myndinni Veisla í Tungufelli,
þar sem Staðarmenn gista síðast
í byggð og fá góðan beina, spila
saman ljós og skuggar. Kertaljósið
varpar sérkennilegan bjarma á
andlit mannanna, sem sitja við
veisluborð. Myndin
minnir að vissu
leiti á hina heilögu
kvöldmáltíð. Á
risastórri mynd, sem
ber heitið Lagt á Kjöl,
nær listamaðurinn
að túlka aðstæður á
hálendinu. Komið er
fram í vetrarbyrjun,
lauf öll sölnuð og
kuldaleg ský í norðri
yfir hálendinu, sem
bráðlega breytast í ógnvekjandi
óveðursský, sem listamaðurinn
túlkar síðan í næstu mynd, sem
nefnist Óveður í aðsigi.
Myndin Veðraveggur sýnir
Staðarmenn komna að Beinhól og
reisa þar tjald sitt í bylnum. Hestar
híma í höm og fannbarðar kindur allt
um kring.
Þar með voru örlög þeirra
ráðin. Hið niðurfallna tjald sýnir
listamaðurinn síðan á annarri
mynd, umlukið dauðum kindum og
hrossum. Tvær myndir á sýningunni
skera sig nokkuð úr, hvað form varðar.
Það eru myndirnar í klettaskoru,
er sýnir lík Reynistaðarbræðra, og
Jón Austmann hvetur Rauð, sem
byggðar eru upp af ferningslaga
formum í kuldalegum bláum og
hvítum lit. Á mynd sem nefnist
„Takið“, sést Jón Austmann grípa
til þess örþrifaráðs að hengja hest
sinn, sem hann hefur misst ofan í
vök í einni af hvíslum Seyðisár, svo
að hann noti síðustu kraftana til að
ná sér upp úr, en þar sem það ekki
tekst, sker hann skepnuna á háls og
stingur höfðinu undir bóg. Kuldaleg
er einnig myndin af gráu hryssunni
í Gránunesi, sem þar finnst sumarið
á eftir illa haldin með reiðing undir
kvið.
Angist og kvíða móðurinnar,
Ragnheiðar, heima á Reynistað,
túlkar listamaðurinn einkar vel að
mínum dómi í myndinni Biðin.
Síðasta málverkið á sýningunni,
Bræðraborgin; sýnir klettagjótuna
skammt vestan við hinn
gamla Kjalveg, þar sem bein
Reynistaðarbræðra fundust árið
1846,66 árum eftir að þeir urðu úti á
Kili. Um hinn óttalega leyndardóm,
hvernig stóð á tilvist beinanna
þar, erum við að sjálfsögðu engu
nær. Það er og verður leyndarmál
öræfanna.
Ýmislegt var gert til að auka
á áhrifamátt sýningarinnar í
Safnahúsinu. í horni sýningarsalarins
var komið fyrir eftirlíkingu af tjaldi
Reynistaðarmanna, sem bærðist
fyrir vindgjósti, en hríðarveggur í
bakgrunni. Jafnframt mátti heyra
söguna lesna. Einnig voru fest
upp á vegg ljósrit úr þingbókum
Hegranesþings, þar sem greinir
frá þinghöldum í „líkamáli
Staðarmanna“, sem stóðu yfir 1781
- 83, án nokkurrar niðurstöðu.
Örlög Staðarmanna hafa verið
þjóðinni umhugsunarefni í meira
en tvær aldir, og svo virðist sem
hin gamla saga sé ótrúlega lifandi í
hugum margra landsmanna jafnvel
enn þann dag í dag, ekki síst hér í
Skagafirði. Það var því einkar vel
til fallið að setja sýninguna upp hér.
Sýningin í Safnahúsinu með sínu
áhrifamiklu myndverki skilur eftir
í huganum sterka upplifun hinnar
löngu liðnu harmsögu á hálendi
íslands.
Hafi listamaðurinn Baski heila
þökk fyrir verk sitt, svo og allir þeir
aðilar, er hlut áttu að máli, að þessi
sýning yrði að veruleika.
Ólafur Þ. Hallgrímsson
Þjónustuauglýsingar
Pionustuaui
IIIIIII
IIII1411
Bólstrun
Gunnars
Leifssonar
Lækjargötu 3 530 Hvammstanga
Sími: 451 2367 / 865 2103 Netfang: gl@simnet.is
4'M
Vredenstein-dekkin
færðu hjá okkur
mín f
m f
Wm Bílauerkstæði
við FREYJUGÖTU SAUÐÁRKRÓKI (r-455 45
1/4»
SÉRSMÍÐIÁ ELDHÚSUM,
SKÁPUM, INNIHURDUM,
0G ÖDRUM SÉRHÖNNUÐUM TRéSmiðjan
INNRÉTTINGUM €€€©
BORGARMÝR11 550 SAUÐÁRKRÓKI SlMI 453 5170 tborg@tborg.is
Öll almenn jarðvinna
Flutningar og kranavinna
Allt verk og flutningar ehf.
HVAMMSTANGA ©897 6597/895 2052
ÞJONU5TUAUGLYSING I FEYKI
MARG BORGARSIG!
Hafðu samband
© 455 7171
Þú hefur alltaf góða
ástæðu til að heimsækja
Norðurland vestra!
Á.„
DOFINNI
14.JÚNI
Opna kvennamótið í golfi, Golfklúbbur
Sauðárkróks. Sauðárkróki
14. JÚN(
Ásta Pálsdóttir, listakona, opnar
myndlistarsýningu ÍSafnahúsi Skagfirðinga
kl. 15
15. JÚNÍ
Messa í Hóladómkirkju kl. 11
15.JÚNÍ
Tónleikar á Hólum kl. 14.
Sextettinn “The Hoodangers” frá
Melborne Ástralíu leikur létta, taktfasta
og aðgengilegajasstónlist.
15.JÚNÍ
Lýtingsstaðir, Fjölskyldudagur íhestaleigunni.
17. JÚNÍ
Þjóðhátíðardagskrá á Sauðárkróki.
17. JÚNÍ
Þjóðhátíðarkaffi á Hótel Varmahlíð