Feykir - 12.06.2008, Page 6
6 Feykir 23/2008
reyndar líka einn af hans mestu
kostum, svarar Magnea hóli
Björns. -Hins vegar get ég
eignað mér það að hafa hvatt
hann áfram til góðra verka og
stutt hann í því að fara að vinna
eingöngu að hrossaræktun því
efniviðurinn var til staðar og
Varmalækjarhrossin eru þekkt
um allan heim, bætir hún við.
En voruð þið ekki álitin
klikkuð þegar þið fóruð út í
þessar svakalegu byggingu?
-Jú biddu fyrir þér, svara þau
bæði og hlæja. -Fólk sagði að
nú ættum við ekki langt eftir
eða hvað við værum að fara í
svona framkvæmd orðin þetta
fullorðin. Það var ekki fyrr en
Sigurður á Ökrum, móður-
bróðir Bjöms, kom til okkar í
árlega heimsókn 23. desember
að við fengum hvatningu. Þá
vorum við búin með kjallarann
og aðeins byrjuð á jarðvegs-
vinnu. Hann kom hingað og
sagðist vera komin til þess að
kanna þessa framkvæmd og
spurði Björn hvað þetta kostaði,
rifjar Magnea upp. -Ég nefndi
tölu sem mér fannst nokkuð há
og svaraði Sigurður því til að
þetta væri ekkert í dag og þið
svona ung. Hrossaræktin gengi
vel svo þetta yrði nú ekki mikið
mál. Oft hafði ég verið andvaka
af áhyggjum yfir hvað við
værum nú komin út í en þarna
urðum við andvaka af gleði yfir
þessum góðu óskum Sigurðar
og þeirri framsýni sem hann
hefúr, orðin 81 árs gamall,
bætir Björn við.
Hrímnir var
tímamótahross
Hrossin frá Varmalæk hafa
getið sér gott orð og gaman að
segja frá því að helgin var
hátíðarhelgi þar á bæ, á
föstudag vígja þau höllina og á
laugardag komast tvo hross úr
þeirra ræktun í gegnum úrtöku
fyrir Landsmót hestamanna.
Stóðhestarnir og gæðingarnir
Tindur og Punktur báðir 9
vetra og frumtamdir af Birni
sjálfúm. Tindur er í A flokki
gæðinga og hefur hann hlotið
hæstu einkunn í hæfileikum
sem gefin hefúr verið stóðhesti
á þessu ári eða 8,95. Dökkjarpur
á lit og segir Björn að afkvæmi
undan honum séu að komast á
tamningaaldurinn og lofi góðu.
Enda sé Tindur með gott gang-
og geðslag.
Hinn er Punktur sem Björn
seldi þriggja vetra til Ágeirs
Mikaelssonar, fjórgangshestur
fallegur og fasmikill. -Kengála
frá Varmalæk er móðir Punkts
/ heimsokn hjá Birni og Magneu á Varmalæk
Höll til heiðurs Hrímni
Hnmnishöllin var formlega
vígö á Varmalæk sl.
föstudag. Höllin er rúmlega
1000 fermetrar að stærð og
öll hin glæsilegasta. Stefnt
er að því að hún verði með
öllu fullbúin á 55 ára afmæli
Bjöms bónda þann 10.
október næstkomandi.
Feykir hitti þau Björn og
Magneu, fékk söguna á bak
við höllina og ekki síst
ástina sem gerði hana að
veruleika.
Það var þrælskipulögð til-
viljun sem varð til þess að þau
Björn og Magnea felldu hugi
saman á dansleik kvöldið fyrir
Laufskálarétt árið 2000. -Við
voru leidd saman þrátt fyrir að
hafa hvorugt vitað af því að það
stæði til, segir Magnea og þau
hlæja bæði. -Það var þannig að
ég var búinn að vera einn hér í
sjö ár og var eitthvað farin að
þreifa fyrir mér í þá átt að fá
hingað til mín konu, segir
Björn og tekur sér umhugs-
unarþögn áður en hann heldur
áfram. -Mamma heitin var hér
með verslun og eitt sinn kom
Agnar á Miklabæ og var að
versla við hana, ég bauð honum
í kaffí sem endaði með því að
við fengum okkur talsvert
mikið brennivín og eitthvað
hef ég trúlega farið að væla um
kvenmannsleysi sem verður til
þess að Agnar hringir í Jón
Guðna mág Magneu og spyr
hann hvernig það sé með hana
Magneu, það vanti svo konu á
Varmalæk. Síðan gerist ekkert
og ég gleymi þessu bara, bætir
Björn við. Agnar og Jón Guðna
höfðu hins vegar engu gleymt
og ráðagerð þeirra hélt áfram
allt til haustsins 2000 er Magnea
var dregin norður í Laufskála-
rétt. -Við vorum með gistingu
í Varmahlíðarskóla og ég bað
Jón Guðna mág minn að passa
upp á mig þetta kvöld þvi ég
nennti ekki neinu karlastússi,
ætlaði sko alls ekld að fara að
ná mér í annan karl. Jón Guðni
tók þessu svo alvarlega að
enginn mátti setjast við hlið
mér því hann sagði að það sæti
væri upptekið, sem og það var
því þegar Björn kom í salinn
var hann kallaður beina leið í
sætið við hlið mér, segir
Magnea og lítur nú á Björn
með glampa í augun; -Og þá
gerðist eitthvað, við fórum að
dansa og örlög okkar voru
ráðin, ég flutti síðan hingað
norður vorið 2001.
Sigurður á Ökrum
fyilti okkur
bjartsýni
Björn vill meina að tilkoma
Magneu á Varmalæk hafi breytt
miklu í sínu lífi og segir hann
að hún hafi unnið meira að því
að koma höllinni upp en hann
sjálfur. -Ekki það að þetta er
eitthvað sem mig hafði alltaf
langað til þess að gera en aldrei
þorað, ekki fyrr en núna þegar
ég hef jafn traustan aðila og
hún Magnea er mér við hlið,
segir Björn. -Hann er alltof
hógvær hann Björn og það er