Feykir - 12.06.2008, Síða 9
23/2008 Feykir 9
Jón Hilmarsson skólastjóri skrifar
Grunnskólinn austan Vatna
STðasta haust voru skólarnir þhr, á Hólum, Hofsósi og
Sólgörðum, sameinaðir í einn skóla. 93 nemendur voru í
skólunum þremur í vetur, 1. -7. bekkur á Hólum og
Sólgörðum en 1. -10. bekkur á Hofsósi.
Fljótlega síðasta haust var
ráðist í það verk að finna
sameiginlegt nafn fyrir skólann
og var lagt í hugmynda-
samkeppni meðal nemenda,
kennara og íbúa á starfssvæði
skólanna. Úr varð að skólanum
var valið nafnið „Grunnskólinn
austan Vatna“ og átti kennari á
Hofsósi, Elsa Stefánsdóttir
vinningstillöguna. í framhaldi
af því var hafist handa við að
finna merki sem passaði við
nafnið og tæki mið af sérstöðu
og aðstæðum hvers skóla án
þess að gera upp á milli þeirra.
Alls ekki vandalaust verk en í
gegnum sama ferli kom látlaust
en fallegt merki fyrir skólann
sem náði að sameina þessa
þætti. Höfundur merkisins var
einnig kennari við skólann,
Rita Didriksen.
Unnið hefur verið að því í
vetur að sameina ýmsa þætti í
starfi skólanna og sömuleiðis
að auka samstarf þeirra, bæði
hvað varðar faglegt starf
kennarana og líka hvað varðar
starf nemendanna. Nýsköp-
unarkennsla hefur verið kennd
á Hólum undanfarin ár en var í
vetur kennd í öllum skólunum
í samkennsluhóp 5. - 7. bekkj-
ar. Frumkvöðlamennt í formi
reksturs menningarkaffihúss
hafði líka verið kennd á Hólum
en var núna tekin í 9. bekk á
Hofsósi. Menningarkaffihúsið
„Kaffibaunin" lærði um rekstur
Grunnskólinn
•/i/i/iaiistanVatna
kaffihúss, fékk sérfræðinga í
heimsókn og fór sömuleiðis í
vettvangsferð auk þess sem
Kaffibaunin stóð fyrir einu
kaffihúsi á Hólum, Hofsósi,
Sólgörðum og á Tekið til
kostanna. Grenndarnám og
tenging við náttúruna er
mikilvægur þáttur í starfi
skólanna, sérstakur skógar-
dagur var haldinn á Hólum
síðasta haust, nemendur
Hofsóss byrjuðu að vinna að
grenndarspili sem aðrir skólar
í Skagafirði eiga eftir að koma
að næsta vetur og lagðar hafa
verið línur núna á starfsdögum
kennara um aukið útinám,
göngu- og vettvangsferðir
nemenda og kennara.
Grunnskólinn
Hofsósi
Á Hofsósi voru í vetur 51
nemandi í 1. -10. bekk og var
kennt í fjórum samkennslu-
hópum. Kennarar fóru í byrjun
skólaárs í sérstakar kennara-
heimsóknir heim til nemenda
og foreldra þar sem rætt er um
skólaárið sem framundan var,
væntingar nemenda og
áherslur skólans kynntar.
Þessar heimsóknir hafa mælst
vel fyrir og verða áfram liður í
starfi skólans þó með örlitlu
öðru sniði næsta haust.
Minningarhátíð Rakelar
Pálmadóttur er áberandi og
mikilvægur liður í starfi skól-
ans. Einn af kostum þess að
hafa fámennan skóla er hversu
almenn og mikil þátttaka
nemenda er í félagsmálum og
viðburðum á vegum skólans.
Á Minningarhátíðinni er
framlag nemenda áberandi og
það sem meira er að nemendur
hlakka til að taka þátt í
viðburðum og hafa metnað til
að gera það vel. Hjónin Pálmi
Rögnvaldsson og Bryndís
Óladóttir eiga bestu þakkir
skildar fyrir þennan menning-
arviðburð og þær gjafir sem
nemendur skólans hafa fengið í
gegnum árin úr minningar-
sjóðnum.
Undanfarin tvö ár hafa
nemendur skólans, undir stjórn
Herdísar Fjeldsted, unnið að 5
m langri mósaík mynd sem
sýnir Hofsós séð frá austri til
vesturs.
Næsta vetur er stefnt að því
að búa til eftirmynd af fjöru inn
í skólanum með fjörugrjóti,
stuðlabergi, sýnishornum af
lífverum úr fjörunni og hafa
fallega mynd af Drangey í
bakgrunninum.
Grunnskólinn að
Hólum
í Grunnskólanum að Hólum
voru í vetur 28 nemendur í 1.
- 7. bekk, í þremur sam-
kennsluhópum. Eitt af þróun-
arverkefnum við Grunnskól-
ann að Hólum er að nýta
umhverfi skólans betur til
kennslu. Unnið er að útistofu í
skóginum þar sem hægt er að
vinna hin fjölbreyttustu verk-
efni. í haust var byrjað með
sameiginlegum skógardegi
með nemendum Grunnskólans
austan Vatna í 1. - 7. bekk.
Þann dag var unnið allan
daginn í skóginum að ýmsum
verkefnum og í hádeginu voru
grillaðar pylsur við varðeld.
Reynt var að nýta skóginn í
sem fjölbreyttustu verkefnum
og kanna möguleika
umhverfisins og það verður
síðað þróað áfram. 1. og 2.
bekkur vann m.a. verkefni um
fjöllin í nágrenni Hóla, lærðu
nöfnin og fundu út hæð þeirra.
Mælikvarðinn var samanlögð
lengd þeirra sjálfra. Útbúinn
var bæklingur með niður-
stöðunum. Það kom m.a. í ljós
að Hólabyrða er 98 sinnum
samanlögð lengd bekkjarins.
3. og 4. bekkur útbjó
skógarpúka, grímur sem þau
tóku með sér í skógarferðir.
Þær reyndust endalaus
uppspretta sögugerðar og
ævintýra.
Nemendur í 5. - 7. bekk
hafa, nokkrum sinnum í vetur,
fengið gestakennara í heimsókn
þar sem nemendur fá nýja sýn
á hlutina með sjónarhorni
sérfræðinga eða áhugamanna
um tiltekin viðfangsefni.
Sérfræðingar sem koma í
heimsókn geta hvort heldur
sem er verið úr röðum foreldra,
kennara og nemenda Háskól-
ans eða annarra ótengdra
skólasvæðinu. Sérfæðingar
geta verðið úr ýmsum áttum og
meðal þeirra sem komið hafa í
vetur eru Ásta Björg
Pálmadóttir sem fjallaði um
fjármál, Álfúr Ketilsson sem
leiddi hópinn um skóginn í
haust, Egill Bjarnason sem
sagði frá störfúm áður fýrr og
svo áttu nemendur símafund
með Bjarka Lúðvíkssyni eða
„Lógó manninum".
I vor voru þemadagar að
venju þar sem allir nemendur
vinna að sameiginlegu verkefni.
Að þessu sinni var ákveðið að
fara með allan skólann í tveggja
daga ferð á Vestfirði og sigla til
Vigur. Björg Baldursdóttir
kennari er fædd og uppalin í
eynni og naut sín til fulls að
sýna krökkunum æskuslóðir
sínar. Nemendur fræddust um
æðarvarp og nýtingu þess,
fúglalíf við sjávarsíðuna, lífríki
fjörunnar, störf í eynni, og
annað sem fýrir augu bar eins
og vindmylluna góðu. Veðrið
lék við okkur og ferðin varð í
alla staði frábær. Þessi ferð
verður lengi í minnum höfð.
Sólgarðaskóli
í Sólgarðaskóla voru í vetur 14
nemendur í 1. - 7. bekk, kennt
var f tveimur deildum. I
Sólgarðaskóla hefur ávallt verið
lögð áhersla á góð tengsl við
náttúruna og grenndarsam-
félagið og var veturinn í vetur
engin undantekning, farið var í
fjölmargar göngu- og
vettvangsferðir, örnefni lærð
og landsnámsstaðir skoðaðir.
Lagður var grunnur að gerð
útikennslustofuískógarreitnum
ofan við skólann og var hún
nefnd Dalastofa.
Sameiginlegur nemenda-
dagur skólanna þriggja var
haldinn í október á Sólgörðum
þar sem þemað var þrískipt;
stærðfræði, tungumál og
íþróttir. Eldri deild Sólgarða-
skóla hefur komið inn í starf
Grunnskólans á Hofsósi
undanfarin ár einu sinni í viku,
þá sækja nemendur kennslu í
nýsköpun, handmennt og
íþróttum auk þess sem þeir fá
tækifæri á því að kynnst
jafnöldrum sínum þar.
Örn Þórarinsson á Ökrum
og Jóhannes Ríkharðsson á
Brúnastöðum stóðu fyrir
skáknámskeiði sem tókst mjög
vel. Sérstök gistinótt var í
skólanum þar sem nemendur
fóru í leiki, fatasund og sungu
saman. Nemendur fóru líka í
lengri ferðalög m.a. til
Akureyrar í keilu, Kjarnaskóg
og Nonnahús.
Jón Hilmarsson,
skólastjóri
Grunnskólans austan Vatna