Feykir - 12.06.2008, Page 10
lO Feykir 23/2008
Húnaþing vestra_________
Tíu ára afmælishátíd
Þann 7. júní sl. hélt
Húnaþing vestra upp á 10
ára afmæli sitt með
fjölskyldu- og afmælis-
hátfð á Bangsatúni á
Hvammstanga. Hát'ðin
hófst með ávarpi Elínar
lindal oddvita og að því
toknu gróðursettu börn á
aldrinum 1-10 ára, 10 tré
sem tákn um 10 ára
afmælið.
1-5 ára börn gróðursettu
fyrst 5 trén meðan börn í
Skólakór Grunnskóla Húna-
þings vestra sungu nokkur
lög. Síðan gróðursettu 6-10
ára börn 5 tré til viðbótar
meðan börn frá
Leikskólanum Ásgarði
sungu sín lög. Að því loknu
gróðursettu barnshafandi
konur 1 tré sem tákn um
framtíðina. Var þessi stund
mjög skemmtileg og
hátíðleg. Að því loknu fengu
börnin andlitsmálningu og
einnigvarfariðíleiki. Boðið
var upp á grillaðar pylsur og
afmælisköku sem að
sjálfsögðu var 10 metra
löng. Var mæting á
afmælishátíðina nokkuð
góð og er talið að um 250
manns hafi lagt leið sína á
Bangsatún.
INVETI
Páll Dagbjartsson skrifar
c
s>
§
Gradualekór Lang-
holtskirkju hélt tón-
leika í Skagafirði
Gradualekór
Langholtskirkju
hélt tónleika í
Fnmúrarasalnum
á Sauðárkróki s.l.
sunnudag. Stjórnandi var
Jón Stefánsson.
Kórinn tók til starfa 1991
og eru kórfélagar stúlkur á
aldrinum 14til 18ára. Greinilegt
er að miklar kröfur eru gerðar
til þeirra sem fá inngöngu í
kórinn og margir kórfélagar eru
langt komnir í tónlistarnámi.
Starfræktur er sérstakur
kórskóli við Langholtskirkju
sem býður upp á söngnám sem
er sambærilegt við grunnnám
tónlistarskálanna. Margar
stúlknanna í kórnum eru
búnar að stunda söngnám í
skólanum allt frá íjögurra ára
aldri. Til gamans má geta þess
að alls eru átta kórar starfandi
við Langholtskirkju.
Verkefnaval Gradualekórs-
ins á tónleikunum s.l. sunnudag
var mjög fjölbreytt og
skemmtilegt og var dagskráin
flutt í heild án hlés í eina og
hálfa klukkustund.
Ég vil hér þakka kórnum
fyrir aldeilis frábæra skemmt-
un. Var mikil unun að hlíða
á þessar þjálfuðu ungu raddir
undir öruggri stjórn Jóns, sem
lék einnig undir á flygilinn við
flutning á nokkrum verkanna.
Hafið kæra þökk fyrir
komuna í Skagafjörð og komið
fljótt aftur.
Páll Dagbj.
Málverkasýning Ástu Páls
1 Safnahúsinu á Sauðárkróki
Laugardaginn 14. júní næstkomandi
kl. 15:00 opnar Ásta Pálsdóttir sýningu
á verkum sínum í Safnahúsinu á
Sauðárkróki.
Ásta er fædd á Sauðárkróki 2. febrúar 1938.
Að þessu sinni sýnir Ásta 40
vatnslitamyndir málaðar með blandaðri
tækni. Þessa sýningu tileinkar hún aldarafmæli foreldra sinna,
Sigrúnar Fannland og Páls Sveinbjörnssonar.
Sýningin er opin alla daga frá kl. 13-17 og stendur fram í júlí.
LISTASAFN SKAGFIRÐINGA