Feykir - 18.12.2008, Side 15
48/2008 Feykir 15
Það komu söngfugiar að vestan
góður kórstjórnandi sem áður er
framkomið. Undirleikur við
söng kórsins var af bandi og
skilaði sér vel og var smekklegur.
Fallegar ungar stúlkur sýndu
Riverdans þar sem andi
Vesturheims sveif yfir vötnum.
Þá voru veitingar í boði
Akrahrepps. Agnar Gunnarsson
ávarpaði samkomuna á ensku.
Þessi kvöldstund verður öllum
ógleymanleg er hennar nutu.
Kvöldblíðan skóp fagra umgjörð
er Vestur Islensku börnin brugðu
á leik í varpanum við gamla
bæinn á Stóru-Ökrum.
Að morgni 1. ágúst var þessi
góði hópur kominn í Síldar-
minjasafnið á Siglufirði og ekki
löngu síðar í Ólafsfjörð. Á
Dalvík var afslöppun og hvíld og
daginn eftir hádegisverður á
Akureyri. Þar var stoppað stutt
og haldið áfram austur að
Goðafossi. Komið var að kvöldi
til Húsavíkur þar sungið og gist í
skólanum. Sunnudaginn 3. ágúst
var farið að Mývatni og áfram
austur að Sænautaseli í „kaffi og
lummur“. Áfram var haldið í
Borgarfjörð eystri þar sem
Álfaborgarhátíð var haldin. Og
auðvitað var sungið. Komið var
að kvöldi í Brúarásskóla og
margir hvíldinni fegnir.
Skal nú ekki ferðalagið rakið
frekar en farið var suður um og
komið til Reykjavíkur að kvöldi
laugardaginn 9. ágúst. Sá sem
þetta ritar var svo heppinn að
vera viðstaddur er kórinn söng í
Kópavogskirkju sunnudaginn
10. ágúst. Þetta var hrífandi
söngur en yngstu börnin voru
greinilega orðin þreytt eftir langt
ferðalag. Það þurfti marga að
kveðja þarna á kirkjuhlaðinu og
enn var þessi indæla sumarblíða
svo hægt var að tylla sér á stein
og gefa sér góðan tíma með
vinum og ættingjum.
Hópurinn kvaddi svo ísland
þriðjudaginn 12. ágúst með
viðkomu í Bláa lóninu. Lagt var
af stað yfir Atlantsála um
fimmleitið og í vestrinu beið
Kanada.
Ekki er hægt að láta hjá líða að
þakka þessa einstæðu heimsókn
ættmennaogvinaúrVesturheimi,
gríðarleg vinna og skipulagning
fylgir slíku ferðalagi. Fimm til
sex ættliðum seinna frá því að
vesturfarir voru í hámarki á
nítjándu öld var sem Vestur-
fararnir væru komnir heim á ný.
Svipmótið leynir sér ekki.
Bestu þakkir fyrir komuna
Vestur íslendingar
Hörður Ingimarsson
Vestur Islendingar á Kirkjutorginu Sauðárkróki. Aftast frá vinstri: Dennis Johnson, Dean Stoyanowski, Gaye Johnson, Einar Vigfusson, Kristján Collins, Vickie Johnson,
Joyce Johnson, Robert Johnson, Josephine Anderson, Shianne Uschold, Gregory Palsson, Laureen Palsson, Gerret Johnson, Lorlei Henry, Jennifer Johnson, Joanne
Johannesson. Þriðja röð frá vinstri: Janine Collins, Brady Collins, Carrigan Johnson, Janessa Johnson, Kiah Helgason Stoyanowski, Penny Heigason, Jasmyn Johnson,
Hiiary Collins, Samantha Johnson, Jessa Laine Johnson, Rebecca Johnson, Rochelle Palsson, Brooke Henry, Alexandra Roche, Rosaiind Vigfusson, Dalton Johnson.
Önnurröð frá vinstri (3 stúlkur): Savannah Johnson, Sage Helgason Stoyanowski, Tessa Johnson. Fremsta röð frá vinstri: Paige Henry, Jakob Uschold, Bryndís Uschold,
Barry Johannesson, Christa Welsh, Brett Johnson, Allynne Johnson. Með í hópnum en ekki með á myndinni: Tami Johnson, Chantel Jonasson, Tanya Jonasson, Darian
Roche, Kienan Roche. Mynd: hing.
Ungmennakór
Nýja íslands
Áliðnu sumri komu „söngfuglar
að vestan“ í heimsókn til íslands
falleg mannvænleg ungmenni
tuttugu og tvö talsins ásamt
stjórnanda sínum Rósalind
Vigfusson. Fylgdarliðið var bæði
mömmur og pabbar, afar og
ömmur, frændur og frænkur.
Samtals stóð hópurinn af 47
manns og þar af gátu 34 rakið
ættir sínar í Skagaljörð. Rætur
þessa fólks liggja að sjálfsögðu
víðar á íslandi m.a. í Vopnafjörð
ogausturáHérað.Undirbúningur
að ferðalagi til íslands var bæði
langur og strangur og margt
þurfti að takast vel til svo ferðin
yrði að veruleika. Hafa ber í huga
að vandasamt er að þjálfa upp
góðan barna og unglingakór og
halda honum saman. Börnin eru
fljót að vaxa úr grasi. Rósalind
kom með barnakór til íslands
árið 2003 í júlí framúrskarandi
vel þjálfaðan og skemmtilegan
kór sem söng að mestu á íslensku.
Gefin var út geisladiskur með 25
lögum og söngvum með þessum
krökkum og þar eru íslenskar
hefðir í hávegum hafðar.
Rósalind safnaði saman
börnum í kórinn sem var hér í
sumar úr byggðunum þar sem
íslendingar standa dýpstum
rótum í nágrenni Arborgar og
Riverton í gamla Nýja íslandi.
Það gerði Rósalind kleiff að þjálfa
kórinn betur enda ekki mjög
langt milli barnanna, en sum
hver eru mjög ung og allt að
unglingsaldri. Það verður að
segjast að kórinn er óvenjulega
vel skipaður og söngurinn var
framúrskarandi góður öllum til
mikils sóma.
Hjónin Rósalind og Einar
Vigfusson hafa í áratugi lagt
mikið af mörkum til samskipta
milli Vestur íslendinga og gamla
heimalandsins. Einar er þekktur
útskurðarmeistari og hefur
margsinnis verið á íslandi bæði
með leiðbeiningar og sýningar.
Rósalind hefur ómælda tónlist-
argáfu og er bæði kórstjórnandi
og tónskáld. Lag hennar „Minni
íslands“ sem er mildur ljúfur
ómur til gamla landsins með
texta eftir Böðvar Jakobsson,
kom út á geisladiski fyrir
nokkrum árum (árið 2003) mun
er stundir líða teljast til íslenskrar
arfleifðar. Faðir Rósalindar var
Jóhannes Pálsson sem átti ættir
að rekja til Reykja á Reykjaströnd.
En víkjum nú að ferð þessa glæsi-
lega hóps er heimsótti Island í
sumar sem leið.
Lagt var af stað frá Arborg 1
Nýja íslandi mánudaginn 28.
júlí snemma morguns og um
kvöldið flogið með Icelandair
til íslands og komið til
Keflavíkur snemma morguns
29. júlí. Kent Björnsson tók á
móti hópnum og ekið var
tafarlaust til Kársnesskóla til
hvíldar enda tímamismunur 5
stundir og erfiður fyrir unga
fólkið. Ekið var samdægurs í
Reykholt á slóðir Snorra
Sturlusonar og söfn og kirkja
skoðuð.
Er kvölda tók var komið í
Skagafjörðinn og kvöldverður
beið í Varmahlíðarskóla og þar
var gist. Margir fóru í sund.
Miðvikudaginn 30. júlí var farið í
heimsókn að Flugumýri í fjósið
til Ingimars Jónssonar og
hádegisverður var í Áskaffi í
Glaumbæ og safnið skoðað. Þá
var farið fram í Varmalæk og
hrossin skoðuð hjá Birni og
Magneu.
Þá lá leiðin að Laugarmýri til
Jónínu Friðriks og gróðurhúsin
skoðuð. Kvöldverður beið
hópsins í Varmahlíðarskóla og
frjálstími í sund og fjallgöngu.
Fyrir þá sem búa á sléttum
Manitoba með endalaust
flatlendið með skógum sínum og
ökrum verður það næstum
manndómsraun að ganga upp
Reykjarhólinn að sunnanverðu
og endaí 101 metrayfirsjó.!!!
Að morgni 31. júlí var
hópurinn kominn á Krókinn og
söng sunnan við Landsbankann.
Veðrið lék við alla, myndin tekin
af hópnum þennan dag á
Kirkjutorginu en það voru fáir
sem nutu þessa fallega söngs og
var það skaði.
Dagskráin var stíf og frá
Króknum lá leiðin heim að
Hólum síðan í Vesturfarasetrið á
Hofsósi þar sem Valgeir
Þorvaldsson tók á móti hópnum
af sinni alkunnu rausn. Glæsileg
dagskrá var í Héðinsminni um
kvöldið. Kynnir var Shianne
Uschold, stjórnandi Rósalind
Vigfússon. Einleik á fiðlu lék
fallega rauðhærður strákur Brady
Collins ótrúlega góður en ekki
söng hann með kórnum. Bryndís
Uschold dóttir Shianne lék einnig
á fiðlu, greinilega mjög fær á
hljóðfærið. Þá léku þau saman
Bryndís og Brady mjög glæsilega
gert. Rósalind Vigfússon las upp
en hún hefur mjög gott vald á
íslenskri tungu þess til viðbótar
að vera snjall píanóleikari og