Feykir - 18.12.2008, Qupperneq 27
48/2008 Feykir 27
( ÚR ELDHÚSI LESENDA )
Guömundur og Nanna Andrea kokka
Gómsæt önd í
appelsínusósu
Það eru hjónin Guðmundur Kristján Hermundsson og
Nanna Andrea Jónsdóttir á Sauðárkróki sem bjóða upp á
nokkrar girnilegar uppskríftir.
Þau skora á hjónakornin á Narfastöðum þau Rósu Maríu
Vésteinsdóttur og Berg Gunnarsson að koma með næstu
uppskrift.
FORRETTUR FYRIR 6
Skelfisksúpa ilmandi
afkarrý og kókos
11 vatn
1 dl. hvítvín (mysa)
1/3 lítill blaðlaukur
(græni hlutinn)
1 stk. gulrót
1 msk. tómatmauk
1 stk. sellerístilkur
1 stk. hvítlauksgeiri
1 'á tsk. Madras karrýduft
2 stk. fiskteningar ( Knorr)
4 stk. súputeningar ( Maggi)
2 dl. rjómi
1 dós kókosmjólk (4 dl. )
Salt og pipar
Smjörbolla:
50 gr. smjörlíki
50 gr. hveiti
Fiskur:
100 gr. skelflettur humar
100 gr. rœkjur
100 gr. hörpuskel
Grœnmeti í súpu
V2 stk. rauð paprika
í teningum
‘/2 búnt söxuð steinselja
Aðferð: Grófsaxið grænmetið
og steikið í olíu ásamt karrýinu
og tómatmauki. Bætið í vatni og
hvítvíni (eða mysu) ásamt teningum
og hvítlauk. Látið sjóða í 15 mín.
Sigtið og bakið upp með smjörlíki
og hveiti. Bætið kókosmjólkinni í
og bragðbætið með salti og pipar.
Setjið rjómann í ásamt fisknum,
paprikunni og steinseljunni.Látið
sjóða í 2-3 mín. Berið fram strax
þannig að fiskurinn ofsjóði ekki í
súpunni.
Sem meðlæti er gott að hafa
snittubrauð með hvítlaukssmjöri.
AÐALRÉTTUR
Önd í appelsínusósu
með ávaxtasalati
Önd (um 3 V2 kg)
Salt ogpipar
400 gr. súrgræn epli
50 gr. þurrkaðar apríkósur
2 greinar timjan
V2 1 vatn
2-3 tsk. andarkraftur (efþarf)
Sósujafnari
Grand Mariner
Ávaxtasalat:
Blandaðir ávextir t.d
1 stjörnuávöxtur
2 fíkjur
1 passionávöxtur
eða aðrirframandi ávextir
2 dl. appelsínulíkjör
100 gr. ósaltaðarpistasíuhnetur
Aðferð
Önd: Hreinsið öndina vel að innan
og þerrið með eldhúspappír. Nuddið
hana vel með salti og pipar.
Afhýðið epli fjarlægið kjarna
og skerið í báta. Fyllið öndina
með eplabátum og apríkósum
ásamt grófsöxuðu timjani. Bindið
lappirnar saman og setjið öndina
á ofngrind með bringuna niður
og hafið ofnskúffu undir. Steikið í
250°C heitum ofni í 15 mínútur og
snúið henni við. Lækkið hitann í
160°C og steikið áfram í 15 mínútur.
Hellið vatni í ofnskúffuna og steikið
áfram í 1 'A klukkutíma. Bætið við
vatni efþörf krefur.
Sósa: Takið öndina úr ofninum og
haldið henni heitri. Hellið soðinu í
pott og kælið. Fleytið feitinni ofan
af. Hleypið upp suðu og bætið 2-3
teskeiðum af andarkrafti út í ef þið
viljið. Kryddið með salt og pipar.
Þykkið með sósujafnara og bragðbætið
með appelsínulíkjör, efvill.
Ávaxtasalat: Skerið ávextina í
sneiðar. Raðið sneiðunum til skiptis
á fat. Dreypið líkjör á og dreifið
söxuðum eistasíuhnetum yflr. Setjið
plastfilmu yfir og geymið í ísskáp í
tvo klukkutíma. Berið fram kalt eða
setjið í heitan ofn í 10-15 mínútur.
Meðlæti: Berið fram með
sykurgljáðum kartöflum. Með
öndinni er hægt að hafa flestar
tegundir framandi ávaxta sem fást
hverju sinni.
EFTIRRÉTTUR
Súkkulaðimús
(einföld og létt)
2 dl. rjómi
300 gr. suðusúkkulaði
100 gr. sykur
4 stk. egg
2 dl. rjómi
Hitið rjómann að suðu og hellið
yfir saxað súkkulaðið. Þeytið egg
og sykur á meðan. Þeytið 2 dl. af
rjóma, blandið eggjunum saman við
rjómann og svo súkkulaðinu. Hrærið
mjög varlega með sleikju, setjið í glös
eða skál. Kælið í ca. 3 tíma.
Verði ykkur að góðu!
GUÐMUNDUR VALTYSSON
Vísnaþáttur 489
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er skáldið Gísli Ólafsson sem á
fyrstu vísuna að þessu sinni.
Hryggst éggat ogfógnuð fyllst
fundið, glatað, brotið.
Áfram ratað, einnig villst
elskað, hatað, notið.
Annar Króksari, Þorbergur Þorsteins-
son, mun vera höfundur að þessari.
Oft eru dul ogfeiminfljóð
fremst í hœfnisprófi.
Og sumum þykir syndin góð
sé hún drýgð í hófi.
Tryggur lesandi hafði samband og
spurði um höfund eftirfarandi vísu.
Oft mér veitir innrifrið
yndi sólarlagsins,
þó aldrei geti ég orðið við
öllum kröfum dagsins.
Hef lengi kunnað vísuna og á að vita
effir hvern hún er. Get alls ekki munað
það nú, og bið lesendur um upplýsingar
þar um. Held að Oddgeir Guðjónsson
frá Tungu í Fljótshlíð hafi ort þessa.
Áðurfyrr og enn í dag
yrkja margir stökur.
Kveðum þetta Ijúfa lag
langarþorra vökur.
Eftir framkvæmda skoðanakönnun
voru birtar þær rosa fréttir að konur á
Akureyri væru 5,4 kg þyngri en konur
í Hafnafirði. Þær höfðu að sögn sömu
fréttar tuttugu og eins cm meira ummál
á belginn. Læknir þeirra norðlensku
Hjálmar Freysteinsson tók upp
hanskann fyrir sínar konur og orti.
Fleiri kíló konur okkar bera
og kviðurinn er þandari.
Eg held að þetta hljóti þó að vera
Hafnafjarðarbrandari.
Einhverju sinni komst eftirfarandi fyrri-
partur á kreik og var óskað eftir botni.
Afi minn ogamma mín
eiga hvergi heima
Helgi R Einarsson segir:
Misstu Bakka, blygðast sín
og burtu Rauð sinn teyma.
Var þarna verið að yrkja um erfiðleika
í húsnæðismálum aldraðra og mun
Erlendur Hansen á Sauðárkróki hafa
lagt þetta til, um framhald.
Drottinn blessi börnin sín
sem búið er aðgleyma.
Létt verk hjá Ella að minna á svo ljótar
staðreyndir. í þeirri ótíð og því vetrarríki
sem geisað hefur að undanförnu er
við hæfi að rifja næst upp þessa ágætu
hringhendu Agústar Guðbrandssonar
frá Hækingsdal.
Alltaffennir endalaust
ótíð grennir vanga.
Kári enn með kalda raust
kveður sennu langa.
Önnur hringhent vísa kemur hér eftir
Ágúst.
Kiknarflest er kuldinn hrín
kveð ég verstum rómi.
Þrekið brestur, dáðin dvín
Dagsersestur Ijómi.
Þegar hugurinn reikar til hlýrri daga
verður þessi til.
Kuldinn má núfœrastfrá
frost oggljáinn bjarta.
Lokuð brá mun lyftastþá
og lifna þrá í hjarta.
Að lokum þessi eftir Ágúst.
Drakk égþinna vara veig
varma úrsvinnu hjarta.
Ofl þaðflmna afþeim teig
á ég minning bjarta.
Freistandi að leita til okkar ágæta Bjarna
frá Gröf, um haustvísu.
Finn ég hrollinn, fjarri er vor,
fólvar á bollum lánna.
Skurnar á pollum, skorpnarfœr,
skrjáfar í kollum trjánna.
Gaman að rifja einnig upp þessa
snjöllu vísu Bjarna, sem ég veit reyndar
nokkurn veginn fýrir víst að hafi birst
áður í þessum þáttum.
Syndir eins ogfjaðrafok
finnast kringum veginn,
þegar ég í leiðarlok
lendi hinum megin.
Stundum finnst mér stutt leið frá
Bjarna, til Jónatans Jakobssonar. Minnir
að þessi sé eftir hann.
Sig úr hverjum vanda vatt.
Vék til hliðar réttlœtinu.
Stundum reyndar sagði satt
sínu oftar brá þó hinu.
Langar mikið að kalla eftir upplýsingum
frá lesendum um höfund að þessu
ágæti.
/ minni skúffu vildi éggjarnan
að ég œtti,
engan skattinn afþví sœtti
alla landsins vísnaþœtti.
Er ég rölti um nú nýverið í landi
Þverárdals syðst á Laxárdalnum, í
vondu snjófæri, flaug í hug þessi ágæta
vísa Baldvins Halldórssonar.
Þóttfagra beri fannblœju
jjalla hver einn salur.
Lítið er um ánœgju
í þér Þverárdalur.
Þar sem þetta mun vera síðasti þáttur
þessa árs langar mig til að þakka ykkur
lesendur góðir fýrir indælt samstarf
kveð ykkur með þessum orðum.
Árin líða okkur hjá
andast blóm á lyngi.
Besta kveðja beristfrá
bónda í Húnaþingi.
Verið þar með
sœl að sitini.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Sími 452 7154