Feykir - 20.05.2009, Blaðsíða 2
2 Feykir 20/2009
Húnaþing vestra
Sveitamarkaður
á Laugarbakka
Sveitamarkaður verður
haldin á Grettisbóli
Laugarbakka, um helgar í
sumar. Markaðurinn opnar
seinni hluta júní og stendur
út ágúst.
Markaðurinn er hluti
verkefnisins Laugarbakkinn -
sagnasetur, sem er samstarfs-
verkefni Grettistaks, Reykja-
höfða og fleiri og miðar að því
að byggja upp á Laugarbakka
ýmiskonar starfsemi byggða á
menningararfinum, sögnum,
fornu handverki, náttúruauð-
legð, matarmenningu og
fleiru. Áætlað er að búa til
umgjörð á Grettisbóli sem
gefúr markaðnum sögualdar-
svip.
Lögð verður áhersla á að
selja þarna vörur sem eru úr
héraði og hafa einhverskonar
tilvísun í menningararfinn t.d.
handverk/heimilisiðnað sem
byggir á hráefni úr héraði og/
eða á fornum hefðum og
minnum, eða matvæli sem
unnin eru úr heimafengnu
hráefni og byggja að hluta á
gömlum hefðum... en allt
þetta má þó vel vera fært í
nútímabúning.
Húnaþing vestra
Foreldraverðlaunin
Foreldrafélög leik- og
grunnskólans í V-Hún hafa
sent inn tilnefningu f
samkeppni um Foreldraverð-
launin 2009 sem er á vegum
Heimilis og skóla.
Verkefnið sem er tilnefnt er
samskipti leik- og grunnskóla
í Húnaþingi vestra þegar
kemur að því að aðlaga elstu
nemendur leikskólans yfir í
grunnskóla. Verkefnið hefur
vakið athygli fyrir að vera vel
skipu-lagt og gefur nemendum
góðan tíma til að aðlagast nýju
skólaumhverfi.
Leiðari
Tvöfaldur sigurvegari
Mitt norska gen tók stökkkipp, stækkaði og bólgnaði
til muna um helgina er landið mitt að hluta, Noregur,
sigraði söngkeppni Evrópuþjóða.
Ég hefreyndar aldrei heimsótt Noreg en langafi minn var
norskur sjómaður sem kíkti við hér á landi eitt kalt vor
Jyrir löngu. Lengi vel þekktum við ekki til hinnar norsku
fiölskyldu en lítil auglýsing í Morgunblaðinu árið 2003
breyttiþví og á heimaslóðum Alexanders hins krúttlega
söngvara á ég fullt afættingjum. Ég hefreyndar ekki enn
heimsótt hitt landið mitt en það stoppar mig ekki afí stoltí
yfir hinum góða árangri.
Ekki spillifyrir að Skagfirsktframlag íslendinga hafnaði
í öðru sæti. Tvöfaldur sigur varð veruleikinn og ég brosi
breitt í sólinni sem leikur við okkurþessa dagana. Það
er alveg merkilegt hversu lítið þarfoft tilþess að gleðja
okkar litlu hjörtu.
Góðar stundir.
Guðný Oshaug
ritstjóri Feykis
Óháð fréttablað á Norðurlandí vestra - alltaf á fimmtudögum
Feykir
Utgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiöar Ásgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og Páll
Dagbjartsson.
Ritstjórí & ábyrgðarmaðun
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is <6 455 7176
Blaðamenn:
Páll Friðriksson
palli@nyprent.is ® 8619842
ÓliArnar Brynjarsson
Lausapenni:
Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur:
Karl Jónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Stjóm SSNV_______________
Lýsir yfir vonbrigðum
með úthlutun ráðuneytis
Stjórn SSNV lýsti á fundi
sfnum á dögunum
vonbrigðum með rýran hlut
verkefna á Norðurlandi
vestra við úthlutun Iðnaða-
rráðuneytisins til uppbygg-
ingar ferðaþjónustu á
landsbyggðinni
Á fundi stjórnarinnar var
lögð fram til kynningar
samantekt atvinnuráðgjafa
vegna úthlutunar iðnaðar-
ráðuneytisins á styrkjum til
uppbyggingar ferðaþjónustu á
landsbyggðinni þann 22. apríl
2009.
Þá bendir stjórn SSNV á
að fjöldi áhugaverðra verkefna
á sviði ferðaþjónustu er í
þróun í Skagafirði og Húna-
vatnssýslum og hvetur iðnað-
arráðuneytið til þess að horfa
til og styðja við þau verkefni í
framtíðinni".
í framhaldinu hvetur stjórn
SSNV aðila í Skagafirði og
Húnavatnssýslum sem standa
að metnaðarfullum verkefnum
á sviði ferðaþjónustu til dáða.
Vakin er athygli á þeirri
þjónustu sem til boða stendur
innan SSNV á vettvangi
atvinnuþróunar, vaxtarsamn-
ings og menningarsamnings.
Skagaströnd
Sá fýrir bjór
Athafhamennirnir Hallbjörn
Björnsson rafvirki en ekki
kúreki og Adolf Berndsen
hafa ásamt fleirum sáð fyrir
byggakri á eins hektara
lands norðan við Vetrarbraut
á Skagaströnd.
Ef að líkum lætur má gera
ráð fyrir að uppskeran kunni
verið allt að sex tonnum en er
sú spá þó algjörlega upp á
veður og vind komin.
Sáð var þremur byggtegundum
sem heita Tyrill, Skúmur og
Kría. Tyrill er viðkvæm
byggtegund og getur átt erfitt
uppdráttar hérna, hann er
hávaxinn og þolir illa vind.
Skúmur er íslenskt byggtegund
og er talinn geta vaxið hér
nokkuð auðveldlega. Kría er
líka íslenskt afbrigði og talið er
að geti hugsanlega vaxið
þokkalega hér.
Jónatan Líndal á Holtastöðum
hefur veitt mikla aðstoð í
framkvæmdina en hann og
Hallbjörn hafa unnið að
undirbúningi meira eða minna
í tvö ár. Gert er ráð fyrir
þreskingu um miðjan eða
seinni hluta september.
Grunnskólinn austan Vatna
Arbók væntanleg
Stefht er að utgáfú
sérstakrar árbókar sem
inniheldur einstaklings- og
bekkjarmyndir af öllum
nemendum skólanna þríggja
auk mynda úr skóla- og
félagsífi h'ðandi vetrar.
Allar myndir eru í lit.Það
eru Minningarsjóður Rakelar
Pálmadóttur og Kaupfélag
Skagfirðinga styrkja útgáfuna.
Vetrarþjónusta Skagafjörður -Blönduós_
Steypustöðin býður 42,9%
Tilboð voru opnuð 12. maf í
vetrarþjónustu í Skagafirði
og Austur - Húnavatnssýslu
árin 2009-2012.
Steypustöð Skagafjarðar
var með lægsta tilboðið kr.
17.960.000 sem er 42,9%
af kostnaðaráætlun en hún
nam kr. 41.839.000.
Hæsta tilboðið kom frá
Dodds ehf., Grundarfirði
kr.47.712.000, eða 14% yfir
kosnaðaráætlun.
Áætlaður verktakakostn-
aður 41.839.000.
Dodds ehf, Grundarfirði
kr. 47.712.000
Norðurtak ehf, Sauðárkróki
kr. 38.200.000
Vinnuvélar Símonar
Skarphéðinssonar ehf,
kr. 35.995.000
Víðimelsbrœður ehf,
Sauðárkróki kr. 31.756.000
Steypustöð Skagafjarðar ehf,
Sauðárkróki kr. 17.960.000
Hólar
Braut-
skráningá
laugardag
Föstudaginn 22. ma
verður brautskráning í
Háskólanum á Hólum
og verða brautskráðir
samtals um 65 nemendur
úr hestafræðideild, férða-
máladeild og fiskeldis- og
fiskah'ffræðideiid.
Útskriftarathöfhin fer
fram í Þráarhöll og hefst hún
kl. 15. Fyrr um daginn verður
skeifukeppni hestafræði-
deildar á skeiðvellinum og
hefst hún kl. 12.
Félagsheimimilð
Blönduós
Fame
sýntaftur
Aukasýning verður á
söngleiknum Fame sem
nemendur í 8. -10. bekk
Grunnskólans á Blönduósi
settu upp árshát'ð
skólans í vetur. Sýningin
verður föstudaginn 22.
ma' í Félagsheimilinu á
Blönduósi og hefst hún
kl. 20.
Fame er söngleikur
um unglinga í listaskóla.
Söngleikurinn gerist í
Reykjavík árin 2003 - 2004
nánar til tekið í hinum
rómaða Listaskóla íslands.
Söngleikurinn fjallar um
unglingana í skólanum, ástir
þeirra og listir.
Framsóknarfíokkurinn
Skipaðí
embætti
Þingflokkur framsóknar-
manna valdi á fundi
sfnum í sfðustu
viku Gunnar Braga
Sveinsson, 4. þingmann
Norðvesturkjördæmis,
formann þingflokksins.
Þá var Sigurður Ingi
Jóhannsson, suðurkjördæmi
kjörinn varaformaður og
Vigdís Hauksdóttir, Reykja-
vík ritari.
Gunnar Bragi tekur við
þingflokksformennsku af Siv
Friðleifsdóttur.