Feykir - 20.05.2009, Page 3
20/2009 Feykir 3
Sauðárkrókur
Tannheilsa barna almennt góð
Vinnuskólinn sér
um tjaldstæðið
Vinnuskólinn á Sauóárkróki
hefur fengið það verkfefni
að vakta og hafa umsjón
með tjaldsvæðinu á
Sauðárkróki í sumar en
rukkað verður inn á
tjaldsvæðið sem hefur verið
gjaldfrjálst sfðustu ár.
Munu nemendur vinnu-
skólans ganga vaktir á
tjaldsvæðinu, sjá um þrif,
rukkun tjaldgjalda auk þess að
sjá um að allt verði með
kyrrum kjörum á tjald-
svæðinu.
Um helgar munu flokk-
stjórar sjá um vöktun tjald-
svæðanna.
Tjaldstæðið mun opna í
byrjun júni en effir á að steypa
undirstöður og koma fyrir
nýju aðstöðuhúsi sem smíðað
var af nemendur FNV.
Skagafjörður
Sex mánaða fangelsi
fyrir fíkniefnaeign
Kona hefur f Héraðsdómi
Norðurlands vestra verið
dæmd í 6 mánaða fangelsi
fyrir að hafa haft í vörslu
sinni á tattúvinnustofu á
þáverandi heimili sínu þann
20. september sl. þegar
lögreglan gerði þar húsleit:
samtals 27,61 grömm af
hassi; 13,06 grömm af
amfetamíni og 81,64
grömm af kannabislaufum,
sem ákærða ætlaði til
söludreifingar í ágóðaskyni.
Jafnframt fyrir að hafa á
framangreindum tíma haft í
vörslum sínum tvo poka með
samtals 331,26 grömmum af
kannabislaufum, ætluðum til
söludreifingar í ágóðaskyni,
sem ákærða hafði falið í kerru
í bakgarði hússins.
Ákærða sótti ekki þing,
þrátt fyrir lögmæta boðun,
þegar málið var þingfest hinn
13. janúar sl. I framhaldi af því
þinghaldi var gefin út hand-
tökuskipun. Ákærða var færð
fyrir dóm af lögreglu 21. apríl
sl. Eftir nefnda breytingu á
ákæru játaði ákærða skýlaust
háttsemi þá sem henni er í
ákæru gefin að sök. Með
játningu ákærðu, sem er í
samræmi við gögn málsins,
telst sekt ákærðu fyllilega
sönnuð en háttsemi hennar er
réttilega færð til refsiákvæða í
ákæru.
Á sú dæmda að baki
allnokkurn sakaferil sem nær
aftur til ársins 1985.
Var konan því dæmd í 6
mánaða fangelsi en ekki þótti
tilefni til að skilorðsbinda
refsinguna.
Með alvarlegum
frávikum þó
Að sögn tannlæknanna
Ingimundar Guðjónssonar
og Eyjólfs Sigurðssonar á
Sauðárkróki er tannheilsa
barna í Skagafirði almennt
góð með alvarlegum
frávikum þó.
Ingimundur segir að kerfi
sem tannlæknar, heilsugæsla
og skólar hafi komið sér upp
hér innan héraðs skipti miklu
máli þegar litið sé til tannheilsu
barna. -Þegar börnin byrja í
skóla þurfa þau að velja sér
tannlækni sem síðan er
tilkynnt um barnið og hefur í
framhaldi samband við
foreldrið og býður eftirlit. Ég
held að það sé ekki síst þessu
kerfi að þakka við erum að sjá
betri heimtur en víða annars
staðar á landinu.
Að sögn Eyjólfs spilar lægra
verð tannlækna á Sauðárkróki
einnig stórt hlutverk en
gjaldskrá þeirra er mun lægri
en gengur og gerist á höfuð-
borgarsvæðinu.
-Ég er að fá í stólinn til mín
fólk sem keyrir langar leiðir til
þess að komast hingað til
tannlæknis, segir Eyjólfur.
-Við erum sanngjarnir í verði
og það skilar sér til baka á
þann hátt að fólk er duglegra
að fara til tannlæknis með
börnin sín. Við erum í það
minnsta ekki að sjá það hér að
það séu einhver 20% sem skila
sér ekki í hefðbundið eftirlit.
Hver skýringin á lægra gjaldi
hér er vita þeir félagar ekki. Að
líkindum er þar þó um að
ræða ódýrari húsakost auk
þess sem að á sumum stofum
á höfuðborgarsvæðinu sé
mikið lagt í umgjörð stofunnar
sem skili sér affur í
verðlagninguna.
Aðspurður segja þeir að
tannheilsa barna í Skagafirði
sé almennt mjög góð en segja
þó báðir að aukning hafi orðið
á alvarlegum skemmdum hjá
ungum börnum. -Það er því
miður staðreynd já, segir
Ingimundur.
-Ég lenti í því um daginn
að þurfa að draga
fullorðinstönn úr ungu barni
sökum skemmdar. Það hef ég
aldrei þurft að gera áður, bætir
Eyjólfur við.
Nú kemur þetta
Sparisjóðurinn býður viðskiptavinum sínum upp á SP12 sem er hávaxta
sparnaðarleið í Heimabanka þar sem vextir greiðast mánaðaðarlega.
SP12 er frábær kostur fyrir þá sem vilja
sjálfir halda utan um og sýsla með
sparnað sinn milliliðalaust.
Hægt er að nálgast reikninginn
allan sólarhringinn.
*
^SPARISJOÐUR
Skagafjarðar
Skagfirðingabraut 9a 550 Sauðárkrókur Sími 455 5555
í tamningu og þjálfun
Tökum aö okkur hross í tamningu
og þjálfun frá 1. júní.
Höfum bæði lokið tamningaprófi Hólaskóla og FT,
Verðum í Saurbæ í Skagafirði.
Heiðrún Ósk Eymundsdóttir © 849 5654
Pétur Örn Sveinsson ® 864 5337
Norðurlands vestra á Sauðárkróki
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki
verður slitið laugardaginn 23. maí í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.
Athöfnin hefst kl. 14:00.
Brautskráningarnemar komi á staðinn kl. 13:00 vegna myndatöku.