Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1937, Blaðsíða 29
Manntalið 1930
27
Fæddir Dvöldu
Reykjavík 13 013 12.1 % 27 326 25.5 %
Aðrir kaupsfaðir . .. 10 196 9.5 — 17 441 16.3 —
Verslunarstaðir .... 9 515 8.9 — 13 165 12.3 —
Sveitir 74 436 69.5 — 49 228 45.9 —
Samtals 107 160 lOO.o % 107 160 lOO.o %
Þessar tölur bera skýran vott um mannflutningana úr sveitunum til
kauptúnanna. I sveitum voru fæddir rúml. 2/3 hlutar landsmanna, en tæpur
helmingur þeirra átti þar heima. Eftirfarandi yfirlit sýnir, hve mikið hefur
unnist eða mist við flutningana innanlands í samanburði við tölu fæddra
í sveitunum og hverjum flokki bæjanna.
Reyliiavík ...........
Aðrir kaupstaðir ...
Verslurtarstaðir .. . .
Sveitir ..............
Aðfluttir umfram
burtflutta Af fæddum
14 313 llO.o %
7 245 71.5 —
3 650 38.4 —
25 208 33.9 —
Flutningarnir úr sveitunum til bæjanna eru tilfölulega meiri til kaup-
staðanna, og einkum Reykjavíkur, heldur en til verslunarstaðanna og
þeir eru meiri meðal kvenna heldur en karla. Af körlum fæddum í sveit-
um voru 35 °/o komnir til bæjanna, en af konum fæddum í sveitum voru
41 o/o komnar til bæjanna. A 9 yfirliti (bls. 25*) er nánari skifting karla
og kvenna eftir fæðingarstað og dvalarstað í sveit eða bæjum.
Á 6. og 9 dálki í 10. yfirliti (bls. 28*) sést, hve mikið hver kaupstaður og
sýsla á Iandinu hefur unnið eða mist af mannfjölda við flutninga innan-
lands. Hafa kaupstaðirnir unnið, en allar sýslurnar tapað. Tiltölulega mest
hefur Akureyri unnið við flutningana, og heldur meira en Reykjavík, því
að af fæddum innanlands dvöldu á Akureyri 130 °/o fleiri en þar voru*
fæddir, en í Reykjsvík 110 °/o fleiri. Á Siglufirði var vinningurinn umfram
tölu fæddra litlu minni en fæðingarmannfjöldinn (90 °/o), í Hafnarfirði
810/o, í Vestmannaeyjum 63 °/o, í Neskaupstað 53 °/o, en á ísafirði ekki
nema 33 °/o og á Seyðisfirði 16°/o. Af sýslunum hefur Gullbringu- og
Kjósarsýsla mist minst, 15 °/o af fæddum þar, og þar næst Suður-Múla-
sýsla og Þingeyjarsýsla (17 og 19 °/o), en þær sýslur, sem tiltölulega mest
hafa mist við flutninga, eru Rangárvallasýsla (41 °/o af öllum fæddum þar),
Vestur-Skaftafellssýsla (38 °/o) Dalasýsla (37 °/o) og Árnessýsla (36 °/o).
Hér á undan hefur aðeins verið farið út í aðalniðurstöðuna af flutn-
ingunum milli sýslna og kaupstaða, en hún er fram komin bæði við inn-
flutning og útflutning og nokkuð af þessum flutningum hefur jafnast upp
og kemur því ekki fram í endanlegu útkomunni. Af íbúum bæjanna (kaup-
§taða og verslunarstaða), var tæpl. helmingurinn, eða 28 241, fæddur