Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1937, Blaðsíða 51
Manntalið 1930
49
________________1930_______________ 1920
Atvinnu- Starfs- Verka-
rekendur menn fólk Samtals Samtals
Póst- og símastörf..................... » 316 62 378 253
Flutningar á landi .................. 207 14 533 754 305
Sjóflutningar ......................... 5 176 1957 2138 1674
Flugsamgöngur ......................... » 2 6 8 »
Samtals 212 508 2558 3278 2232
Flutningar á landi eru sem atvinnugrein reknir svo að segja ein-
göngu með bílum. Hefur fólki, sem starfar að bílasamgöngum fjölgað
miklu meir en við önnur samgöngustörf.
Olíkamleg atvinna. Þar til teljast 4756 manns eða nærri 4^2 °/o
af Iandsmönnum. Við manntalið 1920 töldust í þessum flokki aðeins
rúml. 3'/2 o/o af landsmönnum þá. Hefur honum því fjölgað 1920—30 um
39 o/o. Honum hefur verið skift í 6 undirdeildir og hefur tala framfær-
enda í hverri þeirra verið svo sem hér segir.
1930 1920
Atvinnu- Starfs- Verka-
rekendur fólk fólk Samtals Samtals
Umboðsstjórn og dómsmál ... 206 151 357 193
Heilbrigðismál 63 349 26 438 322
Kirkjumál 144 13 157 145
Kenslumál 63 529 7 599 410
Bókmentir og Iistir 40 286 14 340 685
Ymisleg einkastarfsemi 44 58 12 114 24
Samtals 210 1572 223 2 005 1 779
I einni af þessum undirdeildum, þeirri, sem kend er við bókmentir
og listir, benda tölurnar til þess, að orðið hafi mikil fækkun meðal fram-
færenda, sem þar til teljast. En sú fækkun er aðeins formleg, en ekki
raunveruleg, og stafar af því, að við manntalið 1930 er tala námsmanna,
er teljast sjálfir framfærendur, aðeins rúml. 1/4 af tilsvarandi tölu 1920.
Þessi liður er hálfgerður vandræðaliður í atvinnuskiffingu, því að auð-
vitað lifa menn ekki á því að vera námsmenn, heldur verða þeir annað-
hvort að starfa að einhverri atvinnu jafnframt náminu eða vera kostaðir af
öðrum. Aðeins ef engar fullnægjandi upplýsingar hafa verið um þetta, hafa
þeir verið settir í námsmannaliðinn. Það virðist svo sem betri upplýsingar
hafi fengist um þetta efni 1930 heldur en við næsta manntal á undan
og meiri áhersla lögð á að forðast þennan óákveðna atvinnulið. í öllum
öðrum undirdeildum þessa atvinnuflokks hefur framfærendum fjölgað
mikið 1920—30, nema í kirkjumálum. Þar hefur verið lítil fjölgun. Síð-
asta undirdeildin »Vmisleg einkastarfsemi* var ekki sérstök deild við
manntalið 1920, heldur talin með umboðsstjórn, en þó má vera, að sumir,
s