Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1937, Blaðsíða 31
Manntalið 1930
29
nema af þeim, sem fæddir eru á hverjum stað. Tölur þessar sýna, að
Reykjavík hefur mist tiltölulega færra fólk til annara staða á landinu
heldur en hinir kaupstaðirnir (16 °/o af þeim, sem þar eru fæddir), en
mestir hafa burtflutningar verið frá Seyðisfirði (56 °/o fæddra) og Isafirði
(44 o/o). Af sýslunum hefur Gullbringu- og Kjósarsýsla mist mest við burt-
flufning, töluvert meira en helming af fæddum (56 °/o), en aftur á móti
hefur innflutningur þangað verið meiri heldur en í aðrar sýslur, svo að
útkoman verðar tiltölulega miklu minni fólksmissir heldur en í Rang-
árvalia- og Skaftafellssýslum, sem að vísu hafa mist tiltölulega færra fólk
í burtu, en fengið hafa fátt af fólki aftur við innflutning.
Auk Gullbringu- og Kjósarsýslu hafa tvær aðrar sýslur mist í burtu
meir en helming þeirra, sem þar eru fæddir. Eru það Dalasýsla og
Árnessýsla, sem báðar hafa mist um 51 ^/2 °/o af fæddum. Minstir hafa
burtflutningar verið úr Þingeyjarsýslu, 28 °/o af fæddum, og úr Suður-
Múlasýslu, um þriðjungur fæddra. Innflutningur hefur, eins og áður er
sagt, verið mestur í Gullbringu- og Kjósarsýslu, 48 °/o af íbúum þar, fædd-
um innan lands, og þar næst í Mýrasýslu, 31 °/o.
Hér á undan hefur aðeins verið rætt um flutninga út úr eða inn í
sýslur og kaupstaði, en við úrvinslu manntalsins 1930 var ennfremur
tekið tillit til flutninga innan sýslnanna. Voru taldir sérstaklega þeir, sem
dvöldu í sama hreppi, sem þeir voru fæddir í. Er sú tala tilgreind fyrir
hverja sýslu í töflu XIII (í síðasta dálki á bls. 58). Með því að draga
þessar tölur frá tölunni í 3. dálki í 10. yfirliti fæst tala þeirra, sem
flust hafa burfu úr fæðingarhreppi sínum, en þó verið kyrrir í sömu sýsl-
unni. Hafa það alls verið 49 311 manns, sem dvalið hafa í sömu sýslu,
sem þeir voru fæddir í, en 34 986 í fæðingarhreppi sínum. Mismunurinn,
14 385 manns, hafa flust burt úr fæðingarhreppnum, en ekki út fyrir sýsl-
una. Eftirfarandi yfirlit sýnir, hve margir af hundraði þeirra, sem fæddir
voru í hverjum kaupstað og sýslu, dvöldu í kaupstaðnum eða sýslunni
og hve margir dvöldu í fæðingarhreppi sínum.
Kaupstadir: í kaup- staönum Kaupstaðir: í kaup- staönum
Reykjavík 84.3 Seyðisfjörður . . . . 43.9
65.3 69.3
ísafjörður 56 o Vestmannaeyjar . 76.2
76.2 Kaupstaðir 76 3
Akureyri 68.4
Sýslur: í fæðingar- hreppi í sysl- unni Sýslur: í fæðingar- hreppi í sýsl- unni
Gullbr,- og Kjósars. .. 35.7 43.9 Snæfellsnessýsla . 39.7 59.0
Borgarfjarðarsysla . .. 38.2 57.6 Dalasýsla .... 36.2 48.4
Mýrasýsla .. 35.1 53.1 Barðastrandasýsla .... 42.7 61.9