Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1937, Blaðsíða 66
64
Manntalið 1930
G. Trúarbrögð.
Confessions.
Við manntalið 1930 skiftust menn þannig eftir kirkjufélögum.
Karlar Konur Samtals Af þúsundi
Þjóðliirlija............. 48 677 50 211 98 888' 908.4
Fríkirkja ................ 4 113 4 357 8 470 77.8
Önnur trúfélög .... 267 454 721 6.6
Utan trúfélaga .... 485 297 782 ____7.2
Samtals 53 542 55 319 108 861 lOOO.o
1930 voru 3 fríkirkjusöfnuðir á landinu, einn í Reykjavík og grend,
annar í Hafnarfirði og Garðahreppi og hinn þriðji í Suður-Múlasýslu.
Þar sem fríkirkjuna greinir ekkert á við þjóðkirkjuna í trúarefnum,
þá töldust við manntalið aðeins 1503 menn ekki lútherskir, eða 13.8 af
þúsundi hverju. Þetta er þó miklu hærri tala en við undanfarandi mann-
töl. Við manntalið 1920 töldust þeir aðeins 463 eða 4.9 af þúsundi,
1910 288 eða 3.4 af þúsundi og 1901 159 eða 2.0 af þúsundi. Þeir
sem ekki töldust lútherskir við manntalið 1930 skiftust jafnt á karla og
konur (752 karlar og 751 konur), en þó var sá munur á, að mikill
meiri hluta kvennanna taldist til annara trúfélaga, en mikill meiri hluti
karlanna var utan allra trúfélaga. Þeir, sem töldust til annara
skiftust þannig á einstök trúfélög. Konur 1930 Karlar Samtals 1920
Aðventistar 149 280 429 167
Sjónarhæðarsöfnuður ') ... 21 49 70 »
Kristnir bræður 5 7 12 16
Hvítasunnusöfnuður 3 4 7 ■ 2
Baptistar 2 3 5 1
Aðrir mótmælendur 5 2 7 6
Kaþólskir 82 109 191 67
Sanúals 267 454 721 259
Af þeim, sem töldust til þessara trúfélaga 1930, voru 367, eða
rúmlega helmingur, í Reykjavík, en af þeim, sem töldust utan trúfélaga,
voru 453, eða nálega 3/s, í Reykjavík.
Nánara yfirlit um skiftingu þjóðarinnar eftir trúarbrögðum er í
töflu XXX (bls. 161) og í töflu XXXI (bls. 162) er sýnt, hvernig þeir,
sem ekki teljast til þjóðkirkjunnar né hinnar lúthersku fríkirkju, skiftast
eftir aldri, hjúskaparstétt og atvinnu.
1) þ. e. söfnuður A. Gook’s á Akureyri.