Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1949, Page 10
8'
Manntalið 1940
frá heimilum sinum 1. desembcr, þar sem sá dagur var orðinn nokkuð
almennur hátiðisdagur.
Manntalið náði ekki til brezka setuliðsins, sem vár hér á landi,
þegar manntalið fór fram, né heldur til skipshafna á erlendum skip-
um, sem stödd voru í höfnum hcr á landi.
Bráðabirgðayfirlit um mannfjöldann var birt í Hagtíðindum í marz
1941. Ýmsar niðurstöður manntalsins voru birtar í Hagtiðindum 1944
og 1945.
B. Stærð og vöxtur mannfjöldans.
Le nombre et Vaccroissement de la population.
1. Viðstaddur mannfjöldi og heimilismannfjöldi.
Populalion de fait et population de séjonr habiluel.
Við manntalið 2. desember 1940 var viÖstaddur mannf jöldi 121 164
manns. Kemur sú tala fram, þegar taldir eru allir þeir, sem viðstaddir
voru á hverjum stað aðfaranótt manntalsdagsins, hvar sem þeir annars
áttu heima. Af þessum mannfjölda voru 7 534 manns staddir um stund-
arsakir á manntalsstaðnum, svo að aðeins 113 630 áttu heima eða voru
til langdvalar á talningarstaðnum. Aftur á móti voru 7 844 manns taldir
vera fjarvcrandi frá heimili sínu manntalsdaginn, og að þeim viðhættum
verður hcimilismannfjöldinn (þ. e. mannfjöldinn talinn á sínum venju-
lega dvalarstað) 121 474 manns. Heimilismannfjöldi er svipaður og
heimilisfastur mannfjöldi, en þó ekki alveg sami, því að svo er fyrir mælt
í leiðbeiningum manntalseyðublaðsins, að maður, sein dvelur lengur en
hálft ár samfleytt á sama slað, skal ekki teljast þar staddur um stundar-
sakir, enda þótt hann eigi lögheimili annars staðar, og eigi skal hann
heldur tilfærður sem fjarverandi, ef hann er til lengri dvalar en hálfs
árs á öðrum stað, nema hann dvelji þar sér til lækninga eða stundi at-
vinnu fyrir heimilið. Kemur því margt skólafólk til þess að teljast á
þeim stað, þar sem það gengur í skóla, og enn fremur vetrarstúlkur,
þar sem þær dvelja yfir veturinn, þótt lögheimili eigi annars staðar.
Af öllum Iandsbiium voru þannig 6V2% fjarverandi frá heimili
sinu eða sínum venjulega dvalarstað talningardaginn. Er það tiltölulega
heldur meira en við næsta manntal á undan, er tilsvarandi hlutfall var
5%%• Af þeim, sem staddir voru hér við síðasta manntal, áttu 158
heima utanlands, en aftur á móti voru þá 172 manns, er hér áttu heima,
fjarverandi um stundarsakir í útlöndum. Mismunurinn á þessum töl-
um, 14, ætti i rauninni að vera mismunurinn milli viðstaddra og heim-
ilisfasta mannfjöldans, þ\í að þeir, sem eiga heima innanlands og staddir
eru innanlands utan heimilis sins, eiga að vera taldir á báðum stöðum,