Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1949, Síða 44
42'
Manntalið 1940
Rúml. % þeirra, sem teljasl starfandi í þessum flokki, eru við þjón-
ustustörf á heimilum sem vinnukonur eða ráðskonur. Það er eingöngu
þeim, sem hefur fækkað milli siðustu manntala, því að í öllum hinum
deildunum hefur orðið mikil fjölgun. En heimilishjúum hefur fækkað
mikið eða um 13%.
í töflu XXITI (bls. 172) hefur konum, sem starfa sem innanhúshjú,
verið skipt eftir atvinnu húsbóndans. Eftirfarandi yfirlit sýnir, hve mörg
innanhúshjú (vinnukonur og' ráðskonur) koma á hvert hundrað fjöl-
skylduheimila í hverjum atvinnuflokki. Til samanburðar eru settar tölur
frá næsta manntali á undan, sem nánast svara þar til.
Innanhúshjú
á 100 fjölskylduheimili
1940 1930
Landbúnaður .................................... 18 21
Fiskveiðar ..................................... 13 21
Iðnaður ........................................ 12 23
Samgöngur ...................................... 11 21
Verzlun ........................................ 31 49
Persónuleg þjónusta ............................ 12 -
Opinber þjónusta ............................... 34 56
Óstarfandi ..................................... 11 24
AUs 17 26
Yfirlit þetta sýnir, að tiltölulega langmest er uin innanhúshjú hjá
þeim, sem starfa við opinber þjónustustörf og verzlun. En það sýnir
líka, að mikil fækkun hefur orðið i öllum atvinnuflokkum frá næsta
manntali á undan.
Á öllu landinu koma að meðaltali 17 innanhúshjú á livert 100 fjöl-
skylduheimila, 18 í Reykjavik, kaupstöðum og sveitum, en 15 í kaup-
txinum með vfir 300 ibúa.
Opinber þjónusta. Þar lil töldust 7 011 manns 1940 eða 5.s% af lands-
mönnum. Við manntalið 1930 var sambærileg tala aðeins 4 527 eða 3.s%
af landsmönnum þá. Hefur því fólki, sem lifir á þessari atvinnu, fjölgað
um 55% milli manntalanna. Þessum atvinnuflokki hefur verið skipt í
4 deildir, og hefur tala framfærenda í þeim verið svo sem hér segir.
1940 1930
Atvinnu- Starfs- Verka-
rekendur menn fólk Samtals Samtals
Heilbrigðismál 94 414 419 927 465
Kennslumál, trúmál, listir, vísindi 120 1 023 119 1262 889
Landvarnir 20 16 36 62
Umboðs- og dómsmál og önnur þjónusta 33 712 60 805 409
Samtals 247 2169 614 3 030 1 825