Morgunblaðið - 18.08.2015, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.08.2015, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 8. Á G Ú S T 2 0 1 5 Stofnað 1913  192. tölublað  103. árgangur  FJÖLBREYTNI Í VERKUM OG FRÆJUM SÁÐ AKSTUR OG HASAR- MYNDAHETJA HESTAKONA MIÐLAR AF REYNSLUNNI BÍLAR EÐALHESTAR 10ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ 30 Ljósmynd/Árni Geirsson Þingvellir Aukið niturmagn og hækkandi hitastig í Þingvallavatni veldur áhyggjum.  Hækkandi hitastig og nitur- mengun hafa á undanförnum ára- tugum haft þau áhrif að flóra þör- unga hefur aukist og sjóndýpi minnkað í vatninu. Ólafur Haralds- son þjóðgarðsvörður á Þingvöllum segir að vatnið sé í góðu ástandi, en að þar hafi menn miklar áhyggjur. Hættan sé sú að hraði breytinganna taki kipp og að ásýnd vatnsins breytist til muna. Orsakavaldarnir eru m.a. taldir vera loftborin meng- un í Evrópu, frárennsli og aukin umferð í kjölfar fjölgunar ferða- manna. Þannig hafi þjóðgarðurinn beitt sér fyrir því að allt frárennsli sé keyrt frá Þingvöllum og til Reykjavíkur í skólphreinsistöðvar til þess að sporna við mengun út í vatnið. »6 Breytingar í Þing- vallavatni valda miklum áhyggjum Niðurgreiðsla skulda » Heildarskuldir ríkissjóðs minnka um 54 milljarða með uppgreiðslu eigin bréfa útgef- inna í bandaríkjadölum. » Skuldirnar hafa minnkað um 309 milljarða frá maí 2012. Baldur Arnarson Jón Birgir Eiríksson Heildarskuldir ríkissjóðs minnka um 54 milljarða króna eftir uppkaup rík- issjóðs á eigin bréfum útgefnum í bandaríkjadölum, að því er fram kemur í áætlun Lánamála ríkisins. Skuldirnar verða þá 63,8% af vergri landsframleiðslu og hafa lækkað um 2,5%. Eftir uppgreiðslu bréfanna verða þær 1.403 milljarðar króna. Áhrif hefur þó að spá Seðlabanka um verga landsframleiðslu árið 2015 virðist nokkuð rífleg. Til samanburðar hafa skuldirnar minnkað um 309 milljarða frá maí 2012, þegar þær voru mestar. Voru skuldirnar þá 1.588 milljarð- ar, eða 1.712 milljarðar á verðlagi dagsins í dag, miðað við breytingu á vísitölu neysluverðs. Gangi áætlun ríkisstjórnarinnar um afnám gjaldeyrishafta eftir, gæti hún einnig orðið til umtalsverðrar skuldalækkunar. Áður hefur komið fram að afnám haftanna gæti skilað 682 milljörðum í ríkissjóð sem nýttir yrðu í niðurgreiðslu skulda ef reikn- að er með frádráttarheimildum sem slitabú gætu nýtt sér. Ríkisskuldir minnka um 2,5%  Heildarskuldir ríkissjóðs eru 63,8% af VLF  Lækkunin nemur 54 milljörðum  Skuldir minnkað um 309 milljarða frá maí 2012  Afnám hafta hefur mikil áhrif M940 þúsund á hvern Íslending »9 Yngvi Pétursson, rektor Mennta- skólans í Reykjavík, hefur farið þess á leit við borgaryfirvöld að skólinn fái að taka inn nemendur ári fyrr, þ.e. eftir að þeir hafa lokið 9. bekk, og síð- an taki við þriggja ára framhalds- skólanám. Skólinn er annar tveggja framhaldsskóla á landinu sem enn bjóða upp á fjögurra ára nám til stúd- entsprófs og verði af því að MR taki inn nemendur fyrr verður nám við skólann áfram fjögur ár. Að öðrum kosti verður það þrjú ár. Hinn skólinn er Menntaskólinn á Akureyri og þar verður boðið upp á þriggja ára nám frá og með næsta hausti. Undanfarin tíu ár hafa um 20 nemendur úr 9. bekk átt þess kost á hverju ári að hefja nám í MA. Spennandi hugmyndir Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, segir þessa tillögu rektors MR ekki hafa verið tekna fyrir formlega í ráðinu og segir að sér sé ekki kunn- ugt um að aðrir framhaldsskólar í Reykjavík hafi komið formlega fram með viðlíka hugmyndir. „Mér finnst spennandi að skoða allar hugmyndir um aukinn sveigjanleika í kerfinu, allt snýst þetta um að ná því besta út úr hverjum og einum nemanda,“ segir Skúli. Fyrr í sumar óskaði Dagur B. Egg- ertsson, borgarstjóri í Reykjavík, eft- ir viðræðum við Illuga Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra um aukinn sveigjanleika á milli skóla- stiga. Dagur segist ekki hafa fengið formleg viðbrögð frá ráðherra. „En ég á ekki von á öðru en góðu sam- starfi um að þróa, skoða og ræða þessar hugmyndir,“ segir Dagur. annalilja@mbl.is »6 MR vill fá 10. bekkingana  Tveir framhaldsskólar eru ennþá með fjögurra ára nám til stúdentsprófs Morgunblaðið/Styrmir Kári MR Frá skólasetningu í gær. Talsverð úrkoma var í höfuðborginni í gær og útlit fyrir meira regn það sem eftir lifir vik- unnar. Þó má ætla að sólin láti sjá sig á miðviku- dag, en þess á milli verður talsverð væta. Þær eru mismunandi leiðirnar sem borgarbúar fara til að skýla sér fyrir regninu. Drengurinn með skrautlega höfuðbúnaðinn stóð regnið af sér á Ingólfstorgi í gær en ferðamennirnir við hliðina notuðust við hefðbundnar aðferðir. Allar leiðir notaðar til að skýla sér í rigningunni Morgunblaðið/Eggert Votviðri á höfuðborgarsvæðinu í gær  Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur og lektor við Háskóla Íslands, segir að stjórn- sýslukærum hafi fjölgað verulega eftir hrun og er það að hennar sögn birtingarmynd af vantrausti á stjórnsýslunni. Almenningur sé upplýstari og kröfuharðari en áður gagnvart hinu opinbera. Í innanríkisráðuneytinu var úr- skurðað í 111 kærumálum á fyrstu sex mánuðum ársins. Málsmeðferð- artíminn í þeim var að meðaltali um 9 mánuðir. Unnið er að styttingu málsmeðferðartíma í ráðuneytinu og er t.d. málshraði í sifjamálum nú um 6 mánuðir. »14 Stjórnsýslukærum fjölgaði eftir hrun  Útflutningsverðmæti til Rúss- lands hefur þrettánfaldast frá árinu 2004, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Rússland er í 6. sæti af 134 viðskiptalöndum og nam verðmæti útflutnings til Rússlands á síðasta ári rúmum 29 milljörðum króna sem er 5% af heildarútflutn- ingi landsins. Það er svipað og flutt var út til Frakklands og Bandaríkj- anna. Rússland er því í hópi mik- ilvægustu útflutningslandanna ásamt Hollandi, Bretlandi, Spáni, Þýskalandi, Frakklandi, Bandaríkj- unum og Noregi. 82% af útflutningi til Rússlands eru sjávarafurðir, að- allega makríll, síld og loðna. »16 Útflutningur til Rússlands jókst

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.