Morgunblaðið - 18.08.2015, Page 9
Heildarskuldir ríkissjóðs
Heimild: Lánamál ríkisins.
1,6
1,4
1,2
1,0
0,8
0,6
0,4
0,2
31.1.2008 31.7.2015
1.457.058
308.330
31.12.´09
1.312.992
31.12.´08
653.278
31.1.´09
901.837
31.5.´12
1.588.638í milljónum króna (í þúsundum milljóna á lóðréttum ás)
Skuldir ríkissjóðs 2011 - 2015
Samkvæmt Lánamálum ríkisins
*VLF = Verg landsframleiðsla. Miðað er við áætlaðan hagvöxt árið 2015 í Peningamálum, riti Seðlabanka Íslands.
Tölur um skuldir og skuldahlutfall þessa mánuði eru sóttar í sömu heimild. Tölur fyrir VLF árin 2011 til 2014 eru
hins vegar sóttar til Hagstofunnar. Þær miðast við stöðuna í árslok en ekki við stöðuna þessa mánuði.
**Tölur eru núvirtar miðað við vísitölu neysluverðs í júlí 2015.
ág.15 1.403 63,80% 2.200
feb.15 1.509 75,50% 1.537
ág.14 1.472 78,40% 1.496 1.993
feb.14 1.450 77,70% 1.489
ág.13 1.457 85,30% 1.514 1.881
feb.13 1.483 81,40% 1.556
ág.12 1.483 85,10% 1.608 1.780
feb.12 1.523 83,60% 1.675
ág.11 1.392 85,40% 1.571 1.703
feb.11 1.322 84,60% 1.546
Skuldir ríkissjóðs
í milljörðum kr.
Skuldir sem
hlutfall af VLF*
VLF
hvert ár*Núvirt**
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Heildarskuldir ríkissjóðs hafa
minnkað um 309 milljarða króna
frá því í maí 2012, á verðlagi dags-
ins í dag. Skuldirnar voru 1.588
milljarðar króna í maí 2012, eða
1.712 milljarðar á verðlagi nú, mið-
að við breytingu á vísitölu neyslu-
verðs. Til samanburðar segir í nýj-
ustu áætlun Lánamála ríkisins, að
heildarskuldir ríkissjóðs verði um
1.403 milljarðar eftir uppkaup rík-
issjóðs á eigin bréfum útgefnum í
bandaríkjadölum.
Lækkar um 54 milljarða
Þar segir að eftir uppkaupin hafi
heildarskuldir ríkissjóðs minnkað
um 54 milljarða króna, sem jafn-
gildi því að skuldirnar minnki um
2,5%, niður í 63,8% af vergri lands-
framleiðslu. Það lækkar skulda-
hlutfallið 2015 að spá Seðlabank-
ans um verga landsframleiðslu í ár
virðist nokkuð rífleg.
Skuldalækkunin frá maí 2012 til
þessa dags, sem er 309 milljarðar
á verðlagi í dag, eða 309 þúsund
milljónir, jafngildir tæplega 940
þúsund krónum á hvern lands-
mann, miðað við íbúafjöldann 1.
jan. 2015.
Í töflunni hér fyrir ofan til
vinstri eru endurbirtar tölur frá
Lánamálum ríkisins um þróun
heildarskulda ríkissjóðs. Tölurnar
eru með sex mánaða millibili frá
febrúar 2011 til ágúst 2015.
Skuldahlutfallið hverju sinni bygg-
ist á spá Seðlabankans á vergri
landsframleiðslu. Tölurnar fyrir
verga landsframleiðslu í dálkinum
lengst til hægri á sama grafi eru
hins vegar niðurstöðutölur Hag-
stofunnar hvert ár.
Munurinn á þessu er þó auka-
atriði í samhengi þessarar greinar.
Aðalatriðið er að heildarskuldir
ríkissjóðs eru að minnka sem hlut-
fall af vergri landsframleiðslu. Það
þýðir að þær eru að verða hlut-
fallslega minni byrði á ríkissjóði og
þar með skattgreiðendum. Það
varð þjóðinni til láns í efnahags-
hruninu að ríkissjóður var skuldlít-
ill þegar bankakerfið hrundi.
Þær upplýsingar fengust frá
Seðlabankanum að heildarskuld-
irnar væru fengnar með því að
leggja annars vegar saman inn-
lendar skuldir, á nafnvirði að við-
bættum áföllnum vöxtum og verð-
bótum, og hins vegar erlendar
skuldir á nafnvirði.
Eins og sjá má á hægra grafinu
hér fyrir ofan fara heildarskuldir
ríkissjóðs stigminnkandi. Þær eru
þó enn miklar. Skal tekið fram að
þetta eru heildarskuldir á nafn-
virði hverju sinni. Tölurnar hafa
með öðrum orðum ekki verið færð-
ar á verðlag nú.
Afnám hafta gæti skilað miklu
Til tíðinda gæti dregið í þessum
efnum ef áformuð áætlun um af-
nám hafta gengur eftir. Hefur
komið fram að sú áætlun gæti skil-
að ríkissjóði miklu í aðra hönd og
að það fé verði nýtt til nið-
urgreiðslu skulda.
Fram kom í Morgunblaðinu 9.
júní sl., daginn eftir að afnáms-
áætlunin var kynnt á fundi í
Hörpu, að aðgerðirnar gætu skilað
ríkissjóði 682 milljörðum, m.t.t.
frádráttarheimilda sem slitabú
gætu nýtt sér.
Alls 940 þúsund á hvern Íslending
Skuldir ríkissjóðs hafa minnkað um 309 þúsund milljónir á núvirði síðan þær urðu mestar 2012
Það jafngildir næstum milljón á hvern landsmann Skuldabyrði ríkissjóðs hefur minnkað mikið
Morgunblaðið/Ómar
Seðlabanki Íslands Skuldafjallið sem myndaðist eftir efnahagshrunið 2008 hefur lækkað mikið.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2015
SMÁRALIND • 2 HÆÐ
SÍMI 571 3210
Barnakuldaskór
Skólatilboðið gildir til 25. ágúst
Stífur
hælkappi
Loðf
óður
Rennilás
Grófur sóli
Skólatilboð 5.596
Verð áður 6.995
Stærðir 30-35
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Verðhrun
á útsölunni
Aðeins 5 verð
1.000.-
2.000.-
3.000.-
4.000.-
5.000.-
mbl.is
alltaf - allstaðar
Arngrímur Jó-
hannsson, flug-
maður og fyrr-
verandi forstjóri
flugfélagsins Atl-
anta, hefur verið
útskrifaður af
gjörgæsludeild
Landspítalans.
Arngrímur hefur
verið þar eftir
flugslys í Bark-
árdal í Hörgársveit.
Arngrímur hlaut alvarleg bruna-
sár víða um líkamann, á öðrum
handlegg og báðum fótleggjum
meðal annars, og hefur hann farið í
aðgerð vegna sáranna.
Vélin, sem var eins hreyfils sjó-
flugvél af gerðinni Beaver með kall-
merkið N610LC brotlenti á fjallinu
Gíslahnúk í Barkárdal og lést Arth-
ur Grant Wagstaff fæddur árið
1959. Hann var kanadískur rík-
isborgari. Flugvélin var flutt burt
af slysstað á mánudaginn, til
Reykjavíkur, og er nú til rann-
sóknar hjá Rannsóknarnefnd flug-
slysa.
Arngrím-
ur af gjör-
gæslu
Flugvélin enn í
rannsókn
Arngrímur
Jóhannsson