Morgunblaðið - 18.08.2015, Síða 18

Morgunblaðið - 18.08.2015, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Auðvitað erþað um-hendis að þurfa að hverfa frá meintri þátttöku í refsiaðgerðum gegn Rússum. Ekki vegna þess að rétt væri að hlaupa í þær, þegar hnippt var í Íslendinga þegar ákvarðanir annarra lágu fyrir. Eins og komið er væri hægt að saka Ísland um að rjúfa samstöðu og að skera sig úr leik. Sumir segja að með slíkri ákvörðun væri Ísland að sam- sama sig mannréttindabrotum. Það er eins og hver önnur vit- leysa. Viðskipti við útlönd yrðu ólík því sem nú er lægi sá mæli- kvarði jafnan til grundvallar. Vandinn er kominn til vegna þess að landið var án athugunar skrifað fyrir þátttöku í refsiað- gerðum án tillits til eðlis þeirra eða mats á hættum fyrir Ísland. Yfirvöld hafa viðurkennt að ónóg athugun fór fram á málinu áður en það var stimplað. Engin skýrsla lá fyrir um afleiðingar þess fyrir Ísland. Við bætist að engin greinargerð var lögð fram um það, hvaða refsiaðgerðum Ísland ætlaði að beita gagnvart Rússum! Hvernig gat það gerst, að utanríkisráðuneytið gerði til- lögur um efnhagslegar refsiað- gerðir gegn Rússum, legði þær fyrir ríkisstjórn og tilkynnti umheiminum samþykkt þeirra án þess að vita hvað í þeim fæl- ist? Sumir þingmenn virðast enn úti á túni í málinu. Pressan tek- ur þessi ummæli upp úr fésbók- arfærslu eins þeirra: „Að sjálf- sögðu tekur Ísland þátt í refsiaðgerðum Evrópusam- bandsins og vesturvelda gagn- vart Rússlandi. Ísland stendur stolt með vestrænum lýðræð- isríkjum. Gleymum því ekki að það er Rússland sem er að beita Ísland viðskiptaþvingunum. En ekki öfugt.“ Það er ekki heil brú í þessum texta. En viðurkenna má að hann er í góðu samræmi við málatilbúnað utanríkisráðu- neytisins. Íslensk yfirvöld létu ekki aðeins hjá líða að gera áætlun um hvaða refsiaðgerðir Íslendingar ætluðu Rússum. Þau hreyfðu ekki legg eða lið í þeim efnum. Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslands- stofu, segir í viðtali við Morg- unblaðið í gær að hann viti ekki til þess að ákvörðun um refsiað- gerðir hafi breytt einu eða neinu í innflutningi og útflutningi á milli Íslands og Rússlands! Hafði það ekki stórkostlega góð áhrif á stöðu mannréttindamála á hinu umdeilda svæði? En utanríkisráðherranum og embættismönnum hans tókst þó að sjá til þess að Ísland sætti refsiaðgerðum sem bíti fyrir- tæki, atvinnutækifæri, gengi og hag almennings. Ekki er snert við rússneskum hagsmunum, en hinir íslensku settir í uppnám. Var það íslenskur almenn- ingur eða gjaldeyr- isaflandi fyrirtæki sem stálu Krímskaga og storkuðu full- veldi stjórnarinnar í Kiev? Ráðherrann veittist að mönn- um sem voru sekir um það eitt, að benda á í hve miklar ógöngur stefna hans væri komin. Hann sagði þá ekki vilja taka þátt í „samfélagslegu verkefni“ og því varla hæfir til að sjá um útgerð í landinu! Hvaða samfélagslega verkefni á ráðherrann við? Ekki hefur hann lyft litla fingri gegn Rússum. Frá því að utanrík- isráðherrann fékk ríkisstjórn- ina til að samþykkja að Ísland fyrir sitt leyti beitti Rússland efnahagslegum refsiaðgerðum hefur ekki verið hætt við að kaupa eina skrúfu þaðan, hvað þá naglbít. Ráðherrann framlengdi einn og sjálfur „efnahagsþvinganir“ en þá stóð heldur ekki til að gera neitt með þær. Það er ömurlegt að horfa upp á, hvernig Rússar smána full- veldi Úkraínu og beita sér gegn því að vilji hennar megi ná fram að ganga. En hitt er einnig augljóst, að ESB og Bandaríkin hafa skilið Úkraínu eftir á köldum klaka. Hinar bútasaumuðu „refsiað- gerðir“ eru einungis plástur á sárið sem samviskubit vinsam- legu stórveldanna veitti Úkra- ínu. Það er óvenjulegt að sam- viskubit skilji eftir sig sár á öðrum, en þetta gerir það. Hvorki Bandaríkin né ESB trúa því að efnahagsþvinganir leiði til þess að Krímskaga verði skilað. Stjórnmálaelítan í Þýskalandi liggur ekki á því að það sé ekki raunhæft markmið. Markmið refsiaðgerðanna hafa verið smækkuð niður í það að „vopnahlésskilmálar frá Minsk fundunum“ hafi staðist nægi- lega lengi. Það er allt og sumt. Kannski ætlar íslenska utan- ríkisráðuneytið, með öfugum refsiaðgerðum sínum, að krækja í Krím af Rússum. Refsiaðgerðir Íslands birtast þannig, að ekki er svo mikið sem nartað í viðskiptalega hagsmuni Rússa, en Ísland er látið þola fjarhagslegt tap upp á 35 millj- arða árlega. Utanríkisráðuneytið íslenska bindur kannski vonir sínar við það, að þegar íslenska tapið hafi staðið í 10 ár eða svo og upp- hæðin sé komin upp í svo sem 300 milljarða króna, þá muni hinum viðkvæmu Rússum verða svo mikið um aumingjadóm Ís- lands að þeir geti ekki annað en skilað Krím aftur til Úkraínu. Það mætti veita mönnum frið- arverðlaun fyrir minna afrek en það. Kannski er Súkarnóstofn- unin tilkippileg. Erfiðast er að kyngja þegar menn þurfa að éta ofan í sig} Myndin orðin ljós U m nýliðna helgi tók RÚV upp á því að sýna hið sígilda snilldar- verk Some Like It Hot frá 1959, með Marilyn Monroe, Tony Curtis og Jack Lemmon í að- alrullum. Myndin sú er vitaskuld stanslaus skemmtun og eldist eins og eðalskoti. Ekki síst á hún vel upp á pallborðið um þessar mundir þegar Mad Men-útlitið er hámóðins. Nema hvað, vinkona mín tók til vopna á Fésbók og fann myndinni allt til foráttu og það sem meira er, megnið af þeim sem sáu ástæðu til að leggja við athugasemdir voru henni sammála. Það fannst mér sorglegt því ég hélt að gæði og skemmtanagildi góðra bíómynda glötuðust eigi heldur hefðu eilíft líf? Kannski eru það örlög allra bíómynda að eldast, úreldast og enda loks í glatkistunni, öllum gleymdar? Þetta minnir mig á skondið atvik fyrir röskum áratug. Síðkvöld eitt lagði ég í bíltúr og ók á milli vídeóleiganna í Hafnarfirðinum (ég bjó þá á Holtinu, sem heitir, ekki langt frá ísbjarnargryfju Sædýrasafnsins sáluga) og hugðist leita mér að rykfrakkaklæddum rökkurtrylli frá gullöld Hollywood; mig þyrsti í langa skugga, þokudrunga, vél- ráð, svikul tálkvendi og allt hitt sem prýðir góða og gamla sakamálamynd af film noir-skólanum. En ég greip í tómt á hverri leigunni á fætur annarri og hvergi var til gamalt og gott rökkurbíó. Loks var ég kominn nokkuð að heiman, nánar tiltekið á vídeóleigu við Flatahraun, sem ég held að ekki sé lengur í rekstri. Þegar inn var komið spurði ég af- greiðslustúlku hvort einhver hillan geymdi sérstaklega gamlar og góðar spennumyndir. Hún jánkaði því, snerist á hæl og ég hélt í humátt á eftir henni, vongóður nokk. Loks staðnæmdist hún og skimaði yfir tiltekna hillu, valdi loks mynd og rétti mér. „Þessi er alveg nokkuð gömul og spenn- andi,“ sagði hún án þess að blikna. Myndin? Die Hard hin fyrsta, frá árinu 1988. „Er hún að gera at í mér?“ hugsaði ég en áttaði mig svo á því að líkast til var myndin eldri en af- greiðslustúlkan, þegar allt kom til alls. Best að vera bara kurteis og sjá hvort ekki rætist úr. „Nei, veistu – ég var svona meira að spá í virkilega gamalt stöff, frá nítjánhundruð fjöru- tíu og eitthvað. Alveg svo gamalt!“ Stúlkan leit á mig grunsemdaraugum, hallaði loks undir flatt og brosti út í annað. „Ég held nú að það hafi ekki verið til vídeóspólur á þeim árum, ha?“ Ég álpaðist út í kvöldmyrkrið og út í bíl, of sleginn til að geta svarað fyrir mig. Vonandi heldur RÚV samt áfram að reyna að koma áhorfendum sínum til nokkurs bíóþroska því að dropinn holar steininn og allir geta lært að meta almennilegt bíó. Legg ég hér með inn óskalista sem samanstendur af Il Gattopardo, Touch of Evil, Double Indemnity, Mr. Deeds Goes to Town, Les Diaboliques, Dersu Uzala – bara svona til að byrja með. Af nægu er að taka. jonagnar@mbl.is Jón Agnar Ólason Pistill Algert bíó! STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Niðurstaða hvalatalningarHafrannsóknastofnunarí samstarfi við Fær-eyinga, Norðmenn og Grænlendinga bendir til þess að hrefnu hafi haldið áfram að fækka við Íslandsstrendur, en sambærileg talning árið 2007 sýndi að hrefnum hafði fækkað umtalsvert frá árinu 2001. Á sama tíma hefur langreyðum og hnúfubökum fjölgað í lögsögunni. Ný veiðiráðgjöf á næsta ári Gísli Víkingsson, einn leiðang- ursstjóra í hvalatalningaleiðangri Hafrannsóknastofnunnar, segir að unnið verði úr gögnunum, sem feng- ust úr leiðangrinum, í vetur. Í fram- haldinu verði lögð fram ný veiðiráð- gjöf sem tekur í gildi fyrir næsta ár. Talningin fer fram úr flugvél og seg- ir Gísli að það taki nokkurn tíma að slá inn gögnin og reikna út stofn- stærðina. Í fréttatilkynningu frá Haf- rannsóknastofnun kemur m.a. fram að hrefnur, sem mest er veitt af í lögsögunni, voru um 40 þúsund um aldamótin en þær voru áætlaðar 20 þúsund árið 2007. Fór veiðiráðgjöfin þá úr rúmlega 400 dýrum í 229 dýr ár hvert. ,,Við teljum að þetta tákni ekki breytingu í stofnstærð, heldur er um að ræða breytingu í útbreiðsl- unni innan stofnsvæðisins, sem nær frá Grænlandi, til Íslands og alveg til Jan Mayen,“ segir Gísli. Hann segir að hlýnun sjávar sé líklega ástæða þess að minna sést af hrefnu við Íslandsstrendur og það hafi haft áhrif á mikilvægar fæðu- tegundir, þá sérstaklega á sandsíli og loðnu. Hann segir að eftir hrun á sandsílastofninum sem varð árið 2005 hafi hrefnan meira sótt í þorsk- fiska og síld. ,,En stór hluti stofnsins hefur sennilega elt loðnuna úr lög- sögunni,“ segir Gísli. Talningarnar eru í samstarfi við Grænlendinga og Norðmenn og að sögn Gísla er eftir að telja hvali við austurhluta Grænlands. „Þar er gjarnan mikil þoka frameftir sumri og því telja þeir þar í ágúst og sept- ember,“ segir Gísli. Heildarveiði úr stofninum und- anfarin ár hefur verið lítil. ,,Þó ís- lenski kvótinn sé 229 dýr þá hefur veiði verið vel innan við hundrað dýr. Á síðasta ári voru ekki veiddar nema um 20 hrefnur,“ segir Gísli. Þá segir Gísli að við austurhluta Grænlands hafi einungis verið veiddar um tíu hrefnur en Norð- menn hafi einskorðað veiðar sínar við strendur Noregs. Hrefnurnar þar eru taldar úr öðrum stofni en þeim sem er við Jan Mayen. Stofn eins og fyrir tíð veiða Talningar sem þessar fóru fyrst fram árið 1987 og voru síðan end- urteknar árin 1989, 1995, 2001 og 2007. Þær hafa sýnt talsverðar breytingar í fjölda og útbreiðslu hvala við landið síðastliðin 20 ár. Þannig hefur fjöldi langreyða aukist talsvert, sérstaklega vestur af land- inu. Þá sýnir þessi nýja talning að hnúfubakar eru einnig fleiri en í síð- ustu mælingu. „Langreyði hefur fjölgað jafnt og þétt frá fyrstu taln- ingu árið 1987. Áætluð tala er 20-25 þúsund dýr núna eftir aldamótin. Sú fjölgun hefur verið mest fyrir vestan í Grænlandshafi, milli Íslands og Grænlands, þar sem töluverð hlýnun hefur orðið. Þegar stofnsvæðið er skoðað í heild þá eru bæði hrefna og langreyður taldar vera nálægt þeirri stofnstærð sem var áður en hval- veiðar hófust í heiminum,“ segir Gísli. Hrefnan hefur leitað úr lögsögunni Morgunblaðið/Jim Smart Skýtur upp kollinum Minna er af hrefnu í íslenskri lögsögu en í fyrri mælingum. Áætlað er að hún hafi í auknum mæli flutt sig um set. Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Hrefnu- veiðimanna ehf, segir að hrefnuveiðar gangi vel. „Þær hafa ekki gengið betur en síð- an árið 2010,“ segir Gunnar. Hann segir að bátar fyrirtæk- isins hafi veitt 28 hrefnur í Faxaflóa það sem af er sumri. Hafa bátarnir ekkert veitt það sem af er ágústmánuði en fóru af stað að nýju í gær- morgun. „Við tókum 24 hrefn- ur allt árið í fyrra. Þá byrj- uðum við í apríl, en núna lentum við í því að geta ekki byrjað fyrr en í júní vegna verkfalls dýralækna. Því erum við búnir að veiða mun meira og á styttri tíma en allt árið í fyrra,“ segir Gunnar. Hann segir að vertíðinni muni brátt ljúka en það fari eftir veðri og vindum. Ekki gengið betur í 5 ár HREFNUVEIÐAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.