Morgunblaðið - 18.08.2015, Síða 25

Morgunblaðið - 18.08.2015, Síða 25
Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2015 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Boðinn Brids og kanasta kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 Leikfimi kl. 10.40, kaffí, dagblöð og hádegisverður. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14. Garðabær Bútasaumur kl. 13, Bónusrúta kl. 14.45 frá Jónshúsi. Heitt á könnunni frá kl. 9.30-16, meðlæti selt með síðdegiskaffinu kl. 14-16. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 9-16. Perlusaumur kl. 9-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10, ganga um hverfið kl. 10.30. Starf Félags heyrnarlausra kl. 11-15. Opnar vinnustofur og heitt á könnunni. Gjábakki Handavinnustofan opin, hádegisverður kl. 11. 40, jafnvægisþjálfun kl. 14, létt hreyfing kl. 15. Hraunbær 105 Kaffi á könnunni og spjall kl. 8.30, allir velkomnir. Opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9. Morgunleikfimi kl. 9.45. Botsía kl. 10.30. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, molasopi í boði til kl. 10.30, blöðin og púsl liggja frammi, leikfimi kl. 9.45, púttað kl. 10.30, matur kl. 11.30, kaffi kl. 14.30, baðþjónusta fyrir hádegi, fótaaðgerðir, hársnyrting. Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, myndlistarnámskeið kl. 9, kennari er Margrét Zóphóníasdóttir, leikfimi á RUV kl. 9.45 og slökun, Bónusbíll kl. 12.40, brids kl. 13, síðdegiskaffi kl. 14:30, allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790. Norðurbrún Morgunkaffi kl. 8.30. Útskurður kl. 9. Morgunleikfimi kl. 9.45. Morgunganga kl. 10. Hádegisverður kl. 11.30-12.30. Sléttuvegur 11-13 Opið frá kl. 8.30-16. Morgunkaffi, dagblöð og samvera kl. 8.30. Framhaldssaga kl. 10. Hádegisverður kl. 11.30. Handavinna kl. 13-16. Kaffi kl. 14.30. Blöð, skák og púsl. Vesturgata 7 Föstudaginn 21. ágúst kl. 13-14 sungið við flygilinn við undirleik Gylfa Gunnarssonar. Kl.14-14.30 kaffiveitingar. Kl.14.30- 15.30 dansað við lagaval Halldóru, athugið breyttan tíma. Allir velkomnir óháð aldri. Vitatorg Spilum félagsvist í dag kl. 13.30, allir velkomnir. Skráning er hafin í vertrarnámskeiðin. Í boði er leirmótun, postulínsmálun, glerbræðsla, bútasaumur og bókband. Upplýsingar og skráning er í afgreiðslu og símum 411-9450 og 822-3028. Auglýstur aðalfundur Ottó A. Michelsen ehf. sem fara átti fram föstudaginn 14. ágúst reyndist ekki ályktunarbær vegna ófullnægjandi mætingar. Mun aðalfundurinn fara fram þriðjudaginn 25. ágúst á skrifstofu félagsins í Klettagörðum 23 klukkan 17:00. Dagskrá verður samkvæmt fyrri auglýsingu. Tillögur eru aðgengilegar á skrifstofu félagsins. Aðalfundarboð Ottó A. Michelsen ehf. Tilkynningar Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn FASTEIGNA- VIÐHALD Við þjónustum þig með lítil sem stór verk. Tímavinna eða tilboð. johann@jaidnadarmenn.is S. 544-4444/777-3600 www.jáiðnaðarmenn.is Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Verkfæri Giftingar- og trúlofunarhringar frá ERNU Handsmíðuð hringapör úr silfri með alexandrite-steini sem gefur mikið litaflóð. Verð 27.500 á pari með áletrun. ERNA, Skipholti 3, sími 5520775, www.erna.is Vélar & tæki Bílalyftur - Bátavélar - Rafstöðvar - Suðuvélar - Plasma Eigum á lager á fínu verði; Everet og Bendpak bílalyftur, DEK og Deutz rafstöðvar 10-15-30-50 kw. Smárafstöðvar 2,5 og 5 kw diesel. www.holt1.is S. 8956662 4356662 Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Þjónustuauglýsingar 569 1100              Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga Þótt húmi um hauður og voga, mun himinsins stjörndýrð loga um ást okkar, yndi og fögnuð, þótt andvarans söngrödd sé þögnuð. (Tómas Guðmundsson) Snorri, Halla Karen og litli bumbubúinn. Í dag kveð ég elskulegan afa minn með miklum söknuði. Afi var einn sá jákvæðasti og þolinmóðasti maður sem ég hef kynnst. Hann hafði einstakt lundarfar og tók alltaf á móti fólki fagnandi með opnum örm- um. Hann hafði góða nærveru sem gerði það að verkum að fólki leið vel í kringum hann og átti auðvelt með að ræða hin ýmsu mál. Allir fengu þá tilfinningu að þeir væru sérstakir í hans augum því hann gaf fólki góðan tíma og sýndi því ávallt áhuga. Þrátt fyrir að hafa náð 87 ára aldri átti hann svo margt ógert. Hann og amma eyddu langmest- um tíma sínum síðustu ár í fal- lega sumarbústaðnum sem þau hafa verið að byggja saman. Ég leyfi mér að segja að það séu ekki margir á hans aldri sem vinna 120% vinnu alla daga, en það gerði hann svo sannarlega. Hann var algjör dugnaðarforkur með líkama á við sextugan mann. All- an liðlangan daginn vann hann við að klára bústaðinn með svo mikilli natni. Það var sko ekki sama hvernig hlutirnir voru gerðir, það varð að gera þá full- komna. En þannig var afi ein- mitt, það sem hann tók sér fyrir hendur gerði hann af mikilli vandvirkni og þolinmæði. Ég á margar góðar minningar sem ég varðveiti nú í hjarta mínu. Afi var mikið náttúrubarn og hafði gaman af því að njóta úti- verunnar og m.a. ferðast um landið, fara í göngur og veiðiferð- ir. Eins hafði hann gaman af því að fara í útilegur og berjamó þar sem fleiri lítrar af berjum voru tíndir hverju sinni. Í þessum ferðum var iðulega farið á af- skekkta staði þar sem við stór- fjölskyldan gátum verið saman í næði og átt stórskemmtilegar stundir saman. Þegar ég stund- aði nám í hjúkrunarfræði við HÍ dvaldi ég af og til hjá ömmu og afa. Þetta er tími sem ég er svo þakklát fyrir. Við afi vorum góðir félagar. Þrátt fyrir að búa í sitt hvoru bæjarfélaginu héldum við góðu sambandi. Það kom oftar en ekki fyrir að ég var að hugsa til hans þegar síminn hringdi og þar var hann á línunni, bara til að spjalla og athuga hvernig við hefðum það. Afi var afar barngóður maður með einstakt lag á börnum. Kennslu-, tónlistar- og leiklistar- hæfileikar hans fengu að njóta sín í samvistum við börn. Þær eru fjölmargar stundirnar þar sem afi tók upp munnhörpuna og spil- aði af fingrum fram við hin ýmsu tækifæri, hann var hrókur alls fagnaðar. Ég, Andri og börnin mín erum þakklát fyrir allar þær samveru- stundir sem við höfum fengið með honum. Við Andri erum sammála um það að ef það er ein- hver sem hefur kennt manni að lifa lífinu hvern einasta dag og horfa ávallt jákvætt fram á veg- inn þá er það afi Sigurþór. Hann sýndi og sannaði það að aldur er afstæður. Hann var ungur í anda, var vel upplýstur um málefni líð- andi stundar og opinn fyrir ýmiss konar nýjungum. Elsku amma mín, ég sam- hryggist þér innilega, missir þinn og söknuður er mikill. Ég hugga mig við og ég trúi því að afi vaki yfir okkur og gætir þess að allt gangi vel. Hann vill ekki að við höfum áhyggjur því það var ein- mitt það sem hann sagði ávallt ef eitthvað bjátaði á: „ekki hafa áhyggjur, þetta verður allt í lagi.“ Guð blessi og varðveiti þig elsku afi minn. Þín, Anna Þóra. Við aringlæður and- ans myndir skína sem ennþá væri ég hjá þér lítið barn, því ennþá man ég móðurhendur þín- ar, sem margs sinnis þú hélzt við hvílu mína og vildir styðja og verja um lífsins hjarn. Frá þér er allt sem hef ég dýrast fundið, sem er mér meira virði en gull í sjóð, það hefur mörgu bjargi burtu hrund- ið, þín bænarorð við takmörk lífsins bundið, þín ráð mér ávallt reyndust holl og góð. Ég man er barn hjá bænum lága heima, ég barst í leik og tíndi blómin fín mér finnst svo ljúft um liðna tíð að dreyma, og langar allar myndirnar að geyma, en þó er ætíð efst í huga þín. (Guðmundur Jónsson frá Hyrningsstöðum) Þinn sonur, Halldór. Elsku fallega amma mín. Hjartað mitt er svo tómt eft- ir að þú fórst, ég er búin að kvíða svo fyrir þessari stundu í svo mörg ár og reynt að vera tilbúin en ég gat það ekki. Þú, elsku amma mín, hefur alltaf verið mín fyrirmynd í líf- inu, mitt markmið er að vera eins amma og þú varst elskan mín. Ég var svo heppin að búa hjá þér og yndislega afa mínum fyrstu árin, og minningar það- an eru dásamlegar. Þegar ég, stelpan ykkar, eins og afi kall- aði mig mátti gramsa í potta- skápnum og fékk að borða kleinurnar heitar. Þú lést mig alltaf finna að ég væri svo dýr- mæt og góð, elsku amma mín, eins og þú gerðir við öll barna- börnin. Ástin og það sem þú og elsku afi áttuð í öll þessi ár er eitthvað sem allir vilja upplifa á lífsleiðinni, ég er svo þakklát í hjartanu mínu fyrir að þið hafið hitt hvort annað. Ást ykk- ar og hjónaband í öll þessi fal- legu ár er einstakt og öll ykkar fallegu börn. Ég hef oft sagt það, elsku amma mín, og við þig líka að ég vildi að ég hefði alla þína eiginleika, en ég ætla að lifa restina af mínu lífi með þig í huga. Eins og ég var mik- ið með þér í eldhúsinu þá skil ég ekki að ég hafi ekki lært að Guðrún Þórunn Árnadóttir ✝ Guðrún Þór-unn Árnadóttir fæddist 9. febrúar 1923. Guðrún lést 21. júlí 2015. Útför Guðrúnar Þórunnar fór fram 30. júlí 2015. elda svona góðan mat eins og þú, en ætli ég hafi ekki bara verið of upp- tekin við að borða frá þér, amma mín. Og svo á Bjarkó, ef ég var að gera eitt- hvað sem ég átti ekki að gera, þá sagðir þú ekkert. En þegar ég var að kveðja þá fylgdir þú mér inn í þvottahús og þá vissi ég að það væri eitthvað. En það var bara rætt með þinni fallegu rödd, aldrei skammir eða hækkaður rómur, bara fal- lega góðmennskan þín. Ég á í hjarta mínu yndislegar minn- ingar um ferðalögin frá Patró til Hyrnó þegar byrjað var að gera það upp, þér var alveg sama um lætin í okkur krökk- unum, þú hélst alltaf ró þinni. Þetta voru svo dásamlegar ferð- ir, hliðin sem varð að opna, við krakkarnir alltaf velkomnir með og drekkhlaðinn bílinn. Ég get haldið áfram endalaust og lang- ar ekki að hætta að skrifa þér, amma mín, það er mér einhver huggun. Ég á svo erfitt með að kveðja þig og vil það ekki. Alltaf þegar ég hugsa til þín, elsku amma, þá koma upp fal- legu hendurnar þínar að strjúka hárið mitt og mér fannst ég öruggasta og heppnasta stelpan í heiminum, friðurinn sem kom yfir mig – þetta róaði mig svo mikið og hugsunin um þetta gerir það ennþá og á alltaf eftir að gera. Fallega og góða brosið þitt og hvað þú tókst öllu fólki fal- lega og trúðir alltaf á það góða í öllum, það mættu fleiri vera eins og þú, amma mín. Ég sakna þín svo sárt, amma, að ég skrifa þetta dofin og tóm og hrædd. Það er svo margt sem mig langar að segja þér og þakka fyrir og síðan þú kvaddir þá er hugur minn búin að vera allur hjá þér, amma, og allar minningarnar um þig og hvað mig langar svo heitt að geta tekið utan um þig einu sinni enn, eða fá bara eitt bros. Ég er þakklát og stolt yfir að hafa verið stelpan þín og að bera nafnið þitt, ég er þakklát fyrir þau 41 ár sem þú varst í mínu lífi og þú verður það alveg til enda hjá mér, amma mín. Ég elska þig amma mín og get ekki kvatt þig með orðum, tárin mín og að hugsa til þín gera það. Við höfði lútum í sorg og harmi og hrygg við strjúkum burt tárin af hvarmi. Nú stórt er skarð í líf okkar sorfið því fegursta blómið er frá okkur horfið. (Sigfríður Sigurjónsdóttir) Stelpan þín, Guðrún Ósk. Elsku Inga mín. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, Ingibjörg Jóhannsdóttir ✝ Ingibjörg Jó-hannsdóttir fæddist 24. sept- ember 1925. Hún lést 22. júlí 2015. Útför Ingibjargar fór fram 29. júlí 2015. þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Minning þín mun alltaf lifa. Með tár- um kveð ég þig. Þín vinkona og frænka, Steinþóra Ingimarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.