Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1988, Síða 9
Formáli
Preface
Skýrsla sú um forsetakjör 25. júní 1988, sem hér birtist, er hin 30. í röð útgefinna
skýrslna um kosningar á íslandi. í C-deild Stjómartíðinda árið 1882 var birt skýrsla um
alþingiskosningamar 1880 og aukakosningar 1881. Skýrslugerðin féll svo niðureftir það,
uns Klemens Jónsson samdi eftir fáanlegum heimildum skýrslu um allar almennar þing-
kosningar 1874-1911, og birti í Landshagsskýrslum 1912. Við stofnun Hagstofunnar árið
1914 tók hún við gerð kosningaskýrslna og tóku fyrstu skýrslumar til alþingiskosninga
árin 1908-1914 og vom birtar í ritröðinni Hagskýrslur íslands. í þeirri ritröð hafa verið
gefin út 28 rit um kosningar. Af þeim em 22 um 27 almennar alþingiskosningar, fjögur
um forsetakosningar og tvö um þjóðaratkvæðagreiðslur. Skýrslur um þrjár aðrar
þjóðaratkvæðagreiðslur fylgdu skýrslum um alþingiskosningar sem fóm fram á sama
tíma, en fyrir kosningum landskjörinna þingmanna 1916-1930 og aukakosningum var
gerð grein í skýrslu um næstu almennar alþingiskosningar á eftir. Auk þessa hefur
Hagstofan tekið saman skýrslur um sveitarstjómakosningar 1930-1986 og birt í Hag-
tíðindum.
Skýrslur um kosningar hafa breyst talsvert í áranna rás, þótt skýrslugerðarefnið hafi
verið hið sama, og hefur það fyrst og fremst ráðist af breytingum á kosningalögum og
kjördæmaskipan. Töfluhluti þessarar skýrslu er óbreyttur frá skýrslunni um næsta
forsetakjör á undan, árið 1980, en inngangshlutinn er aukinn frá því sem þar var, því að
yfirlit em talsvert fleiri. Er þessi skýrsla að því leyti framhald skýrslunnar um síðusm
alþingiskosningar, árið 1987.
Heimildir þær um forsetakjör 25. júní 1988, sem þessi skýrsla byggist á, em eftir-
farandi:
1. Tölur um kjósendur á kjörskrá og greidd atkvæði em eftir skýrslum undirkjör-
stjóma, sem þær gera á eyðublöð, sem Hagstofan lætur í té.
2. Upplýsingar um frambjóðendur, tilskilda tölu meðmælenda og framlagningu
kjörskráa em eftir auglýsingum forsætisráðuneytis og dómsmálaráðuneytis þar að
lútandi.
3. Töflur um kosningaúrslit era fengnar úr skýrslu Hæstaréttar.
Á Hagstofunni hefur Guðni Baldursson, deildarstjóri, annast skipulagningu og gerð
þessarar skýrslu og búið hana til prentunar.
Hagstofa íslands, í ágúst 1988
Hallgrímur Snorrason