Skólavarðan - 01.09.2004, Síða 6

Skólavarðan - 01.09.2004, Síða 6
6 GESTASKRIF byggð eru á skýrslu hans eiga að hvetja hann til dáða í samkeppni við kollega sína, ekki síst á sviði rannsókna. En ger- ist það í reynd? Er hægt að tala um sam- keppni í ólíkum vísindagreinum sem hafa ólík markmið? Með hvaða hætti er unnt að bera saman og meta rannsóknir á ör- verum leirhvera í Námaskarði og á sálm- um séra Hallgríms Péturssonar? Er ekki verið að þrengja rannsóknarhugtakið og gera það einsleitt með því að bera saman hið ósambærilega? Fyrir kemur einnig að vægi einstakra þátta í starfi kennarans er breytt og virðist tilhneigingin vera sú að minnka vægið. Með öðrum orðum, gefa færri stig fyrir ákveðna þætti. Kerfi af þess- um toga er því teygjanlegt í hvora áttina sem er og veldur sá er valdið hefur. Niðurstöður úr kennslukönnunum geta gefið vísbendingu en ekkert umfram það. Ekki verður annað séð en að nemendur taki þátt í þeim af fyllstu samviskusemi, þó að draga megi í efa að nemar á fyrsta ári séu vanir einkunnagjöf eða hafi til að bera þekkingu á kennslukröfum við há- skóla. Á hinn bóginn hafa þeir fyllsta vit á „viðmóti" kennarans, en það er eitt af atriðunum sem um er spurt. Vilji er fyrir hendi til að betrumbæta kannanirnar og hefur spurningum ósjaldan verið breytt, jafnvel einkunnaskalanum, en einmitt af þeim ástæðum má spyrja sig um raunveru- legt gildi þeirra þegar til langs tíma er lit- ið. Niðurstöðurnar eru síðan varðveittar og stundum notaðar í tengslum við dóm- nefndarstörf. Svo virðist sem dómnefnd- um sé veittur aðgangur að þeim. Ég veit ekki til að Háskóli Íslands hafi sett sér regl- ur um varðveislu þessara gagna. Hitt veit ég að samkvæmt lögum verður að eyða gögnum úr öðrum könnunum af svipaðri gerð innan ákveðins tíma. Kennslukannan- ir eru gerðar á einstaklingsgrundvelli og ætti einstaklingurinn að vera upplýstur um hvernig á að geyma gögnin, hversu lengi og hverjir eigi að hafa aðgang að þeim. En þarna virðist vera misbrestur á. Starfsmannasamtölin eru ný af nál- inni og þess vegna of snemmt að segja til um hvers megi af þeim vænta. Þó svo að kennarinn fái tækifæri til að ræða við deildarforseta sinn um stöðu sína í deild- inni, og ef til vill bera upp við hann kvart- anir af einhverjum toga, er dálítil hætta á að svona samtöl verði einhliða þar sem deildarforsetinn leiðir leikinn og er sá aðili er kallar kennarann á sinn fund. Auk þess á frammistaða kennarans í starfi ætíð að vera megininntak samræðnanna. Og þó svo að deildarforsetinn sé allur af vilja gerður að koma á framfæri umkvörtunum kennarans, er það undir öðrum komið en honum hvort úr verði bætt og minnka lík- urnar ef það kostar peninga. Deildarforset- ar eiga ekki lengur sæti í Háskólaráði. Þegar horft er til þeirra þátta er snerta gæðamat á störfum kennara við Háskóla Íslands, virðist sem um sé að ræða ofrausn er lítið eigi skylt við „skilvirkni". Nú má ekki skilja orð mín svo að ég sé mótfallin því að eðlilegt eftirlit sé haft með störf- um kennara, en öllu má ofgera. Eftirlitið bólgnar út eins og púkinn á fjósbitanum og ríkir óvissa um hvort það þjóni settu marki. Ekki er nóg að ganga út frá að svo sé. Eftirlit af þessum toga leiðir hug- ann að öðrum tímum, til að mynda Stóra- bróður hans Orwells, og byggist einmitt á hugmyndafræði. Þeirri sem kennd er við markaðshyggju. Þegar hugmyndafræði er annars vegar er oftar en ekki gengið á vit hennar án þess að skoða hvort hún sé not- hæf eða æskileg til ákveðinna hluta. Það er hins vegar gert á meginlandi Evrópu þar sem reynt hefur verið að sníða verstu vankantana af Thatcher-Reaganismanum sem enn ríður húsum hér á landi af full- um þunga. Hvað varðar alvöru gagnrýni á hann eða úrbætur höfum við dregist aft- ur úr um einn áratug eða meira. Við erum ekki eins nútímaleg og okkur er tamt að halda. En stóra spurningin er eftir. Hvað kost- ar þetta eftirlit? Á ég þá ekki síst við vinnu- stundir þær sem fara í það, bæði hjá kenn- urum og öðrum sem að eftirlitinu koma. Kennararnir eru margir og vinnustundirn- ar líka. Væri tímanum betur varið í annað? Væri fjármununum hugsanlega betur var- ið í annað? Ekki verður sagt að á umliðn- um árum hafi Háskóli Íslands fengið að ausa ótæpilega af auralindum. Á síðasta alþingi var lagt fram frum- varp til breytinga á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og áttu breytingarnar meðal annars að auðvelda það að segja starfsmönnum upp. Hverfa skyldi aftur í tímann um hálfa öld eða svo. Nútíminn býður stundum upp á óvænta fortíðardýrkun og snýr tímahjólinu við. Ekki veit ég hvað um frumvarpið varð, en ég er að nefna þetta vegna þess að frum- varpið er tímanna tákn. Svo virðist sem ríki það viðhorf að stofnanir lifi sjálfstæðu lífi burtséð frá fólkinu sem starfi við þær eða þurfi til þeirra að sækja. Stofnanir hafa orðið ímynd sem auglýsingastofur hafa ekki ósjaldan hjálpað til við að skapa. Það breytir hins vegar ekki þeirri bláköldu stað- reynd að stofnanir eins og háskólar eru bornar uppi af fólki, og verður að sjá til þess að það geti borið þær uppi af reisn. Óhóflegt eftirlit og skerðing á réttindum stuðla ekki að því. Ekki heldur óakademísk hugmyndafræði. Álfrún Gunnlaugsdóttir Höfundur er prófessor í bókmenntafræði og rithöfundur. SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004 Er hægt að tala um samkeppni í ólíkum vísindagreinum sem hafa ólík markmið? Með hvaða hætti er unnt að bera saman og meta rannsóknir á örverum leirhvera í Námaskarði og á sálmum séra Hallgríms Péturssonar? Er ekki verið að þrengja rannsóknarhugtakið og gera það einsleitt með því að bera saman hið ósambærilega?

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.