Skólavarðan - 01.09.2004, Page 11

Skólavarðan - 01.09.2004, Page 11
11 SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004 verulega sé verið að nota tækin í þágu námsins? „Það er stóra áskorunin okkar! Og hún felst í því að tryggja að tækin séu notuð eins og við ætlumst til og að nemendur nýti daginn rétt. Annars vegar eru þeir í venjulegum kennslustundum og hins veg- ar í opnum tímum sem oftast eru án mæt- ingaskyldu. Við höfum lagt ríka áherslu á að skóladagurinn sé samfelldur vinnudag- ur. Þar er ekkert gat og tími. Þetta á að vera venjulegur vinnudagur. Þessu verður að koma til skila og nemendur þurfa að tileinka sér þennan hugsunarhátt. En mig langar að bæta því við að á kynningarfund- um hefur þessi hugmynd fengið afar góðar undirtektir hjá nemendum. Þeir sjá það fyr- ir sér að ef þeir nýta tímann vel á daginn geti þeir verið búnir þegar þeir fara heim kl. hálf fimm. En við stærri verkefni, eins og þegar nauðsynlegt er að lesa heila bók, verða nemendur hér að vinna heimavinnu eins og aðrir.“ Guðbjörg sagði að nemendum yrði ekki gert að kaupa sér fartölvu. „Hins vegar veit ég að mjög margir þeirra hafa fengið sér tölvu. Nemendur hafa aðgang að tölvum í skólanum og við ætlum að vera með far- tölvur á vögnum eins og margir skólar hafa gert. Þannig að allir ættu að hafa óhindrað- an aðgang að tölvum í námi sínu.“ Leitið þið í smiðju hinna reyndu fjar- námsskóla, eins og til dæmis VMA og FÁ? „Við fáum þá til að taka nemendur fyrir okkur. Hér eru til nemendur sem eru búnir með 2-3 ár í framhaldsskóla og vantar ein- staka áfanga sem við höfum kannski ekki tök á að kenna. Hér er um að ræða fram- haldsáfanga eða sérhæfða áfanga. Þá geta þeir notfært sér fjarnám skóla eins og FÁ, VMA, FG eða IR.“ Stuðningur til að sporna við brottfalli Í frétt frá Hagstofunni í ágúst 2004 kem- ur fram að brottfall er minnst meðal nem- enda í fullu námi í dagskóla, eða 12,4%, en mest meðal nemenda í hlutanámi í fjar- námi eða 54,2%. Hluti af nemendum FSn eru í hópi þeirra síðarnefndu. Þessar töl- ur eru ekki hagstæðar þeim nemendum. Hvernig hyggist þið sporna við brottfalli? „Brottfall er alvarlegt vandamál,“ segir Guðbjörg. „Kannanir sýna að nemendurn- ir sem eru í algeru fjarnámi, fjarri skólan- um, séu brothættastir, það er mesta hætt- an á að þeir falli frá námi. En mér finnst við hafa góðar aðstæður til að halda utan um nemendur okkar og við höfum hugsað okkur að veita þeim stuðning. Nemendur verða með ákveðinn umsjónarkennara og þeir geta komið og leitað til kennaranna sem eru á staðnum og fengið stuðning hjá þeim, þó að þeir séu kannski ekki að kenna þeim. Kennararnir eru til staðar í opnum tímum og nemendur eiga aðgang að stuðningi þeirra þegar þeim hentar.“ Hvernig er ástatt í húsnæðismálum? Guðbjörg hlær þegar hún svarar þessu. „Það hefur gengið ótrúlega hratt að byggja húsið. Stóru kennslurýmin eru ekki tilbúin en aðalkennslurýmið verður til í janúar. Við fáum u.þ.b. helming hússins til afnota í upphafi skólaárs. Við leysum mál- in með því að nota hluta af aðstöðu kenn- ara undir kennslu til að byrja með. Anddyr- ið verður til dæmis notað sem vinnustaður fyrir nemendur og íþróttasalinn, sem er til- búinn, munum við nota til kennslu. Þetta verður svona í haust og verður ekki vanda- Kennarahópur FSn. frá vinstri: Sigríður G. Arnardóttir, Una Ýr Jörundsdóttir, Pétur Ingi Guðmundsson aðstoðarskólameistari, Hanna Jóhannsdóttir, Guðbjörg Aðalbergsdóttir sitjandi fyrir miðju, Alda Baldursdóttir, Berglind Axelsdóttir, Valgerður Ósk Einarsdóttir og Vilhjálmur Gunnarsson. Stóru grunngreinarnar eru kenndar í dreifnámi og fer kennslan fram í hefðbundnum kennslustundum og í opnum tímum. Forsendur fyrir því að reka svona skóla, sem er fámennur og býður upp á fjöl- breytt nám, er sú að fá til liðs við sig gestakennara sem geta komið og kennt einn og einn áfanga. FJÖLBRAUTASKÓLI SNÆFELLINGA

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.