Skólavarðan - 01.09.2004, Blaðsíða 12
12
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004
mál. Það eru allir af vilja gerðir til að láta
þetta ganga.
Mig langar að segja frá fyrirkomulag-
inu í líkamsræktarkennslunni,“ bætir Guð-
björg við. „Íþróttasalurinn er hundrað fer-
metrar. Við ætlum að innrétta hann sem
tækjasal og nemendur fara að eigin vild
í tækin. Þeir eiga að skrá sig eins og þeir
væru að stunda hverja aðra líkamsræktar-
stöð. Það verður engin hópkennsla þannig
að þetta er ekki bara í takt við tímann
heldur er þetta í anda þess skólastarfs sem
fram fer hér.“
Hvaða áhrif hefur stofnun framhalds-
skóla á mannlífið hér á Snæfellsnesi?
„Skólinn veldur ótrúlega miklum breyt-
ingum. Aldurshópurinn 16 - 20 ára hefur
varla verið hér á staðnum. Allir sem hafa
viljað ganga menntaveginn hafa orðið
að fara burtu. Reyndar með þeirri undan-
tekningu að útibú frá Fjölbrautaskóla Vest-
urlands á Akranesi hefur verið í Stykkis-
hólmi. Þar hefur verið hægt að taka fyrsta
námsárið í framhaldsskóla en með stofnun
þessa skóla hefur það verið lagt niður.“
Hvers vegna var skólanum valinn staður
í Grundarfirði?
„Heimamenn hafa barist fyrir stofnun
skóla hér í mörg ár og staðsetning hans
hér í Grundarfirði er dæmi um frábæra
samvinnu og samhug sveitarfélaganna á
Snæfellsnesi. Stærstu byggðakjarnarnir
eru Snæfellsbær, Grundarfjörður og Stykk-
ishólmur. Ef skólinn hefði verið í Stykkis-
hólmi væri rúmlega klukkutíma akstur
þangað frá Snæfellsbæ. Grundarfjörður
er einfaldlega sá, af þessum byggðakjörn-
um, sem er næst því að vera í miðjunni.
Staðsetning skólans hér lágmarkar aksturs-
tíma þeirra nemenda sem lengst þurfa að
fara og þess vegna var Grundarfjörður val-
inn.“ Aðspurð sagði Guðbjörg að skólabíll
færi á milli.
Það er ekki bara Kirkjufellið sem virðist
vera að taka tilhlaup. Guðbjörg og frísk-
legi kennarahópurinn hennar hefur þegar
stokkið af stað með yfir hundrað nemend-
ur. Stofnun Fjölbrautaskóla Snæfellinga
er bragarbót í menntunarmálum byggð-
arlagsins. Þar verður tæknin notuð til að
leysa þau vandamál sem mannfæðin óhjá-
kvæmilega skapar og það vantar ekkert á
að það er hugur í mönnum.
GG
Eina nýjung er vert að nefna og það er skólablogg. Margir kennarar sjá
rautt ef gemsa ber á góma og banna þá í kennslustundum en í skólablogg-
inu skipa þeir mikilvægan sess. Við verðum því að endurskoða viðhorf ið til
þessara tækja og viðurkenna að þau geta verið mikilvæg hjálpartæki
FJÖLBRAUTASKÓLI SNÆFELLINGA