Skólavarðan - 01.09.2004, Side 18
18
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004
Á aðalfundi félagsins sem haldinn er á
þriggja ára fresti er kosin fimm manna
nefnd sem myndar samninganefnd fé-
lagsins ásamt stjórninni. Fimm fulltrúar
eru til vara.
Samninganefndin er þannig skipuð: FG
Finnbogi Sigurðsson er formaður Félags
grunnskólakennara og samninganefnd-
ar félgasins. Finnbogi, sem er fyrrverandi
formaður Kennarafélags Reykjvíkur og
varaformaður FG, er margreyndur í samn-
ingamálum. Hann kenndi lengst af við
Fellaskóla.
Sesselja G. Sigurðardóttir er varafor-
maður FG. Hún er fyrrverandi formaður
Kennarafélags Reykjaness. Sesselja er
kennari við Öldutúnsskóla í Hafnarfirði.
Björk Helle Lassen gjaldkeri er formað-
ur Kennarafélags Austurlands og kennari
á Breiðdalsvík.
Fjóla Höskuldsdóttir er ritari FG en hún
var formaður Kennarafélags Kópavogs,
Seltjarnarness og Kjalarness. Hún er kenn-
ari í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi.
Þórður Á. Hjaltested er formaður Kenn-
arafélags Mosfellsbæjar, Seltjarnarness og
Kópavogs og kennari í Varmárskóla, Mos-
fellsbæ. Hann er nú aðalmaður í stjórn FG
í stað Guðrúnar Snorradóttur, námsráð-
gjafa í Lindaskóla í Kópavogi.
Varamenn í stjórn eru: Ásta Ólafsdótt-
ir, fyrrverandi formaður Kennarafélags
Vesturlands. Hún kennir nú við Seljaskóla.
Katrín Þ. Andrésdóttir fyrrverandir stjórn-
armaður í FG og kennnari við Vallaskóla
Selfossi. Elín Yngvadóttir, sem kenndi
áður við Hamarsskóla í Vestmannaeyjum
en kennir nú við Grunnskólann í Sand-
gerði og Svava Pétursdóttir formaður
Kennarafélags Reyjaness fram til síðasta
vors. Hún er kennari við Heiðarskóla í
Reykjanesbæ.
Þeir sem kosnir voru í samninganefnd-
ina á síðasta aðalfundi eru: Agla Ástbjörns-
dóttir kennari í Melaskóla í Reykjavík.
Hún var í samninganefnd við gerð síðustu
kjarasamninga. Ólafur Lárusson, kenn-
ari við Hamarsskóla í Vestmannaeyjum.
Hann kemur inn sem aðalmaður á miðju
tímabilinu í stað Guðfinnu Kristjánsdóttur
kennara á Fáskrúðsfirði. Sigmar Hjartar-
son, kennari við Ölduselsskóla í Reykjavík.
Hann var við gerð síðustu kjarasamninga.
Sigrún Ágústsdóttir, námsráðgjafi í Réttar-
holtsskóla í Reykjvik. Sigrún hefur marg-
sinnis komið að samningamálum.Unnur
Kristjánsdóttir, kennari í Sandgerði, var
formaður Kennarafélags Norðurlands og
var í samninganefnd á síðasta kjörtíma-
bili.
Varamenn í samninganefnd eru: Árni
Jón Hannesson, kennari í Varmárskóla og
Alfreð Guðmundsson, kennari í Árskóla á
Sauðárkróki.
Þrír úr hópi kjörinna fulltrúa í samninga-
nefnd hafa horfið til annarra starfa.
Samninganefnd
Félags grunnskólakennara.
Samninganefnd FG frá vinstri: Ólafur Lárusson, Elín Yngvadóttir, Unnur Kristjáns-
dóttir, Agla Ástbjörnsdóttir, Finnbogi Sigurðsson, Fjóla Höskuldsdóttir, Svava Pét-
ursdóttir, Sesselja Sigurðardóttir, Árni Ingi Hannesson, Sigrún Ágústsdóttir, Þórður
Hjaltested, Ásta Ólafsdóttir og Sigmar Hjartarson. Á myndina vantar: Björk Helle
Lassen, Katrínu Þ. Andrésdóttur og Alfreð Guðmundsson.
Þau standa í eldlínunni
er að kenna nemendum, meta nám þeirra
og stuðla að því að meginmarkmiðum
grunnskólalaga og aðalnámskrár um nám
og alhliða þroska nemenda verði náð. Til
þess að þetta verði vel af hendi leyst þarf
kennslstundafjöldi á viku að vera hæfileg-
ur, undirbúningstími fyrir hverja kennslu-
stund nægjanlegur sem og tími til þess
að vinna úr kennslunni svo sem að fara
yfir heimaverkefni nemenda og meta
stöðu og framfarir. Tíma fyrir samvinnu
við aðra kennara og foreldra nemenda
sem og tími til að sinna nemendum utan
kennslustunda verður að áætla með raun-
hæfum hætti.
Mikið vantar upp á að grunnskólakenn-
arar hafi nægilegan tíma til að sinna of-
angreindum þáttum eins og þeir telja
nauðsynlegt miðað við starfsskyldur sín-
ar. Kennsluskylda grunnskólakennara er
28 kennslustundir á viku eða 4 stundum
hærri en í framhaldsskóla. Undirbúnings-
tími þeirra fyrir hverja kennslustund er
aðeins 20 mínútur sem er meira en helm-
ingi minna en undirbúningstími framhalds-
skólakennara. Verulegar starfsskyldur við
annað en grundvallarþætti kennarastarfs-
ins í bundnum vinnutíma í viku hverri
ganga í mörgum tilvikum úr hófi fram.
Virðum kennarastarfið - leysum kjara-
deiluna
Við breytingar á starfsemi grunnskóla
og hækkun á þjónustustigi hans hef-
ur ekki verið gætt nægilega vel að því
að endurskilgreina störf kennara og slá
skjaldborg um grundvallarþætti kennara-
starfsins. Hætta er á því að sjálf kennslan,
undirbúningurinn, úrvinnslan og umsjón
með námi nemenda skipi ekki þann sess
sem því ber við þessi skilyrði. Gæði kennsl-
unnar líða fyrir það þegar til lengri tíma
er litið. Sveitarfélögin verða að horfast í
augu við þann kostnað sem fylgir því að
endurskilgreina kennsluskyldu grunnskóla-
kennara og tryggja þeim nægilegan undir-
búningstíma.
Ásættanleg laun og hæfileg kennslu-
skylda eru meginmálin í yfirstandandi
kjaradeilu. Því fyrr sem forsvarsmenn sveit-
arfélaga fara að skoða alvarlega í pyngju
sína og leggja raunhæfar úrlausnir á samn-
ingaborðið því líklegra er að komast megi
hjá því alvarlega ástandi sem skapast ef
starfsemi nær 200 grunnskóla í landinu
leggst niður um lengri eða skemmri tíma.
Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Félags fram-
haldsskólakennara
KJARAMÁL GRUNNSKÓLAKENNARA