Skólavarðan - 01.09.2004, Qupperneq 21

Skólavarðan - 01.09.2004, Qupperneq 21
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004 Lýðræði - jafnrétti - fjölmenning 21 Tækifæri í fjölbreyttu samfélagi: Aðalfyrirlestrar eru níu talsins og nánari upplýsingar um þá og fyr- irlesara eru á malthing.khi.is. Finn Thorbjørn Hansen, dósent í heim- speki menntunar við Kennaraháskóla Danmerkur Finn Thorbjørn Hansen hefur skrif- að margar bækur og greinar um hag- nýta heimspeki og heimspekilega ráðgjöf í skólum og öðru fjölmenn- ingarlegu umhverfi. Hann leiðir hópa sem vinna út frá sókratískri samræðu- aðferð og hefur stjórnað verkefnum á sviði innra gæðamats í skólum og öðrum stofnunum undanfarin ár. Tvær bóka hans, Kunsten at navigere i kaos - om dannelse og identitet i en multikulturel verden (Kroghs forlag, 2001) og Den sokratiske dialoggruppe - et værktøj til værdiafklaring (Gylden- dal, 2000) eru mikið notaðar af dönsk- um skólamönnum. Um þessar mundir stýrir hann rannsóknarverkefni um siðræna og lýðræðislega menntun í fjölmenningarskólum og er að leggja síðustu hönd á skrif bókar sem ber heit- ið At stå i det åbne. Pædagogik som en filosofisk praksis (Hans Reitzels for- lag). Guðrún Pétursdóttir félagsfræðing- ur og verkefnastjóri hjá fræðslu- og ráðgjafafyrirtækinu InterCultural Iceland Guðrún lauk MA prófi í félagsfræði frá Freie Universität Berlin árið 1990. Í náminu lagði hún sérstaka áherslu á fordóma og kynþáttahyggju, innflytj- endamál og fjölmenningarleg samfé- lög. Auk félagsfræðinnar lagði hún stund á fjölmenningarlega uppeldis- fræði við Institut für interkulturelle Erziehung við sama háskóla og lauk kennslufræði við Háskóla Íslands. Undanfarin sex ár hefur Guðrún starf- að á ýmsum sviðum er varða málefni innflytjenda, fyrst sem verkefnastjóri fræðsludeildar í Miðstöð nýbúa og Alþjóðahúsi, nú hjá fræðslu- og ráð- gjafafyrirtækinu InterCultural Iceland (www.ici.is). Hún hefur haldið fjölda námskeiða um fordóma og fjölmenn- ingarlega kennslu fyrir ólíka aldurs- hópa bæði innanlands og erlendis og hefur nú umsjón með Comenius sam- starfsverkefni um fjölmenningarlega kennslu. Hún er höfundur bókanna Fjölmenningarleg kennsla (1999) og Allir geta eitthvað - enginn getur allt (2003). MÁLÞING RKHÍ Dr. Gillian Klein, ritstjóri Race Equ- ality Teaching Dr. Gillian Klein er fædd í Suður- Afríku en býr og starfar í Englandi. Hún lauk doktorsprófi frá University of London, Institute of Education. Doktorsritgerð hennar fjallaði um þróun fjölmenningarlegs kennsluefn- is í skólum. Hún hefur starfað víða sem ráðgjafi um jafnrétti, kynþátta- hyggju og fjölmenningarlegt samfé- lag, m.a. á vegum fræðsluyfirvalda Lundúnaborgar (ILEA). Hún hefur unnið við að þróa menntastefnu fyr- ir fræðsluyfirvöld í Suður-Afríku og fyrir Evrópuráðið og kennt og flutt fyrirlestra um menntun, jafnrétti, kyn- þætti og lýðræði víða um heim, m.a. í Bandaríkjunum, Ástralíu, Suður-Afr- íku, Jamaika, Singapore og Bangkok. Klein starfar nú sem útgáfustjóri hjá Trentham Books og ritstjóri tímarits- ins Race Equality Teaching. Hún hefur skrifað margar bækur auk fjölda tíma- ritsgreina. Nýjasta bókin, Equal Mea- sures: bilingual and ethnic minority pupils in secondary schools (með Penny Travers) kemur út á þessu ári.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.