Skólavarðan - 01.09.2004, Page 25
25
ÍSLENSKUKENNSLA Á NETINU
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004
Íslenskunámskeiðið Icelandic Online
kom út í ágústlok. Það er notendum
að kostnaðarlausu og aðgengilegt á
netinu. Icelandic Online er mjög fjöl-
breytt námsefni og í samræmi við nú-
tímakennsluhætti í tungumálum, þ.e. í
anda tjáskiptamiðaðra eða kommúníka-
tífra aðferða í málakennslu. Að sögn
Birnu Arnbjörnsdóttur, málfræðings og
eins af umsjónarmönnum verkefnisins,
byggist námsefnið á tveimur grunnþem-
um en þau eru Náttúra og Menning.
Hvort þema er 45 klukkustundir með
900 gagnvirkum og myndrænum náms-
viðföngum.
„Annað þemað, Náttúra, er tilbúið en
hitt, Menning, kemur út í lok september.
Við höfum sérhannað hagnýtan málfræði-
grunn og fengið aðgang að orðabók sem
hvort tveggja eru aðlöguð að námskeið-
inu og málfærni nemenda. Við erum enn
að tengja menningarþemað við málfræði
og orðabók en það verður tilbúið í lok
september." Birna segir að vefurinn sé ætl-
aður háskólanemum, menntaskólanemum
og nemendum í efstu bekkjum grunnskóla
auk fólks sem hefur áhuga á íslensku máli
og menningu.
Fræðilegt gildi
Að sögn Birnu er námsefnið byggt á
fræðilegum grunni þar sem gengið sé út
frá því að fullorðnir læri tungumál með
öðrum hætti en börn, að þeir hafi gagn
af kennslu til að tala og nota málið rétt,
en börn á máltökualdri eigi auðveldara
með að læra a.m.k. talmálið af umhverfi
sínu. Leitast hefur verið við að hafa inni-
hald námsefnisins áhugahvetjandi og því
voru þessi þemu valin. Aðstandendur nám-
skeiðsins hafa fylgst vel með því sem er að
gerast í kennslu tungumála með tölvum og
telja að Icelandic Online eigi sér ekki hlið-
stæður, hvorki hér á Íslandi né erlendis.
Við hönnun efnisins var gengið út frá því
að markhópurinn hefði tamið sér ákveðn-
ar námsaðferðir við tungumálanám, þess
vegna hentar vefurinn þeim sem vilja læra
íslensku í sjálfsnámi. „Þar að auki,“ bæt-
ir Birna við, „hefur þessi vefur fræðilegt
gildi þar sem ætlunin er að nota hann til
að safna upplýsingum um það hvernig full-
orðnir læra íslensku og um það ferli að
tileinka sér beygingarmál, þá munum við
einnig fylgjast með því hvernig nemendur
nota netið til tungumálanáms. Þessar rann-
sóknir verða framlag okkar til alþjóðlegrar
umræðu um nám erlendra tungumála.“
Bygging vefjarins
Námsefnið er samfellt íslenskunám-
skeið og þar eru æfingar í málnotkun, mál-
fræði og eflingu orðaforða. Vefurinn er
byggður þannig að nemandinn velur sér
til dæmis þemað náttúra, innan þess eru
sex bálkar sem nemandinn fer gegnum.
Hver bálkur tekur fyrir sérstakt kennslu-
atriði og innan þess eru svo þræðir þar
sem hægt er að hlusta á tal, skoða mynd-
ir og leysa ýmsar þrautir og verkefni sem
tengjast efninu. Eftir að verkefnin hafa
verið leyst er hægt að láta fara yfir þau og
meta árangurinn strax. Í lok hvers bálks er
samantekt sem sýnir nemandanum hvort
hann hafi náð tökum á efninu. Notand-
inn getur kallað fram orðabókina og mál-
fræðiskýringar hvenær sem er. Hjálparmál
eru enska, þýska og franska. Vefurinn er
lipur, einfaldur í notkun og prýddur miklu
myndefni.
Nýjasta tækni
Nýjasta tækni er nýtt og er mikið af
gagnvirku efni sem gerir sjálfsnám auð-
velt.
Námskeiðið er alfarið þróað við Há-
skóla Íslands í samstarfi íslenskuskorar,
Stofnunar Sigurðar Nordals, Hugvísinda-
stofnunar, Kaupmannahafnarháskóla,
Humboldt háskóla í Berlín, háskólanna
í Lyon og Munchen, University College í
London og University of Wisconsin í Banda-
ríkjunum. Verkefnið hefur verið styrkt af
Evrópusambandinu, NordPlus, Rannís, Há-
skóla Íslands o.fl. Námskeiðið hefur verið
lengi í þróun og koma margir fræðimenn,
kennarar og nemendur Háskóla Íslands og
aðrir að gerð þess. Kennarar, sem kenna ís-
lensku sem annað mál erlendis, hafa próf-
að efnið og mælist það afar vel fyrir.
GG
Sjá nánar:
www.icelandic.hi.is
Vefnámskeiðið Icelandic Online
Námsefni til að kenna íslensku sem annað mál