Skólavarðan - 01.09.2004, Side 28

Skólavarðan - 01.09.2004, Side 28
28 FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004 Marie Vayo-Greenbaum er jarðfræðikenn- ari í Delaware í Bandaríkjunum. Nemendur hennar eru um 14 ára. Hún hefur áhuga á að komast í samband við íslenska náttúru- fræðikennara með samstarf í huga. Hún hefur mikinn áhuga á að koma til Íslands sumarið 2005 með hóp nemenda. Í bréfi sínu segir hún m.a: „Our school and the families here would be more than happy to host a small group of Icelandic students Þetta er ein af hugmyndunum sem fram koma í hugmyndabanka á vef mennta- málaráðuneytis um hvernig hægt sé að halda upp á evrópska tungumáladaginn sem haldinn verður hátíðlegur föstudag- inn 24. september nk. Menntamálaráðuneytið hvetur skóla til að nota daginn til að vekja athygli á mikil- vægi tungumálakunnáttu og símenntun- ar í tungumálum. Á heimasíðu ráðuneyt- isins er bæklingur sem hefur að geyma hugmyndabankann. Hann var unninn í samstarfi við Stofnun Vigdísar Finnboga- dóttur og er ætlaður öllum skólastigum. Dagsins hefur verið minnst með ýmsum hætti í íslenskum skólum frá því hugmynd- in kom fyrst fram árið 1991. Í menntamálaráðuneytinu má nálgast íslenska útgáfu veggspjalds sem Evrópu- ráðið hefur látið hanna í tilefni tungu- máladagsins. Ákveðið hefur verið að orlofshúsum KÍ að Sóleyjargötu 25 og 33, í Ásabyggð, Heiðar- byggð og í Kjarnaskógi verði ekki úthlut- að sérstaklega um jól og páska. Félags- menn geta bókað sér hús um hátíðar eins og á öðrum tímum ársins. Bókanir vegna jóla og áramótaleigu hefjast á Orlofsvefn- um 1. september. Hægt er að bóka allt að 4 mánuði fram í tímann. Fyrstur bókar fyrstur fær. Stjórn Orlofssjóðs Nýir strákar og nýjar stelpur - ný uppeldis- fræði? nefnist bók eftir norska félagsfræð- inginn Ole Bredesen sem gefin hefur verið út á vegum Norrænu ráðherranefndarinn- ar. Bókin er sérstaklega ætluð leik- og grunnskólakennurum og fjallar um ýmsar leiðir til að tryggja að í kennslu- og upp- eldisstarfi sé tekið tillit til þess að stund- um eru þarfir drengja og stúlkna ekki þær sömu. Höfundur gengur út frá því að bæði karlar og konur séu börnum mikilvægar fyrirmyndir og mikilvægt sé að kennarar geti stutt barnið, án tillits til eigin kyns, í að þroska bæði karllegar og kvenlegar hliðar. Bókin er innlegg í umræðuna um börn og kynjahlutverk og eru þar birt ýmis Dagur stærðfræðinnar verður 27. sept- ember næstkomandi Flötur, félag stærðfræðikennara, hef- ur gefið út Stærðfræði í lífi og starfi í tilefni dags stærðfræðinnar. Ritið, sem er í A4 broti og 55 síður, er fullt af skemmtilegum þrautum og stærðfræði- verkefnum ætluð grunnskólum. Verkefnunum er skipt í flokka eftir því hvort þau henta unglingastigi, miðstigi eða yngsta stigi. Dæmi um frumleg verk- efni eru talnakrossgátur, kosningakerfi, ratleikur og flugáætlun. Í inngangi segir: „Stærðfræðirannsókn- ir hafa breytt stærðfræðinni. Hún er orðin mun myndrænni og skipting hennar í efn- isþætti hefur verið að breytast. Stærðfræð- in er lifandi fræðigrein í örri þróun þar sem fram eru settar margar nýjar og frjóar hugmyndir á hverju ári. Í stærðfræði felst oft að koma skipulagi á hugsun sína svo miðla megi henni til annarra. Í því skyni má nota jöfnur, myndir eða líkön. Þannig felst í stærðfræðinni stuðningur við hug- myndasköpun og við að koma hugsun á framfæri.“ Bókin er unnin af nemendum í stærð- fræðivali KHÍ; stærðfræðikennurum fram- tíðarinnar. Guðbjörg Pálsdóttir aðjúnkt er ritstjóri bókarinnar. Evrópski tungumáladagurinn 2004 Karlar og konur jafn mikilvægar fyrirmyndir Stærðfræði í líf i og starf i Erlend samskipti fagleg ráð til karla og kvenna sem starfa í leik- og grunnskólum. Bókin var gefin út af Cappelen Akademisk Forlag fyrir skand- inavískan markað en íslensk og finnsk þýð- ing er aðgengileg á Netinu. Hægt er að nálgast íslensku þýðinguna á pdf- skjali á heimasíðu KÍ. here for a cultural visit and exchange of similar lenght.“ Þeir sem hafa áhuga geta skrifað Marie Vayo-Greenbaum. mvayo@towerhill.org Marie Vayo-Greenbaum Tower Hill School, Science Department 2813 W. 17th Street Wilmington, DE 19806 302-575-0550 Alþjóðlegur markaður Settur er upp alþjóðlegur markaður með básum frá mörgum löndum þar sem er „seldur" eða kynntur dæmigerð- ur varningur frá viðkomandi landi. „Inn- fæddir“ afgreiða í básunum og til að skapa rétta stemmingu eru sett á svið skemmtiatriði á „torginu“. Hægt væri að tengja markaðinn einhverju þema, s.s. mat í mismunandi löndum, hátíðis- dögum í mismunandi löndum o.s.frv. Upplýsingaefni um löndin er tiltækt fyrir nemendur og þeir spjalla við „inn- fædda“, spyrja spurninga og afla sér upplýsinga. ÚTHLUTUN ORLOFSHÚSA UM Fyrstur bókar fyrstur fær

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.