Skólavarðan - 01.09.2004, Page 30

Skólavarðan - 01.09.2004, Page 30
30 SMIÐSHÖGGIÐ SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004 Það var fagnaðarefni þegar Reykjavík- urborg ákvað að bjóða öllum fimm ára börnum fría vistun hluta úr degi í leik- skóla frá og með 1. september í ár. Með því eru yfirvöld að viðurkenna leikskól- ann enn frekar sem fyrsta skólastigið. Að vera elst í leikskólanum veitir börn- um ákveðna stöðu. Þau eru fyrirmynd hinna og finna til ábyrgðar sem fylgir því að vera elst. Síðasta árið í leikskólanum á ekki að vera bið eftir því að byrja í grunn- skóla heldur fullt af tækifærum til þess að læra nýja hluti. Margir leikskólar eru nú þegar með námskrá fyrir elstu börnin þar sem þörfum þeirra er mætt sérstaklega. Nú er tækifæri til þess að festa slíkt enn frekar í sessi. Á haustin streyma nýir nemendur í leik- skólana. Leikskólagangan er að jafnaði fjögur ár hjá þeim börnum sem byrja þar tveggja ára og er námið sniðið að þörfum þeirra og þroska. Leikskólinn hefur alltaf leitast við að mæta hverju barni þar sem það er statt hverju sinni. Meðaltalsbörn eru ekki til, þess vegna þarf að sérsníða námið að hverjum nemanda. Börn á þessum aldri eru næm fyrir mörgu, s.s. máltöku, félagsfærni, sam- skiptahæfni og hreyfiþroska svo að fátt eitt sé nefnt. Ef þau læra þetta ekki á þessu skeiði er erfiðara að kenna þeim það síðar. Rannsóknir hafa leitt í ljós að börn læra best í umhverfi sem er kærleiks- ríkt og hvetjandi. Slök umönnun í skólum hefur heftandi áhrif á nám barna. Agaleysi og andfélagsleg hegðun getur í versta falli haft í för með sér alvarlegar geðraskanir. Líðan barna vegur gríðarlega í framgangi þeirra innan skólakerfisins. Góð líðan og öruggt umhverfi eru öflug fornvörn og styrkja alla aðra þætti. Starfsfólk leikskóla þarf að búa yfir góðri þekkingu á þörfum og þroska barna á þessum aldri, geta gefið af sér og vera ánægt með starf sitt. Verðmæti hvers skóla er fólkið sem þar starfar, hlúa þarf vel að því svo að það geti sinnt starfi sínu sem best. Starfsumhverfið er það sem leik- skólarnir geta sjálfir stjórnað, þeir geta haft skýrt skipulag og hlutverk hvers og eins á hreinu. Nýtt mannauðinn í orði og á borði. Þetta geta stjórnendur og starfs- menn skólanna gert í sameiningu. Þessi úr- ræði standa leikskólunum til boða. Eitt og sér dugir þetta þó ekki til að halda starfs- mannveltunni í skefjum. Launin eru akkilesarhællinn. Leikskóla- fólk fær þar engu um ráðið. Það er þeirra sem forgangsraða í samfélaginu. Vinna leikskóla er ekki metin að verðleikum og margir gefast upp á að vinna í leikskólum vegna lágra launa. Allir leikskólastjórar þekkja það, þegar haustráðningar byrja, að vera engan veginn samkeppnishæfir við almennan vinnumarkað. Starfsmaður sem vinnur á skrifstofu við símavörslu eða að hella upp á kaffi hefur sömu laun og deildarstjóri í leikskóla með þriggja ára há- skólanám. Deildarstjórinn ber ábyrgð á vel- ferð 20 - 30 barna (fer eftir aldri barna og stærð deilda) og stýrir starfsmannhópi. Sjálf athugaði ég innan míns skóla hversu margir þurfa að vera í tveimur störf- um til þess að endar nái saman. Meira en helmingur af starfsmannahópnum, bæði kennarar og leiðbeinendur, eru í tveimur eða fleiri störfum. Það er ekki hægt að lifa af launum sem borguð eru fyrir að vinna í leikskóla. Þetta mega þeir vita sem þekkja til launamála leikskólakennara. Er þessi forgangsröðun rétt? Er þetta sá forgang- ur sem við viljum viðhalda? Hvers vegna er ekki búið betur að skólafólki í þessu landi? Hefur þekkingarleysi eða skammsýni eitt- hvað með það að gera? Það er dýrt að kasta krónunni fyrir aurana. Til lengri tíma litið er það beinlín- is hættulegt. Börn eru viðkvæmur „varn- ingur“.Vitna má til blaðagreinar þar sem sagði, að þegar ráðamenn gerðu sér grein fyrir því hvar mesti auður hvers samfélags í raun lægi, yrðu kennarar meðal þeirra launahæstu og launin því hærri sem börn- in væru yngri. Mér líst vel á þá hugmynd. Matthildur L. Hermannsdóttir Höfundur er leikskólastjóri á Laufásborg í Reykjavík. Að forgangs- raða rétt Sjálf athugaði ég innan míns skóla hversu margir þurfa að vera í tveimur störfum til þess að endar nái saman. Meira en helmingur af starfsmannahópnum, bæði kennarar og leið- beinendur, eru í tveimur eða f leiri störfum. Matthildur L. Hermannsdóttir

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.