Skólavarðan - 01.10.2008, Qupperneq 3
3
FORMANNSPISTILL
Formaður og varaformaður KÍ og formenn aðildarfélaga KÍ skiptast á um að skrifa
formannspistla í Skólavörðuna. Félögin á bak við formannspistlana eru: Félag
framhaldsskólakennara (FF), Félag grunnskólakennara (FG), Félag leikskólakennara
(FL), Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS), Félag tónlistarskólakennara (FT),
Skólastjórafélag Íslands (SÍ).
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 8. ÁRG. 2008
Eiríkur Jónsson
Formaður KÍ
Í landinu eru nú miklar efnahagsþrengingar. Margt bendir til að
stjórnvöld og eftirlitsstofnanir hafi flotið sofandi að feigðarósi og
virðast ráðamenn þjóðarinnar ekki síst uppteknir af því að tryggja
að enginn verði dreginn til ábyrgðar. Af hverju hefur ekki verið gefin
út afdráttarlaus yfirlýsing um að efnahagshrunið verði rannsakað
og allt gert til þess að þeir sem bera ábyrgð á því hvernig komið er
sæti henni? Hvernig má það vera að íslenskur banki í einkaeign geti
stofnað til milljarða skuldbindinga í útlöndum á ábyrgð íslenskra
skattgreiðenda? Hafa þeir sem settu reglurnar og þeir sem áttu að
fylgjast með að eftir þeim væri farið svikið þjóðina? Hafa þeir horft
aðgerðalausir á skuldbindingar hlaðast á herðar landsmanna?
Það er ljóst að framundan bíður endurreisn íslensks efnahagslífs.
Líklegt má telja að ýmsir eigi erfitt á næstunni og mikil óvissa ríkir
um afkomu margra fjölskyldna og fyrirtækja. Fjölmargir hafa þegar
misst atvinnuna og margir eiga trúlega eftir að verða fyrir því sama
áður en birtir upp. Fjöldi fólks hefur einnig tapað miklu fé, ekki síst
vegna rangrar ráðgjafar sem runnin er undan rifjum þeirra sem nú
hafa keyrt íslenskt efnahagslíf í þrot.
Mikilvægt er að gleyma því ekki við aðstæður eins og nú ríkja
að við Íslendingar erum, þegar á móti blæs, eins og ein fjölskylda.
Þess vegna getum við, sem þjóð, unnið okkur út úr þessum vanda.
Því miður hefur hið sama ekki átt við þegar vel hefur gengið því þá
hafa ekki allir setið við sama borð. Meintum hagnaði undanfarinna
ára var sannarlega ekki skipt jafnt. Það voru ekki allir áskrifendur
að ofurlaunum. Hins vegar þurfa margir að bera þær byrðar
sem útrásarvíkingarnir lögðu á þjóðina. Við öll, sem berum hag
þjóðarinnar fyrir brjósti, þurfum að leggjast á eitt og hjálpast þannig
að við að komast upp úr öldudalnum. Er til of mikils mælst að
þeir, sem dvelja erlendis og halda þar áfram að braska með fé sem
þeir sugu út úr íslensku samfélagi áður en það féll saman, verði
þátttakendur í endurreisninni?
Það hefur löngum verið svo að skólar gegna lykilhlutverki í sam-
félaginu, ekki síst á erfiðum tímum. Ábyrgð kennara, skólastjóra og
annarra sérfræðinga skólanna er mikil og nauðsynlegt að þeir haldi
vel utan um þá fjölmörgu nemendur sem búa við óöryggi vegna
ótryggra aðstæðna á heimilum. Tryggja verður að enginn lendi
útundan og allir eigi öruggt skjól í skólanum. Til að svo megi verða
er nauðsynlegt að starfsfólk skólanna eigi möguleika á að leita sér
aðstoðar og ráðgjafar þar sem margir kennarar og samstarfsmenn
þeirra hafa sjálfir orðið fyrir efnahagslegu tjóni og jafnvel andlegu
áfalli.
Ég er þess fullviss að við vinnum okkur út úr þeim vanda sem
nú steðjar að. Ég geri jafnframt þá kröfu að þeir sem bera ábyrgð á
ástandinu axli sína ábyrgð. Það er ekki Seðlabankans að dæma um
hvort hann hefur brugðist, Fjármálaeftirlitsins að dæma um hvort
það hefur brugðist eða ríkisstjórnarinnar að dæma um hvort hún
hefur brugðist. Að rannsókn þurfa að koma óvilhallir utanaðkomandi
aðilar sem leggja mat á hvað fór úrskeiðis og hvar ábyrgðin liggur.
Síðan verður það þjóðin sem kveður upp sinn dóm.
Ég vona að við berum gæfu til að nota tækifærið og byggja upp
nýtt og betra samfélag. Samfélag sem byggist á nýjum og farsælum
gildum, þar sem græðgin verður grafin og gleymd og manngildið
hafið til vegs og virðingar. Við þurfum á samheldni og samhjálp
að halda í þjóðfélagi þar sem velferð og menntun eru í öndvegi og
jafnræði þegnanna er tryggt.
Eiríkur Jónsson
Þar sem græðgin er gleymd
og manngildið virt
séreign á traustum grunni
Bankastræti 7 • 101 Reykjavík • Sími: 510 6100 • Fax: 510 6150 • sereign@lsr.is • www.lsr.is
Þegar starfsævinni lýkur reynist lífeyrissparnaður afar mikilvægur. Á lífsleiðinni skiptir
því öllu máli að njóta samfylgdar lífeyrissjóðs sem býr vel í haginn fyrir framtíðina.
Séreign LSR tekur við frjálsum viðbótarlífeyrissparnaði sjóðfélaga og ávaxtar hann.
Þátttaka í Séreign LSR veitir sjóðfélögum aukna möguleika á sveigjanlegum
starfslokum og hærri lífeyristekjum í framtíðinni.
Kostir séreignarsparnaðar eru ótvíræðir. Launagreiðandi greiðir kjarasamningsbundið
mótframlag sem nemur allt að 2% af heildarlaunum. Skattalegt hagræði myndast þar
sem iðgjald er ekki skattlagt við innborgun. Ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur af
séreignarsparnaði og sparnaðurinn skerðir hvorki barna- né vaxtabætur.
SÉ
RE
IG
N
LS
R
KYNNTU ÞÉR SÉREIGN LSR Í SÍMA: 510 6100
Setjum velferð og menntun í
öndvegi og tryggjum jafnrétti