Skólavarðan - 01.10.2008, Qupperneq 14

Skólavarðan - 01.10.2008, Qupperneq 14
14 LEIKSKóLAR STúdENTA SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 8. ÁRG. 2008 Um þessir mundir er unnið að því að hrinda í framkvæmd sameiginlegri skólastefnu þriggja leikskóla í Reykjavík; Mánagarðs, Sólgarðs og Leikgarðs. Tveir síðarnefndu skólarnir eru í eigu Félagsstofnunar stúd- enta (FS) og eru fyrir hálfs árs til tveggja ára gömul börn nemenda við HÍ. Mánagarður er líka í eigu FS en uppbygging hans var sam- starfsverkefni FS og Reykjavíkurborgar, hann er fyrir reykvísk börn á aldrinum eins til sex ára. Sigríður Stephensen nýráðinn leikskólafulltrúi FS og fyrrverandi skóla- stjóri Mánagarðs segir okkur frá High/ Scope skólastefnunni og af hverju hún varð fyrir valinu. „Við leituðum í hálft ár að stefnu sem okkur fannst aðgengilegt að vinna með í breiðum aldurshópi en nemendur okkar eru á aldrinum sex mánaða til sex ára,“ segir Sigríður. „Útgangspunkturinn var að sameina okkur undir einni stefnu í því skyni að skapa samfellu í námi barnanna, auka samstarf og samræðu á milli skólanna og gera starfið markvissara. Nú þegar börn nemenda við Kennaraháskólann gamla ganga til liðs við okkur stækkar kúnnahópurinn vafalaust,“ bætir Sigriður við brosandi, „og við væntum þess að foreldrar nýrra nemenda séu mjög áhugasamir um vel skilgreint skólastarf og reiðubúnir að láta að sér kveða. Þá eykst enn ávinningur þess að hafa samræmda stefnu sem einfaldar starfið og gerir það meðvitaðra og skemmtilegra. High/Scope er upphaflega og öðrum þræði skólarannsóknarstofnun, með höfuð- stöðvar í Michigan, þar sem mótuð var samnefnd stefna, búin til námsgögn og stefnan breidd út á annan hátt með skrifum, námskeiðum og annarri fræðslu.“ Kennarar verða sendir út á námskeið Starfsfólk skólanna ákvað að skoða High/ Scope stefnuna nánar og eftir nokkurn undirbúning var Shelley Nemeth frá High/ Scope Educational Research Foundation fengin hingað til lands síðla í febrúar á þessu ári til að halda námskeið um stefnuna fyrir allt starfsfólk skólanna þriggja auk þess að kynna hana á málþingi leikskóla stúdenta á Háskólatorgi þann 29. febrúar sl. Shelley hefur síðan verið ráðgjafi í innleiðingu stefn- unnar á Mánagarði, Sólgarði og Leikgarði og fyrirhugað er að senda kennara héðan á sjö vikna námskeið í Bandaríkjunum sem mun veita þeim réttindi sem High/Scope kennarar. Það er ekki í boði Meginstef High/Scope er virkni nemandans. Á highscope.org má meðal annars finna eftirfarandi um hlutverk kennara og annars starfsfólks sem vinnur með ung- börnum og smábörnum (lauslega þýtt): Kennarar leitast við að koma á jákvæð- um og gagnkvæmum samskiptum þar sem hvatning er lykilatriði. Kennarar eru ekkert að flýta sér, þeir knúsa börn- in, leika sér með þeim og spjalla við þau, ávallt hlýlega og með herslu á sam- ræðuna. Kennarar móta sálfræðilega öruggt umhverfi þar sem frumkvæði barnanna er álitið markmiðað en ekki þreytandi eða óþægilegt fyrir hina fullorðnu. Til leiðsagnar í daglegu starfi nota kennarar hagnýtar kenningar um þroska barna og leitast við að sjá hlut- ina út frá sjónarhóli nemenda sinna. Þeir hvetja frekar en hindra tilraunir og tjáskipti nemenda og styðjast við hugmyndir þeirra, frekar en sínar eigin, um hvernig leysa eigi málin. Kennarar leggja áherslu á að aðstoða börnin við að finna lausn á deilum í stað þess að refsa eða hlaupa til og leysa málin fyrir þau. High/Scope í leikskólum stúdenta Samfella í námi frá sex mánaða til sex ára

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.