Skólavarðan - 01.10.2008, Side 15
15
LEIKSKóLAR STúdENTA, FRéTT
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 8. ÁRG. 2008
„Flestir kannast við setninguna það er ekki í
boði sem hefur farið eins og eldur í sinu um
íslenska leikskóla og íslensk heimili,“ segir
Sigríður. „En hvað er í boði? Höfum við ef
til vill farið að nota ýmsar svona setningar
sem starfsramma, sérstaklega utan um
starf yngstu nemenda, og í hugsunarleysi
tekið meira og meira af þeim frumkvæði og
sjálfræði? Sums staðar þróuðust valstundir
út í það að kennarinn var í raun sá sem valdi
fyrir nemendurna. Ekki var hægt að velja
þetta eða hitt af því það var orðið fullt, svo
að dæmi sé tekið. Með High/Scope erum við
minnt á það að nám fer ekki fram án virkni
nemandans. Áhersla er lögð á persónulegt
frumkvæði hans og jákvæð samskipti barna
og fullorðinna.“
Áætlun-aðgerð-endurmat
Í High/Scope byggist daglegt skólastarf
á því ferli að skipuleggja, framkvæma og
skoða (plan-do-review). Börnin eru hvött til
að taka frumkvæði í náminu með ýmsum
leiðum. Sterk sjálfsmynd, víðsýni og virkur
félagslegur vilji eru ennfremur fyrirferðar-
mikil markmið. Nám undir formerkjum
stefnunnar er af forvígismönnum hennar
einnig talið hafa jákvæð áhrif á frekara nám
og alla ákvarðanatöku síðar í lífinu.
Sigríður segir að mikið sé hvatt til að
leita lausna og stefnan byggð þannig upp
að auðvelt sé að heimfæra hana á starf
með ómálga börnum ekkert síður en eldri
nemendum. „Okkur hættir stundum, alveg
óvart, til að hunsa litlu börnin faglega af
því þau tjá sig á annan hátt en með orðum.
Þeirra tjáning er hins vegar ekkert síður
merkingarþrungin og í High/Scope stefn-
unni er margt innbyggt sem hvetur mann til
að vinna í samræmi við það.“
Aðlögun í fullum gangi
Sigríður segir aðspurð að leikskólar stúdenta
telji sig ekki endilega hafa höndlað stóra-
sannleik en hins vegar sé mjög mikilvægt
að hafa skýra, hvetjandi og hagnýta stefnu
til að styðja við kennara, starf þeirra og
annars starfsfólks skóla. „Auðvitað er þetta
ekki eina stefnan sem hægt er að laga að
námsþörfum barna allt frá sex mánaða aldri
og við erum ekki þau fyrstu sem skoðum hana
og notum að einhverju leyti hérlendis,“ segir
Sigríður. „En líklega er þetta stærsta skrefið
í að innleiða High/Scope á einu bretti á Ís-
landi og spennandi tækifæri fyrir kennara
að taka þátt og samfélagið að fylgjast með
skólastarfinu. Mánagarður er þegar kominn
á fullan skrið og hinir skólarnir tveir eru
komnir vel á veg.“
Góðir kennarar eru forsenda þess að vel
gangi að innleiða og starfa eftir hugmynda-
fræði á borð við High/Scope og að sögn
Sigríðar leggur FS mikla áherslu á að fá
fleiri menntaða kennara til liðs við skólana.
„Það er svolítið einkenni á okkar stétt (leik-
skólakennarar, innskot blm.) að ferðast um
í flokkum,“ segir hún og brosir, „enda í
sjálfu sér skiljanlegt. Við erum með frábært
starfsfólk en viljum fá fleiri menntaða
kennara til liðs við okkur. Kennara sem eru
óhræddir við að slaka að einhverju leyti á
stjórnartaumum og leyfa nemendum að
taka fullan þátt í eigin námi.“
keg
Til að fræðast um High/Scope er upplagt að bregða
sér á vefinn þeirra, highscope.org
„High/Scope stefnan leggur ríka áherslu
á virkt nám,“ segir Sigríður Stephensen,
leikskólafulltrúi FS.
Menntaskólinn í Kópavogi útskrifar
nemendur í samstarfi við César Ritz
Brautskráning fyrstu nemenda í hótelstjórnunarnámi César
Ritz frá Hótel- og matvælaskólanum í MK fór fram þann 21.
október sl.
Námið er tvær annir í skóla og að auki þurfa nemendur að
skila 1000 klst. starfsþjálfun. Kennt er í samstarfi við César Ritz
Colleges í Sviss. Að þessu sinni luku þrír nemendur námi en núna
leggja tíu nemendur til viðbótar stund á hótelstjórnunarnámið í
MK. Nemendur sem ljúka fyrsta árinu hljóta diplómagráðuna
Certificate in Hotel and Restarurant Operations og stendur til boða
að halda áfram námi í Sviss. Að loknu tveggja ára námi þar öðlast
nemendur gráðuna Bachelor of International Business in Hotel and
Tourism Management.
Á myndinni eru frá vinstri Daniel Gutzwiller skólameistari University
Centre César Ritz og útskriftarnemarnir þrír: Einar Helgi Ármann, Guðrún
Dröfn Emilsdóttir og Anzhela Klimets, þá er Margrét Friðriksdóttir
skólameistari MK og yst til hægri Baldur Sæmundsson áfangastjóri
Hótel- og matvælaskólans.