Skólavarðan - 01.10.2008, Síða 16

Skólavarðan - 01.10.2008, Síða 16
16 SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 8. ÁRG. 2008 FORELdRASAMSTARF Forvarnir eru mikilvægar og þann 6. nóvember sl. var forvarnardagur haldinn í grunnskólum með áherslu á forvarnir gegn áhættuhegðun ungmenna. Víða er hugað að forvörnum um þessar mundir í tengslum við margvíslega málaflokka svo sem geð- rænar afleiðingar áfalla, vinnuumhverfi, netnotkun ungmenna, félagslega einangrun, og neyslu áfengis og annarra vímuefna. Meðal nýnæma sem hafa vakið athygli er vefurinn Umhuga.is, forvarnarverkefni á vegum Þjóðar gegn þunglyndi þar sem aðgerðum er beint að aðstæðum barna og unglinga. SAFT ráðstefna var haldin 8. nóvember sl. en SAFT er vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Verkefnið er samevrópskt en Heimili og skóli sér um að annast útfærslu og framkvæmd þess hérlendis. Það er margt fleira gott að gerast í for- varnarmálum sem vert er að vekja athygli á. Í þessari grein segir Helga Margrét Guðmundsdóttir lesendum Skólavörðunnar frá forvarnarverkefni sem þróað var af samtökunum Heimili og skóla og nefnist Foreldrasáttmálinn. Rannsóknir sýna að því yngri sem börn hefja neyslu áfengis og annarra vímuefna, þeim mun líklegra er að það valdi þeim erfið- leikum og hafi neikvæð áhrif á líf þeirra og allrar fjölskyldunnar. Með hverju ári sem líður án neyslu ungmennis minnka líkur á misnotkun um fjórtán prósentustig. Foreldrar þurfa að vita hvað er í húfi svo þeir geti rætt við börnin sín og brugðist rétt við. Jafningjahópurinn og félagsgerð grenndar- samfélagsins sem barnið elst upp í hefur mikil áhrif. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar taki höndum saman í forvörnum. Leiðirvísir sem kemur af stað umræðum Heimili og skóli - landssamtök foreldra hafa þróað Foreldrasamninginn sem for- varnarverkefni fyrir foreldra. Samningurinn er tvískiptur og er annars vegar fyrir 1.-5. bekk og hins vegar fyrir 6.-10. bekk. Foreldra- samningurinn hefur verið endurútgefinn og heitir nú foreldrasáttmáli. Sáttmálinn er leiðarvísir sem bekkjarfulltrúar og umsjónar- kennarar geta nýtt sér til að koma af stað umræðum um uppeldisleg gildi og til að efla skilning á mikilvægi samstarfs og þátttöku foreldra í skólastarfi barna sinna. Markmiðið með slíku samkomulagi, eða sáttmála, er í fyrsta lagi að vekja foreldra og forráðamenn til vitundar um mikilvægi þess að sýna börnum og unglingum umhyggju, virkan stuðning og setja þeim skýr mörk. Í öðru lagi að skapa umræðugrundvöll meðal foreldra barna í tilteknum bekkjardeildum og fá þá til að sameinast um viðmið um hegðun. Samkomulagið er staðfest með undirskrift þar sem foreldrar staðfesta vilja sinn til að framfylgja viðmiðunum eftir því sem kostur er. Foreldrasáttmálinn höfðar til samábyrgðar foreldra í bekknum um uppeldið, til dæmis hvað varðar einelti, útivist, eftirlitslaus partí og reglur um notkun á tækni eins og tölvuleikjum, aðgengi að netinu og farsímum. Samdóma álit að skilar góðum árangri Verkefnið leggur grunn að umræðum á milli foreldra um þau atriði er skipta máli fyrir farsælt uppeldi. Foreldrasáttmálinn er í eðli sínu forvarnarverkefni gegn hvers konar neikvæðum lífsstíl hjá börnum og unglingum. Þar sem verkefnið hefur verið vel kynnt og góð samstaða foreldra hefur náðst um tiltekna þætti í uppeldinu er það samdóma álit allra sem taka þátt að sáttmálinn skili óumdeilanlega góðum árangri. Þeir sem eru í uppreisn við ríkjandi gildi í þjóðfélaginu láta oft mest til sín heyra. Foreldrasáttmálinn er kjörið mótvægi við þær raddir. Okkar reynsla hjá Heimili og skóla er sú að úti í þjóðfélaginu er stærsti hluti foreldra fylgjandi því að halda vel utan um börnin sín, veita þeim væntumþykju og sýna þeim virðingu. Með því að skapa umræðuvettvang fyrir foreldra til að ræða mikilvæg uppeldisleg atriði aukast líkur á viðhorfsbreytingu og minnkuðu umburðarlyndi foreldra sem og samfélagsins í heild gagnvart neikvæðum lífsstíl barna. Við teljum að ein árangursríkasta leið sem við höfum til að vekja vitund foreldra um hættur sem kunna að steðja að börnum þeirra, sé að fá þá til að hittast og ræða málin yfir verkefni sem krefst virkrar þátttöku þeirra eins og Foreldrasáttmálinn gerir. Óskastaðan að kennarar veiti leiðsögn Líklega er þáttur foreldra í forvörnum vanmetinn og við viljum sjá meiri fjármunum veitt til fræðslu foreldra þannig að þeir geti síðan frætt sín börn og verið þeim góð fyrirmynd. Bestu leið til að ná til forelda teljum við fundi þar sem foreldrar barna á svipuðum aldri hittast og skiptast á skoðunum. Jafnframt teljum við að auka þurfi vitund foreldra um mikilvægi foreldrasamstarfs í skólum og samstarfs kennara og foreldra. Óskastaðan er að skólastjórnendur og kennarar hafi forgöngu um að veita foreldrum uppeldislega leiðsögn og hjálpi til við að mynda vettvang innan skólans þar sem foreldrar geta komið saman til að ræða um uppeldi og velferð barna. Það er mikill stuðningur við starf kennara ef foreldrar eru í sambandi; fylgjast með, styðja við nám og félagslíf barna sinna, gæta þess að þau komu úthvíld í skólann, sinni heimanámi og taki þátt í bekkjarstarfinu. Ein leið til samstarfs er Foreldrasáttmálinn. Helga Margrét Guðmundsdóttir Höfundur er verkefnastjóri hjá Heimili og skóla – landssamtökum foreldra Á vefnum heimiliogskoli.is eru leiðbeiningar og ítarefni fyrir foreldra um Foreldrasátt málann auk veggspjalda. Efnið er tvískipt eft ir aldri barna. Foreldrasáttmálinn er árangursrík leið! FORELDRASÁTTMÁLI VIÐ FORELDRAR BARNA Í BEKK/HÓP (SKÓLI) SAMÞYKKJUM AÐ VERA VIRKIR ÞÁTTTAKENDUR Í SKÓLAGÖNGU BARNA OKKAR OG VIRÐA EFTIRFARANDI VIÐMIÐ 1 7 3 9 5 11 2 8 4 10 6 NAFN FORELDRIS: Standa við lögboðinn útivistartíma og huga að svefnþörf barnsins. Stuðla að góðum bekkjaranda meðal annars með þátttöku í bekkjarstarfi og gæta jafnræðis til dæmis vegna afmælisboða. Vera vakandi yfir einelti og láta skóla og/eða foreldra vita ef við teljum barn geranda eða þolanda eineltis. Kenna barninu umburðarlyndi þannig að það skilji að við erum öll ólík og eigum fullan rétt á því. Taka þátt í skóla-, íþrótta- og tómstundastarfi barnsins og leggja okkar af mörkum til foreldrastarfs. Gæta þess að á heimilinu hafi börn aðeins aðgang að kvikmyndum, tölvuleikjum og efni á Netinu sem hæfir aldri þeirra og þroska. Kynnast vinum og skólafélögum barnsins okkar og hafa samráð við foreldra þeirra. Annað. Ræða við barnið okkar um námið og skóladaginn og veita því stuðning og góða aðstöðu til heimanáms. Fræða barnið um notkun á nýrri tækni svo sem farsímum, SMS, MSN og Netinu og setja reglur um notkun. Byggja upp sjálfstraust og sjálfsvirðingu hjá barninu og kenna því að sýna öðrum börnum og starfsfólki skólans tillitssemi og virðingu. Foreldrasáttmálinn höfðar til samábyrgðar foreldra í bekknum um uppeldið, til dæmis hvað varðar einelti, útivist, eftirlitslaus partí og reglur um notkun á tækni eins og tölvuleikjum, aðgengi að netinu og farsímum.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.