Skólavarðan - 01.10.2008, Blaðsíða 20
20
KjARAMÁL
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 8. ÁRG. 2008
Í þessum pistli verður fjallað um matartíma.
Margt í kjarasamningi grunnskólakennara
hefur verið óbreytt lengi en þó er spurt
reglulega um matartímamálin. Í nýgerðum
kjarasamningi grunnskólakennara kom
inn ný grein um þá kennara sem taka
að sér að matast með nemendum. Nýi
kjarasamningurinn verður ekki prentaður að
þessu sinni, enda með stuttan gildistíma,
en hægt er að nálgast hann í tölvutæku
formi á vef KÍ/FG.
Matar- og kaffitímar
Samkvæmt vinnutímaákvæðum kjarasamn-
ingsins á starfsmaður rétt á a.m.k. fimmtán
mínútna hléi ef daglegur vinnutími hans
er lengri en sex klukkustundir. Kaffi- og
matarhlé teljast þess konar hlé. Í kjara-
samningi segir einnig að kennari skuli
hafa samfellt þrjátíu mínútna matarhlé á
tímabilinu 11.30-13.30 sem teljist ekki til
vinnutíma. Ef matartíminn á að vera utan
þess tíma verður kennarinn að samþykkja
það, enda um einstaklingsbundinn rétt að
ræða. Heimilt er að lengja, stytta eða fella
niður matartíma og þá með samkomulagi
skólastjóra og þeirra kennara sem í hlut
eiga. Ef kennari samþykkir sjálfur að
hafa lengri matartíma en þrjátíu mínútur
lengist vinnutíminn sem því nemur, en ef
kennara er skylt að taka lengri matartíma
þá er umfram tíminn tekinn af 9,14 klst.
verkstjórnartímanum. Kaffitímar skulu á
venjulegum vinnudegi vera tuttugu mín-
útur fyrir hádegi og fimmtán mínútur eftir
hádegi (þ.e. fyrir þá sem kenna a.m.k. þrjár
heilar kennslustundir eftir kl. 13). Ef kennari
nær ekki að taka þá kaffitíma sem hann á
rétt á, styttist vinnutíminn sem því nemur.
Kennsla í matartíma – kennsluskylda og
kennsluyfirvinna
Ef því verður ekki við komið að veita starfs-
manni fullan matartíma, sbr. gr. 2.3.8
í kjarasamningi, ber að greiða kennslu
sem fram fer í matartíma þannig að á
hverja kennslustund í kennsluskyldu komi
yfirvinnuálag á þann tíma sem á skortir,
að matartími kennarans sé þrjátíu mín-
útur. Kennari sem nær t.d. eingöngu tutt-
ugu mínútum í matartíma fær greiddar
tuttugu mínútur með yfirvinnukaupi (eða
yfirvinnuálagi hjá þeim sem eru í hluta-
starfi). Ef kennari kennir hins vegar um-
fram kennsluskyldu (kennsluyfirvinna) sam-
kvæmt stundatöflu fellur þessi greiðsla
niður, sbr. gr. 2.3.6 í kjarasamningi en þar
er skilgreining á því hvernig beri að telja
fastar kennsluyfirvinnustundir og þar kemur
fram að fyrir hverja kennslustund í yfirvinnu
á stundatöflu selur kennari rétt sinn til eins
matarhlés. Þetta þýðir að sá sem kennir
fimm kennslustundir umfram kennsluskyldu
samkvæmt stundatöflu hefur þar með selt
rétt sinn til matarhlés enda getur kennarinn
valið hvort hann tekur að sér þessa kennslu-
yfirvinnu eða ekki. Sá sem hins vegar hefur
engar kennslustundir umfram kennsluskyldu
samkvæmt stundatöflu fær greitt sbr. gr.
2.3.8. eins og áður sagði.
Matast með nemendum
Í nýgerðum kjarasamningi kemur inn ný
grein 3.4.6 sem hljóðar svo: „Þeir kennarar
sem gert er skylt að matast með nemendum
samhliða gæslu og aðstoðarstörfum eru
undanþegnir greiðsluskyldu fyrir þær mál-
tíðir.“ Kennarinn fær því ekki einungis greitt
fyrir að vera með nemendum þennan tíma
heldur á hann líka rétt á fríu fæði.
Mötuneyti og fæðispeningar
Starfsfólk á að hafa aðgang að matstofu,
eftir því sem við verður komið. Matstofa
sbr. gr. 3.4.1. telst sá staður þar sem hægt
er að bera fram heitan eða kaldan mat,
aðfluttan eða eldaðan á staðnum, og greiði
starfsmenn efnisverð matarins en annar
rekstrarkostnaður greiðist af vinnuveitanda.
Ef skólinn kaupir mat af öðrum skal greiða
fyrir hann sbr. gr. 3.4.3. og tekur sú upphæð
sem þar er nefnd breytingum 1. ágúst ár
hvert. Þar sem ekki er mötuneyti skal reynt
að tryggja aðgang að nærliggjandi mötuneyti
eða flutningur matarins auðveldaður fyrir
þá sem í hlut eiga. Þeir sem ekki njóta
mataraðstöðu en matast í skólanum eiga rétt
á fæðispeningum sbr. gr. 3.4.1. og breytist
upphæð fæðispeninga á þriggja mánaða
fresti í samræmi við breytingu matvöruliðar
í vísitölu neysluverðs.
Mig langar í lokin að hvetja ykkur til að senda
inn fyrirspurnir um þetta eða önnur atriði í
kjara- og réttindamálum, bæði er hægt að
senda mér tölvupóst á netfangið ingibjorg@
ki.is og hringja til mín í síma 595 1111.
Ingibjörg Úlfarsdóttir
Launafulltrúi KÍ
Matartímar í grunnskóla
Ingibjörg Úlfarsdóttir
launafulltrúi KÍ
Lj
ós
m
yn
d
:
S
te
in
un
n
Jó
na
sd
ót
ti
r