Skólavarðan - 01.10.2008, Qupperneq 23

Skólavarðan - 01.10.2008, Qupperneq 23
VIÐTAL, LESENdAbRéF 23 Sú skoðun hefur verið útbreidd, í það minnsta meðal sumra, að prentmiðillinn sé að víkja fyrir netútgáfum. Hins vegar breytist heimsmynd okkar hratt samanber atburði síðustu vikna. Við slík tímamót staldra margir við og taka sér meiri tíma til lestrar. Það er nefnilega þannig að einn jákvæðra fylgifiska þrenginga í efnahagslífi birtist okkur í aukinni aðsókn á bókasöfn og aðra ódýra afþreyingu. Skoðanir þeirra sem telja að hið prentaða mál muni lifa af njóta því sífellt meiri hylli. Í ljósi þess er það mikil auðlegð fyrir okkar þjóð að eiga fagtímarit á borð við Skólavörðuna á sviði uppeldisvísinda. Blað þetta þarf því að efla og senda heim til allra félagsmanna í KÍ enda mikilvægt fyrir fagvitund og stolt okkar stéttar að eiga málgagn sem berst okkur reglulega í gegnum póstlúguna. Við skulum vera minnug hins fornkveðna að bókvitið verður ekki í askana látið og að blindur er bóklaus maður o.s.frv. Þessi sjónarmið eiga sennilega aldrei betur við en nú á tímum sem einkennast af ákveðnu óöryggi og uppgjöri. Með kveðju, Guðjón Ragnar Jónasson grunn- og framhaldskólakennari M.Paed., MA. Hefur eitthvað breyst? Árið sem Stefán hætti hjá RHÍ setti stofnunin upp til reynslu upphringisamband við hinn evrópska hluta BITNET (European Academic Research Network - EARN) og OSI tilraunanet við samband og X.400 tölvupóstsamband. Þrátt fyrir sívaxandi samband í þessum geira virtust kennarar og samningsaðilar þeirra lítt nálgast. Hvernig er það Stefán, hefur ekkert breyst? Eru laun enn borin saman við laun viðmiðunarhópa í BHM og niðurstaðan kennurum í óhag? „Já, það má segja það,“ svarar Stefán. „En þó ekki. Við erum enn að kljást við þennan eilífa samanburð við aðra hópa en stofnana- samningarnir gefa tilefni til svolítillar bjartsýni ef rétt er haldið á spöðunum. Málið er,“ heldur Stefán áfram, „að þessi ofboð- slegi samanburður milli hópa skemmir fyrir okkur þegar upp er staðið. Það er flókið að koma af stað vinnu fyrir eina stétt, þegar ljósmæður fengu hækkun eða öllu heldur leiðréttingu sem þær þurftu nauðsynlega að fá þá breyttu læknar sinni kröfugerð, svo sigla aðrir í kjölfarið og svona gengur þetta. Enginn vill að annar sé hærri en hann sjálfur, það er alið á öfund og enginn kemst spönn frá rassi. Það er beinlínis óþolandi að ljósmæður geti til dæmis ekki unnið í friði að viðurkenningu á forsendum sins langa náms, viðurkenningu sem aðrir eru þá jafnvel búnir að fá, án þess að allt fari í uppnám. Það þvældist fyrir okkur í sumar að það var alltaf verið að tala um „hina“, segir Stefán með áherslu. Hvað er til ráða? Stefán er maður skynsemi og reynslu- þekkingar, hann hefur hvorki einfalda lausn á því hversu illa gengur í kjarabaráttu kennara né trú á að slík lausn fyrirfinnist. Hann lumar þó á mörgum hugmyndum. „Ég er hreint ekki að mæla ofurlaunum bót, engan veginn“, segir Stefán. „En ég er heldur ekki sósjalisti sem vill allt flatt. Það verður að vera hægt að gera vel við þá sem standa sig vel. Einmitt núna má reyndar vænta þess að þær séu fáar matarholurnar sem hægt er að ná í eitthvað úr. En við þurfum að halda áfram að vinna í málunum, jafnt og þétt. Við þurfum að rannsaka kerfisbundið hvers vegna það dregur alltaf í sundur með okkur og BHM þegar líður á kjarasamningstímann. Þetta er að mínu mati númer eitt, tvö og þrjú núna. Um leið og við finnum ástæðuna þá getum við hætt í þessum sandkassaleik, brett upp ermar og drifið í að færa hlutina í samt lag. Við þurfum líka að koma þeim skilaboðum áleiðis að kennarastarfið sé miklu meira en að kenna í fjörutíu mínútur í senn og við verðum þá líka sjálf að vera tilbúin til að breyta einhverju ef með þarf. Það dettur engum heilvita manni í huga að spyrja fréttamenn sjónvarps hvort þeir vinni bara í klukkustund á dag. En kynningarherferðir okkar hafa ekki verið nógu góðar. Við þurfum að tala í samræmi við samtímann, hafa myndrænar kynningar og minni texta. Að mínu mati væri ef til vill farsælast fyrir okkur að vinna bara „venjulegan vinnutíma“ í stað þessarar stöðugu yfirvinnu yfir veturinn – og losna þá við að vera í eilífri vörn um leið og við gegnum flóknum erfiðum og mikilvægum störfum. Svo þurfum við að breyta því hvernig framhaldsskólum eru úthlutaðir peningar í samræmi við reiknilíkan. Það er allt of lítið fjármagn sem berst skólunum og aldrei nokkurn tímann hægt að gera það sem reiknilíkanið segir til um. Aðrar stofnanir, svo sem Landspítalinn, virðast geta farið í kringum þetta og keyrt á yfirdrættinum en kannski eru skólameistararnir okkar bara svona trúgjarnir og kennarar hlýðnir, trúa því sem þeim er sagt – að það sé ekki heimild fyrir meiru og gjöriði svo vel! Það er nú þannig að ef fólk er spurt hvort því finnist kennarar fá umbun í samræmi við ábyrgð er svarið yfirleitt nei en um leið og minnst er á hærri laun fer grátkór í gang. Margar breytingar hafa orðið til þess að valda meira álagi í kennarastarfi en áður var og í grunnskólum sérstaklega þurfa kennarar að vera félagsráðgjafar og gegna ýmsum fleiri hlutverkum utan kennarastarfsins. Auk þess varð allt erfiðara eftir að getuskiptingu lauk með nýjum, og reyndar miklu betri, grunnskólalögum. Við finnum líka fyrir fjölgun hlutverka og aukinni ábyrgð í framhaldsskólanum. En ég ítreka: Vinnum þetta með kerfisbundnum hætti. Verum tilbúin að mæta breytingum. Með opnu hugarfari og gagnrýnum, skipulögðum vinnubrögðum getum við bætt kjör okkar í samræmi við það sem við eigum skilið.“ keg Bréf frá lesanda Algjör prins „Hann Stebbi er algjör prins, góður og skemmtilegur félagi með fallegt blik í auga,“ segir Anna M. Gunnarsdóttir samkennari Stefáns. „Ein af mínum betri minningum sem tengjast FB er á þriggja manna tali við hann og annan kennara síð- degispart í Edinborg. Stebbi hefur mikinn áhuga á skólamálum, er vel lesinn og mjög faglegur. Hann getur unnið endalaust og hættir ekki fyrr en allt er klárt. Hann reynir að koma til móts við óskir samstarfsmanna sinna en gætir þess samt að það bitni ekki á nemendum, til dæmis í töflu- og próftöflugerð. Hann er líka ófeiminn að láta samstarfsfólkið heyra það ef það á eftir að skila inn fjarvistum eða skrá einkunnir. Hann er búinn að vinna lengi í FB og er þar öllum hnútum gerkunnugur, þekkir alla fyrrverandi nemendur með nöfnum og oftar en ekki kennitölum líka. FB væri verri skóli án Stefáns Andréssonar.“ Enginn vill að annar sé hærri en hann sjálfur, það er alið á öfund og enginn kemst spönn frá rassi. Blað þetta þarf því að efla og senda heim til allra félagsmanna í KÍ enda mikilvægt fyrir fagvitund og stolt okkar stéttar að eiga málgagn sem berst okkur reglulega í gegnum póstlúguna. Lj ós m yn d f rá h öf u n d i

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.