Skólavarðan - 01.10.2008, Blaðsíða 28
28
FRéTTIR OG TILKYNNINGAR
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 8. ÁRG. 2008
Auður Hannesdóttir númer
tvö þúsund!
Í vor útskrifuðust um eitt hundrað nýir
leikskólakennarar úr Háskólanum á Akureyri
og Háskóla Íslands. Félag leikskólakennara
hélt í þá hefð að taka á móti nýliðunum á
Akureyri í vor og hér í Kennarahúsinu þann
29. október sl. Tækifærið var notað til þess
að halda upp á það að félagar í Félagi leik-
skólakennara eru komnir yfir tvö þúsund.
Auður Hannesdóttir er félagi nr. 2000 en
hún forfallaðist og komst því miður ekki í
móttökuna. Á myndinni má sjá skólasystur
hennar taka við heiðursblómvendi fyrir
hennar hönd í hófinu.
1.desember 2008 – ráðstefna
á fullveldisdaginn
Tilkynning frá Félagi
leikskólakennara og RannUng
Stjórn Félags leikskólakennara ákvað á
fundi þann 6. ágúst síðastliðinn að leita til
RannUng um samstarf við að halda ráðstefnu
áður en árið 2008 líður hjá. Tilefnin eru
mörg, svo sem ný lög um leikskóla og um
menntun og ráðningu kennara og skóla-
stjórnenda. Sextíu ár eru liðin síðan fyrstu
leikskólakennararnir útskrifuðust, tuttugu ár
síðan núverandi stéttafélag var stofnað og
Rannsóknarsjóður er fimmtán ára. Það er því
ærin ástæða til þess að staldra við og skoða
hvar við erum stödd og hvernig við viljum
halda áfram, stéttinni og leikskólanum til
heilla.
Skipuð hefur verið undirbúningsnefnd
og í henni sitja fyrir hönd Félags leikskóla-
kennara Ingibjörg Kristleifsdóttir, Ólöf Helga
Pálmadóttir og Sesselja Hauksdóttir og
frá RannUng þær Sigríður Sturludóttir og
Kristín Karlsdóttir. Nefndin hefur ákveðið að
blása til ráðstefnu þann 1. desember nk. í
húsnæði Menntavísindasviðs HÍ í Stakka-
hlíð. Einhugur er um að bjóða upp á vand-
aða og ögrandi fyrirlestra sem blása okkur
metnaði í brjóst og koma á framfæri því
nýjasta sem er að gerast í rannsóknum á
menntun ungra barna með tilliti til hlut-
verks og fagmennsku kennarans. Fyrirlesarar
verða Arna H. Jónsdóttir, Jón Torfi Jónasson,
Guðrún Alda Harðardóttir, Kristín Karlsdóttir
og Þórdís Þórðardóttir.
Skráning fer fram á wp.khi.is/rannung
Takið frá 1. desember 2008!
Kærar kveðjur, nefndin.
Breyting á úthlutun styrkja úr sjóð
Samstarfsnefndar um endurmenntunar
framhaldsskólakennara
Breyting hefur verið gerð í tengslum við úthlutun styrkja úr sjóðnum.Umsóknarfrestur
er nú tvisvar á ári og fjallað verður um umsóknir óháð tímasetningu námskeiða.
Umsóknarfrestur rennur út 30. apríl og 31.október. Berist umsókn of seint verður hún
tekin fyrir við næstu úthlutun á eftir (þó er miðað við að ekki séu liðnir fleiri en sex til
tólf mánuðir frá því að námskeið var sótt eða haldið).
Nánari upplýsingar um reglur vegna úthlutunar og eyðublöð eru á vef Endurmennt-
unar HÍ, www.endurmenntun.hi.is
Auglýsing frá menntamálaráðuneyti: Styrkir úr þróunarsjóði námsgagna
Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um
styrki úr þróunarsjóði námsgagna
Hlutverk þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu
námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og
fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.
Þróunarsjóður námsgagna starfar samkvæmt lögum um námsgögn nr. 71/2007
og reglugerð um sjóðinn nr. 1268/2007. Umsóknarfrestur er til 24. nóvember 2008.
Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki skulu vera á rafrænu formi. Sækja þarf
um aðgang að umsóknavef ráðuneytisins, umsoknir.menntamalaraduneyti.is/.
Aðgangur er gefinn á kennitölu og er lykilorð sent til viðkomandi á netfang sem gefið
er upp við nýskráningu.
Slæm fjárhagsstaða Sjúkrasjóðs KÍ
Þrátt fyrir aðhaldsaðgerðir í rekstri Sjúkrasjóðs á árinu eru úthlutanir úr sjóðnum ennþá
umfram tekjur og er því óhjákvæmilegt að þrengja reglur sjóðsins enn meira en gert var
í upphafi árs. Frá og með 1. janúar 2009 verða styrkir vegna tannlæknakostnaðar felldir
niður. Umsóknir vegna tannlæknakostnaðar sem berast eftir 1. janúar 2009 verða ekki
afgreiddir. Dagsetning á póststimpli gildir.
að marka spor
Skráning fer fram á heimasíðu RannUng
http://wp.khi.is/rannung
Ráðstefna Félags leikskólakennara
og RannUng þann 1. desember 2008
Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru: