Skólavarðan - 01.10.2008, Page 31
Hlúum vel að þeim sem okkur þykir vænt um
Íslendingar standa frammi fyrir vanda sem snertir unga sem aldna. Mikilvægt er að
huga sérstaklega að velferð barna og unglinga á þessum tímum.
Jafnframt þurfum við öll að hafa í huga að óvönduð umræða
getur verið skaðleg heilsunni. Mikilvægt er því að vanda
orðaval, bæði heima fyrir og á vinnustað, og láta umræðuna
ekki fara úr böndunum.
Höfum í huga:
Góðar samverustundir barna og fullorðinna skapa öryggi
Börnin þurfa að finna að á þau sé hlustað og að þeirra
nánustu séu ekki í hættu
Halda þarf venjum og festu í lífi barnanna þó að mikið
gangi á í samfélaginu
Ræða þarf á yfirvegaðan hátt um að fjármálakreppan sé
tímabundin og þótt nú blási á móti þá beri framtíðin margt
gott í skauti sér.
Fullorðnir þurfa að vera góð fyrirmynd fyrir börnin og allir þurfa að leggjast á eitt um
að takast á við mótlæti á uppbyggjandi hátt. Í landinu býr heilsuhraust, vel menntuð og
dugleg þjóð sem sýnt hefur og sannað að hún getur tekið á vanda þegar þörf krefur.
Tökumst á við erfiðleikana með styrkleika okkar að leiðarljósi.
Kristinn Tómasson
yfirlæknir Vinnueftirlitsins
Sigurður Guðmundsson
landlæknir
Þórólfur Þórlindsson
forstjóri Lýðheilsustöðvar