Skólavarðan - 01.01.2001, Blaðsíða 10

Skólavarðan - 01.01.2001, Blaðsíða 10
Trúnaðarmannastarfið er vanmetið en mikilvægt og samskipti Kennarasambands- ins og félagsmanna fara að miklu leyti í gegnum þá menn sem gegna þessu lykilhlutverki. Það er þó ekki algjörlega án umbunar að mati Steins Ólafs- sonar trúnaðarmanns í Álfta- mýrarskóla. Hann hefur kennt óslitið frá 1973 utan einn vetur en þá lærði hann trésmíði. Hann kennir stærðfræði, eðlisfræði og bókhald í unglingadeild Álftamýrarskóla en eins og margir kennarar drýg- ir hann tekjurnar með aukavinnu. „Maður er svo nautnafrekur á mammon,“ segir Steinn og hlær. „Kennslan dugar ekki til.“ Steinn er búinn að vera í þrettán ár í trúnaðarmennsku og er alltaf á leiðinni að láta gott heita, en það er hægara sagt en gert. „Kennarar hafa ekki verið tilbúnir til að taka við, þeir telja sig ekki hafa þekkingu til þess og svo er þetta líka ólaunað og oft tímafrekt,“ segir Steinn. „Trún- aðarráð Kennarafélags Reykja- víkur fundar u.þ.b. sex sinnum á ári og auk þess sitja trúnaðar- menn eitt tveggja daga nám- skeið. Aðalstarf trúnaðarmanns- ins er svo að flytja upplýsingar frá KÍ og KFR til kennara auk þess sem trúnaðarmenn tala máli þeirra á trúnaðarmannafundum.“ Steinn segir að starfið höfði ágætlega til sín, enda alltaf fylgst vel með kjörum, kjarabaráttu og útreikningi launa. „Ég tók mér einu sinni hlé og þá fannst mér ég detta svolítið út úr umræð- unni um kjör og samninga. Nú- orðið hafa kennarar góðan möguleika á aðgangi að upplýs- ingum, ekki síst í gegnum Netið, og auk þess er trúnaðarmanna- kerfið ágætlega virkt hvað upp- lýsingastreymi varðar.“ Til þess að verða virkur í trúnaðarráði, læra að flytja mál og vinsa úr það sem þarf að flytja til kennara telur Steinn að trúnaðarmenn þurfi að sitja í a.m.k. fjögur ár. „Þegar ég horfi til baka á feril minn sem trúnað- armaður held ég að ég skili þessu aðeins betur núna. Sam- starfið við KÍ er ágætt og ein ástæðan enn fyrir því að æskilegt er að trúnaðarmenn séu ekki of stutt í starfi er sú að þá ná þeir ekki að kynnast vel því fólki sem vinnur á skrifstofunni og er í stjórnum og ráðum á vegum sambandsins. Ég var sjálfur á móti stofnun hins nýja Kennara- sambands,“ segir Steinn, „vegna þess að ég taldi að það væri allt of stórt og yrði ópersónulegt. Að sumu leyti hefur reynslan sann- fært mig enn frekar um þetta og sem dæmi má nefna að formað- ur sambandsins hefur aldrei komið á trúnaðarráðsfund hjá KFR frá stofnun þess. Þetta sýn- ir hvað forystan fjarlægist félags- manninn. Reynsla almennra launþega af stórum heildarsam- tökum á Íslandi, svo sem BSRB og innan verkalýðshreyfingar- innar, hefur ekki verið góð. En vonandi verður hún önnur hjá okkur og við fáum betri samn- inga út úr þessu. Það reynir þá á það núna.“ Steinn segir að enginn kenn- ari ætti að missa af því að vera trúnaðarmaður. „Þar lærir fólk að meta ýmsa þætti og skilja bet- ur af hverju hlutirnir eru ekki öðruvísi og af hverju ekki er hægt að semja um allt milli him- ins og jarðar. Fólk áttar sig ekki til fulls á lögum og reglugerðum fyrr en það hefur farið á nám- skeið eða starfað í þessu, einnig hvernig kjarasamningar eru samsettir, launaseðlar, ráðninga- samningar og alls konar réttindi, svo sem veikindaréttur og or- lofsréttur.“ Steinn bendir á að þótt þakk- læti í kennarastarfinu sé ef til vill ekki mjög mikið þá sé það engin nýlunda fyrir kennara. „Í smíð- um og flísalögnum fær maður þakklætið strax,“ segir Steinn, „en í kennslunni endrum og sinnum þegar maður hittir gamla nemendur og foreldra sem sumir hverjir gefa manni gott orð. Kennurum sem tolla lengi í starfi, eru trúir sínum vinnustað og stuðla að festu og öryggi er hins vegar hægt að umbuna með því til dæmis að veita þeim heim- ild til að taka allt að fimm daga frí yfir veturinn án þess að hýru- draga þá eða láta þá vinna það upp með öðrum hætti. Til dæm- is mætti miða við að þetta kæmi eftir tuttugu ár í starfi og þar af fimm við sama skóla. Reynsla sem skapar stöðugleika í skóla- starfi og aðhald í vinnu nemenda er einskis metin.“ Hróður íslenska trúnaðar- mannakerfisins hefur borist víða, reyndar alla leið til suður- hluta Afríku. Valgeir Gestsson þekkir manna best sögu trún- aðarmannakerfisins og á heið- urinn af að því var komið á fót, þótt hann haldi þeim upplýs- ingum ekki á lofti sjálfur. Skólavarðan janúar 2001 Trúnaðarmenn 12 Lífæð samskiptanna Trúnaðarmenn Tenging KÍ og kennara Starf sem allir ættu að reyna Norskt líkan, íslenskt kerfi, afrísk fyrirmynd „Sem trúnaðarmenn lærir fólk að skilja af hverju ekki er hægt að semja um allt milli himins og jarðar,“ segir Steinn Ólafsson Hér með sæmi ég þig nafnbótinni „ Trúnaðarmaður.“

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.