Skólavarðan - 01.01.2001, Qupperneq 15
lauk í ágúst 2000. Þá lá fyrir lýsing eða
skýrsla um skipulag og starfshætti í hverjum
skóla. Ennfremur komu fram viðhorf nem-
enda. Í Garðaskóla voru það sex kennarar
auk skólastjóra og tólf nemenda sem unnu
þetta verk. Kennararnir og nemendurnir
tóku þátt í gagnkvæmum heimsóknum í
skólana á fyrrnefndu tímabili.
Skýrsla Garðaskóla á ensku er birt á
heimasíðu skólans, www.gardabaer.is/
gardaskoli. Hún er einnig til á íslensku.
Mikil vinna var lögð í skýrsluna enda telj-
um við að hún gefi nokkuð góða mynd af
starfi nemenda og kennara í Garðaskóla.
Nemendaheimsóknirnar stóðu yfirleitt í
viku og voru bæði gagnlegar og skemmtileg-
ar að mati þátttakenda. Um það bil fjórir
nemendur og einn eða tveir kennarar tóku
þátt í þeim. Nemendur bjuggu hver á annars
heimilum og kennararnir hver hjá öðrum.
Nemendur þurftu sjálfir að greiða stærsta
hluta af ferðakostnaði sínum. Nemendur
og foreldrar þeirra stóðu afskaplega vel að
móttöku gesta sinna og lögðu sig fram um
að gera þeim dvölina sem ánægjulegasta.
Nemendur og kennarar hafa skrifað ágæta
lýsingu á heimsóknunum sem birtist í
fréttablaði skólans í desember 2000.
Í anddyri skólans hefur verið komið upp
töflum merktum samstarfsskólunum með
myndum, bæklingum og ýmsum öðrum upp-
lýsingum um viðkomandi skóla, bæ og land.
Á bókasafni skólans eru til miklar upplýsingar
um skólana, skýrslur þeirra og fjölmargt ann-
að sem nemendur og kennarar geta kynnt sér.
Á fundi sem skólastjórar allra skólanna
sátu í byrjun október sl. í Garðabæ var
næsta verkefni ákveðið og lögð drög að
samstarfsverkefnum næstu tveggja ára.
Næsta verkefni sem fór af stað með
kynningarbréfi til allra nemenda í öllum
skólunum í október er „Building bridges
for Europe“. Það er fólgið í gerð mynda og
ljóða um efnið. Tíu bestu myndirnar og
ljóðin í hverjum skóla verða gefin út í lit-
prentaðri bók sem kemur út í júní og verð-
ur dreift í öllum skólunum í ágúst 2001.
Nemendur eiga að skrifa ljóðin á móður-
máli sínu. Stutt skýring á ensku fylgir
hverju ljóði. Í bókinni verður einnig ítar-
legur formáli sem skólastjórarnir skrifa,
myndir og nöfn allra þátttakenda í verkefn-
inu. Verkefnið felur einnig í sér gagnkvæm-
ar heimsóknir nemenda og kennara eins og
áður er lýst. Þær voru ákveðnar og dagsett-
ar á fundi skólastjóranna í október sl.
Undirritaður telur að þátttaka skólans í
þessu samstarfi gefi nemendum og kennur-
um skólans stórkostleg færi á að kynnast
starfsfélögum sínum í öðrum löndum og
aðstæðum og siðum þeirra. Ef til vill er þó
mesti fengurinn í að fá góða gesti í heim-
sókn og fá tækifæri til þess að ræða við þá
um kosti og galla íslenska skólakerfisins.
Fyrir hönd nemenda og starfsmanna
Garðaskóla þakka ég þau tækifæri sem við
höfum fengið til þessa samstarfs um leið og
ég vona að okkur gefist fleiri slík á komandi
árum.
Skólavarðan janúar 2001
17
Comeniusarverkefn i í Garðaskóla
eru styrktir frá heimalandi sínu í 3-8 mán-
uði, kennsluskylda 12-16 stundir á viku.
Markmiðið er að kynna fyrir nemendum
tungu aðstoðarkennarans og auka skilning
og þekkingu á menningu annars Evrópu-
lands.
Umsóknarfrestur er til 1. mars.
Comenius 2 - endurmenntun
kennara/þjálfun skólafólks:
Þessi þáttur miðar að því að efla fag-
þekkingu skólafólks með því að styrkja allt
námsferlið, þ.e. menntun verðandi kenn-
ara, endurmenntun og þjálfun síðar á
starfsævinni. Stefnt er að:
• Samvinnu kennaraháskóla frá
mismunandi löndum.
• Auknu úrvali námskeiða og
þjálfunarmöguleika fyrir kennara.
• Bættu aðgengi til þjálfunar í öðrum
þátttökulöndum.
Skilyrði:
Samstarf a.m.k. þriggja stofnana sem
starfa við þjálfun og/eða endurmenntun
kennara í þremur löndum sem taka þátt í
Sókrates.
Umsókn berist fyrir 1. mars til fram-
kvæmdastjórnar ESB í Brussel. Afrit um-
sóknar skal sent landsskrifstofu til umfjöll-
unar.
Verkefni geta varað í allt að þrjú ár.
Veittir eru styrkir til undirbúningsheim-
sókna til að koma á samstarfi en lands-
skrifstofan hefur umsjón með úthlutun
þeirra.
Þjálfun/endurmenntun - hagnýt þjálfun
verðandi kennara:
Styrkir veittir til hagnýtrar þjálfunar er-
lendis fyrir verðandi kennara í 1-10 vikur
sem er hluti af viðurkenndu námi.
Starfsreynsla verðandi tungumála-
kennara:
Verðandi tungumálakennarar aðstoða
við kennslu í ESB-landi. Styrkir veittir í
3-8 mánuði, kennsluskylda 12-16 stundir
á viku.
Endurmenntunarnámskeið fyrir kennara
á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi:
Styrkir veittir einstaklingum til að sækja
endurmenntunarnámskeið Comeniusar í
1-4 vikur.
Umsóknarfrestur er til 1. mars.
Comenius 3 - Comeniusarnet:
Comeniusarnet miða að því að tengja
saman aðila sem hafa unnið að Comeni-
usarverkefnum í vissum málaflokk-
um/þemum með það að markmiði að ýta
undir evrópska samvinnu og nýjungar í
menntamálum.
Að minnsta kosti sex menntastofnanir í
sex þátttökulöndum taki þátt. Verkefni skal
stjórnað af skóla á háskólastigi eða yfir-
völdum menntamála. Verkefni geta varað
í allt að þrjú ár.
Umsóknarferli er tveggja þrepa, 1. nóv-
ember tillaga að verkefni, 1. mars lokaum-
sókn. Umsóknir vegna Comeniusarneta
berist til framkvæmdastjórnar ESB í
Brussel.
Sókratesáætluninni er stjórnað af lands-
skrifstofum þátttökulanda. Upplýsingar
um þær er að finna á heimasíðu lands-
skrifstofunnar á Íslandi. Frekari upplýsing-
ar fást hjá landsskrifstofu Sókratesar, Nes-
haga 16, 107 Reykjavík, sími 525 4311, net-
fang: ask@hi.is, heimasíða: www.ask.hi.is
Á vefsíðunni: http://europa.eu.int/
comm/education/socrates.html
Nánari upplýsingar um Sókratesáætlun-
ina er að finna í bæklingnum Guidelines
for applicants.
Franskir gestir í Garðaskóla