Skólavarðan - 01.01.2001, Page 16
Fimmtudagur 14. des.
Ég byrja daginn yfirleitt á því að keyra
dætur mínar í skólann, þá yngri í Lauga-
lækjarskóla og þá eldri í Menntaskólann í
Reykjavík. Vegna verkfallsins lá Hrafnhild-
ur, menntaskólaneminn, ennþá sofandi í
rúmi sínu þegar við Brynhildur lögðum af
stað kl. 7:50 um morguninn. Hrafnhildur
vinnur í vetur með skólanum og er auk þess
í Nýja tónlistarskólanum svo að hún hefur
ekki setið algjörlega iðjulaus í verkfallinu.
Þessa vikuna er hún að undirbúa
nokkra tónleika, m.a. nemenda-
tónleika og í strengjasveit með
kór Grensáskirkju. Brynhildur er
líka önnum kafin. Auk skólans er
hún í fermingarfræðslu og æfir
dans. Sunnudaginn 10. desember
sýndi hún dans með hópi stúlkna
á nemendasýningu Kramhússins.
Kl. 10 fórum við nokkur úr
samninganefndum FG og
Launanefndar sveitarfélaga í
vettvangsferð og sóttum Korpu-
skóla heim. Það var hreint frá-
bær heimsókn. Allir á kafi í jóla-
undirbúningi og nemendur,
kennarar, skólastjórar og annað starfsfólk
svo áhugasamt að ég er sannfærð um að
viðsemjendur okkar alla sem einn langaði
að starfa í skólanum! Það var óneitanlega
sérstakt að fara með þeim í skólaheimsókn.
Við Finnbogi Sigurðsson, varaformaður
FG, ákváðum að heimsækja alla skóla
landsins á kjörtímabilinu og höfum þegar
heimsótt rúmlega 140. Þessar heimsóknir
eru mér ómetanlegar. Athyglisvert er að sjá
hversu margir skólar eru vel útbúnir og hve
mörg sveitarfélög vilja sýna metnað sinn í
verki.
Kl. 12 áttum við Birgir Björn Sigurjóns-
son, formaður samninganefndar Launa-
nefndar sveitarfélaga, fund með Jónínu
Bjartmarz, formanni Heimilis og skóla.
Hún og Anna, framkvæmdastjóri samtak-
anna, tóku vel á móti okkur og lýstu yfir
vilja til mun meira samstarfs.
Eftir hádegi var fundur með viðsemjend-
um okkar vegna kjarasamninganna. Við
fórum yfir verkefni annars áfanga viðræðu-
áætlunarinnar og lukum samantekt yfir þau
atriði sem við erum sammála um. Við unn-
um fram eftir degi og að því loknu fór ég í
Kennarahúsið og svaraði tölvupósti en fé-
lagsmenn og þá sérstaklega trúnaðarmenn
eru duglegir að senda okkur fyrirspurnir,
ekki síst núna vegna viðræðnanna. Það var
orðið áliðið þegar ég kom heim og settist
við fistölvu sem FG fjárfesti í nýlega og
skrifaði ávarp sem ég flutti síðan daginn
eftir í friðargöngu framhaldsskólanema.
Föstudagur 15. des.
Kl. 10 var fundur í samninganefnd FG í
Kennarahúsinu. Meginefni hans var að
undirbúa framhald samningaviðræðnanna.
Það ríkir mjög góður andi í hópnum. Ég á-
kvað í upphafi að leggja mikla áherslu á efl-
ingu liðsandans og að sérhver hefði vissu
hlutverki að gegna í nefndinni. Allir fengu
heimaverkefni í haust þar sem hver og einn
átti að velta fyrir sér hlutverki sínu annars
vegar og nefndarinnar í heild hins vegar.
Þau sendu mér síðan hugleiðingar sínar við
spurningunni: Hvernig getur samninga-
nefnd FG starfað saman til sigurs? Frábær
svör sem sýna mér og sanna að ég hef verið
einstaklega heppin með samstarfsfólk!
Í hádeginu var ákveðið að nefndin færi á
kaffihús en á meðan átti ég fund með Birni
Bjarnasyni menntamálaráðherra ásamt
Birgi Birni Sigurjónssyni formanni samn-
inganefndar Launanefndar sveitarfélaga til
að kynna stefnuyfirlýsingu með kjarasamn-
ingi. Ráðherra tók okkur mjög vel og lýsti
yfir sérstakri ánægju með þá aðferð sem á-
kveðið var að fara í viðræðunum.
Kl. 13:30 var haldinn áttundi
samningafundur grunnskóla-
kennara og sveitarfélaga og var
hann stuttur eins og oft áður.
Ástæðan er sú að vinnan fer
aðallega fram í smærri hópum á
milli funda.
Kl. 15:30 var fundur í stjórn
Kennarasambands Íslands og
var meginverkefni hans að fjalla
um nýtt skipulag og starfsskipt-
ingu innan Kennarahússins sem
Eiríkur Jónsson formaður KÍ
hefur unnið í samráði við starfs-
menn. Við lýstum yfir mikilli á-
nægju með þetta en fyrsta árið
hefur verið undirbúnings- og reynslutíma-
bil. Ég verð alltaf sannfærðari um að það
var mikið gæfuspor að sameina KÍ og HÍK
og að skipulagið sem við settum hinu nýja
Kennarasambandi hafi verið það eina rétta.
Hins vegar þarfnast það slípunar og endur-
skoðunar í ljósi reynslunnar.
Kl. 18 fór ég niður á Ingólfstorg og hitti
fámennan en góðmennan hóp framhalds-
skólanema og flutti þeim ávarpið mitt.
Þarna var líka Jónína Bjartmarz og Illugi
Jökulsson og öll eigum við það sameigin-
legt að eiga börn í framhaldsskóla. Hins
vegar tók hvorugt þeirra (eða ekkert okk-
ar?) þátt í friðargöngunni. Frá því um
morguninn hafði verið algjört slagveður en
skömmu áður en gangan hófst kom þessi
yndislegi jólasnjór. Mér var ekkert kalt
enda hafði elskulega mamma mín komið í
Kennarahúsið með sjal til að lána mér.
Pabbi og mamma hugsa ennþá svo vel um
mig þrátt fyrir að ég sé orðin rígfullorðin!
Um kvöldið var svo jólamatur stjórnar og
starfsfólks Kennarahússins og áttum við þar
góða stund, sungum jólalögin og ræddum
málin. Létum reyndar ekki þar við sitja
heldur fórum í bæinn og hittum þar fleira
gott fólk.
Pist i l l
Skólavarðan janúar 2001
Grunnskólinn á Hellissandi er einsetinn skóli með 101 nemanda. Í haust hafa stærð-
fræðikennarar elstu bekkjanna brotið upp hefðbundna vinnu með svokallaðri sjöþraut.
Einu sinni í viku er farið út og byggingar eða staðir í nágrenni skólans skoðuð og
gerðar á þeim ýmsar mælingar. Sem dæmi má nefna að flatar- og rúmmál olíutanka
voru mæld, skólalóðin tekin fyrir og ýmislegt fleira. Þetta hefur verið skemmtileg til-
breyting í kennslu og hafa kennarar og nemendur haft gagn og gaman af
Sjöþraut á Hellissandi
18
Hvað ertu að gera þessa dagana? Guðrún Ebba Ólafsdóttir, formaður FG, var spurð á aðventu og ekki stóð á svari.
Tveir dagar í desember