Skólavarðan - 01.01.2001, Page 20

Skólavarðan - 01.01.2001, Page 20
Ég er svo heppin að fá að vinna við það sem mér þykir óstjórnlega skemmtilegt. Þakklát fyrir að fá að vera í „farvegi lífsins“, eins og ég kalla skólastarfið með sjálfri mér. Að fá að umgangast öll þessi yndislegu börn og foreldra þeirra sem ég hef lært svo margt af. Lífið er dásamlegt og margbreyti- legt og það kristallast í skólastarfinu, í vinnu minni með nemendum, þeir eru frjó- angarnir, framtíðin. Í þessu starfi er endalaust hægt að gera betur en smásigrarnir eru margir, gleðin yfir tilsvörum, augnatilliti, vaknandi skiln- ingi, framförum. Þessi ánægjulega vinna er stöðug ögrun, áskorun. Áskorun um að mæta nemendum okkar nákvæmlega þar sem þeir eru og leiðbeina þeim við að afla sér þekkingar og ná færni á öllum þeim sviðum sem mannlegt samfélag krefst. Mannlegt samfélag árið 2000 á Íslandi sem er reyndar gegnsýrt af skelfilegu neyslu- brjálæði, efnislegu lífsgæðakapphlaupi, kaupa, kaupa, eiga, eiga. Og það er látið eins með þekkinguna, þar á allt að gleypa, gleypa, tölvur, tölvur, meira, meira. „Kerisminn“ allsráðandi Mér hefur oft dottið í hug að undanförnu það sem einn af lærifeðrunum í Kennarahá- skólanum talaði um: mismuninn á „ker- isma“ og „jurtisma“. Fyrrgreinda stefnan byggist á því að hella þekkingunni ofan í nemendur, með góðu eða illu, en hin á því að hlúa að nemandanum eins og blómi þannig að hann fái bestu mögulegu skilyrði til þess að geta blómstrað. Kerisminn er allsráðandi í samfélagi okkar núna, heyrst hefur til dæmis frá valdamiklum aðilum í skólakerfinu að upplagt sé að spara kennara og láta tölvurnar um að koma fróðleiknum ofan í börnin. Hvernig eiga svo blessuð börnin að vinna úr öllum þessum upplýs- ingum sem stappað er í þau? Áreitin sem börn og unglingar verða fyrir eru gífurleg. Og þá þarf sem aldrei fyrr sterka, vel menntaða kennara til þess að leiðbeina æsk- unni um úrvinnslu á öllum sviðum, náms- lega, tilfinningalega, félagslega og jafnvel andlega. Kennara sem eru sælir, ánægðir og öruggir með launin sín, kennara sem geta treyst því að samstarfsfólkið hafi svipaðar forsendur þannig að hægt sé að byggja upp kraftmikið námsumhverfi. Sterkt leiðandi afl Við erum orðin leikin í því að bjarga fyrir horn en það er ekki hægt að koma þriggja ára kennaraháskólanámi inn í hausinn á leiðbeinanda á nokkrum samstarfsfundum að hausti til þótt viðkomandi sé allur af vilja gerður. Það verður að hækka launin, það segi ég af einlægri umhyggju fyrir æsku þessa lands og raunverulegum áhyggjum af menntun hennar. Við skólafólk eigum að vera sterkt, leið- andi afl í samfélaginu á grundvelli faglegrar þekkingar okkar, verða áberandi, eiga frumkvæði og taka þátt í umræðunni. Það er dálítið erfitt í okkar litla landi því að við erum að vinna með mislitlar manneskjur og erum þess vegna mjög varkár í allri opin- berri umræðu, við erum nefnilega líka svo dugleg að taka faglega ábyrgð. En við fáum alltaf annað slagið pílur frá hinum og þess- um prelátum, tuðaranum á stöð tvö á föstu- dagsmorgnum, Illuga og Spegilsmönnum. Við getum látið okkur sárna, farið í vörn og óhemjulegt píslarvætti eða tekið gagnrýnina til greina, skoðað, vegið og metið og svar- að! Oft er þessum pílum skotið af boga fá- fræði og fordóma en stundum gætum við kannski lært eitthvað af þeim. Hvað er árangur og hvernig er hann mældur? Eitt af því sem oft er talað um „þarna úti“ er „árangurstenging kennaralauna“. Um hvað er þá í raun verið að tala? Hvernig á að mæla? Eiga samræmdu prófin að vera mælikvarðinn? Hvað með „hina mismun- andi greind?“ Hver ætlar að mæla gleði barnsins og vilja til að læra? Eðli kennarastarfsins er sveigjanleiki byggður á festu. Þetta er ekki mótsögn. Við verðum að þora að horfast í augu við nú- tímann og þær kröfur sem eru gerðar til skólans. Þora að breyta. Hvernig væri að hafa vikulangt haustfrí í lok október eins og tíðkast í öllum nágrannalöndum okkar? Og annað í febrúar til þess að æska landsins geti til dæmis komist á skíði? Og stytta sumarfríið svolítið? Af hverju opnum við ekki skólana meira þannig að úr verði eins konar námsmiðstöðvar fyrir alla fjölskyld- una? Hvað þýðir „fjárhagslegt sjálfstæði skóla?“ Heyrst hefur af nýjum tóni á fund- um okkar fólks og sveitar- stjórnarmanna, ómþýðum klið um tiltekt í allt of stöðnuðum kjarasamningi grunnskólakenn- ara. Fáum við hærri laun? Á að binda viðverutíma í skólum meira? Mikil sveifla er í samfélaginu í þá átt að vinnutími verði sveigjanlegri. Hvað ætl- um við að gera? En umfram allt: er ekki kominn tími til þess að umsjónarkennarar fái meira greitt fyrir umsjónina? Til dæmis að hún verði 30% af fullri stöðu? En við þurfum líka að sýna festu. Börn eru ekki ker. Tölvur koma ekki í stað kennara. Það er hinn persónulegi „fundur“ kennara og nemanda sem er lykilatriði í allri kennslu og uppeldisstarfi. Þess vegna þarf okkur að líða vel í vinnunni og það berst enginn fyrir því ef við gerum það ekki sjálf. Elín Vigdís Ólafsdóttir. Höfundur útskrifaðist úr Kennaraháskóla Íslands árið 1984 og hefur kennt að mestu í Seljaskóla en undanfarin þrjú ár á miðstigi í Engjaskóla. Hún er í sambúð og á þrjá syni. Skólavarðan janúar 2001 Smiðshöggið Hugleiðingar kennslukonu á nýliðinni aðventu Sveigjanleiki byggður á festu Það er hinn persónulegi „fundur“ kennara og nemanda sem er lykilatriði í allri kennslu og uppeldisstarfi. 22

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.