Skólavarðan - 15.10.2002, Síða 10

Skólavarðan - 15.10.2002, Síða 10
samræmdu prófin og Guðmundur kallar það mistök að hafa samræmd próf í fjórða, sjöunda og tíunda bekk og telur það kerfis- bundið niðurbrot á nemendum: „Við get- um slegið því föstu að engin þjóð í heimin- um, í það minnsta sem við viljum bera okk- ur saman við, gerir skólakerfi sitt út með þessum hætti. Það byrjar enginn að brjóta nemendur niður kerfisbundið í fjórða bekk. 30% af árganginum fá einkunn undir fjór- um. Og þessi einkunn fylgir þér það sem eftir er í grunnskóla, fylgnin er um það bil 80% samkvæmt rannsóknum, og því hlýtur maður að spyrja hver sé tilgangurinn með þessum prófum. Er hann þumalskrúfa ráðuneytisins á skóla í landinu? Íslenskt skólakerfi er mjög miðstýrt og því líklegt að það sé lakara en ella. Þessi próf hamla eðlilegri skólaþróun, í það minnsta vekja þau upp spurningar um tilgang þeirra. Hvað segir samanburður sem sprettur upp úr þessum jarðvegi og til hvers er hann? Er tilgangurinn að reyna að skapa óánægu og óvissu, eða hvað? Allur samanburður af þessu tagi er út í bláinn. Prófin sem slík eru ekki einu sinni samanburðarhæf á milli ára. Þarna er íslenskt menntakerfi á alvarlegum villigötum.“ Þórgunnur tekur undir með Guðmundi og bendir á að athuga þurfi marga þætti þegar bornar eru saman niðurstöður í sam- ræmdum prófum, þar á meðal skort á menntuðum kennurum úti á landi. „Víða á landsbyggðinni eru aðstæður þannig að mikil hreyfing er á kennurum og stór hluti þeirra gjarnan leiðbeinendur,“ segir Þór- gunnur. „Hér höfum við brugðist við með því að hvetja fólk til fjarnáms og er það far- ið að skila nokkrum árangri, en eins og allir sjá hefur þessi sérstaða mikil áhrif á skóla- starf. Það er þó ekki eina ástæðan fyrir því að við á landsbyggðinni komum verr út úr samræmdum prófum, þar kemur margt til. Við megum heldur ekki gleyma því að við eigum líka mikið af góðu námsfólki sem við eigum að vera stolt af.“ Hulda tekur undir þetta: „Hvað er í raun verið að bera saman? Það er ekki bara kunnátta sem mælanleg er á samræmdum prófum sem segir til um það hvernig ein- staklingnum vegnar í lífinu, það er svo margt sem spilar þar inn í. Þess vegna finnst mér þessi prófastimpill ekki eiga rétt á sér, hann er oft of þungur dómur fyrir marga krakka.“ Samræmdu prófin eru notuð til að meta árangur nemenda og til að raða þeim niður á framhaldsskólastigi og eru að mati Eyjólfs ágæt sem slík: „Samræmdu prófin hafa reynst ágæt mælistika á árangur nemenda í framhaldsskólum en við lítum ekki á þau sem einhvern lokadóm. Við tökum nem- endur inn á forsendum þessara prófa en skoðum líka skólaeinkunn. Hluti af vanda- málinu með samræmdu prófin er hvað þau eru blásin upp og látin verða að lokadómi. Við eigum að nota þau til að bera saman það sem við viljum bera saman en skóla- hald er farið að snúast of mikið um sam- ræmdu prófin. Árangur í framhaldsskóla hefur til dæmis lítið forsagnargildi um ár- angur í háskóla, það er lítil fylgni þar á milli. Einkunnin segir bara til um stöðu nemandans á þeim tíma sem hann tekur prófið og búið.“ „Þetta er kjarni málsins,“ segir Guð- mundur, „hverjar eru námskrárnar í grunn- skólanum? Jú, það eru samræmdu prófin frá því í fyrra og hitteðfyrra. Við erum í raun ekki að gera annað en að undirbúa nemendur undir þessi próf og ef við tökum ekki þátt í þeim hrunadansi hvað þá? Auð- vitað þarf að prófa nemendur en þetta er komið út yfir gröf og dauða. Þetta hefur of mikil áhrif á starf grunnskólans.“ Um þetta segir Þórgunnur: „Þetta er svo sorglegt, við steypum alla í sama farið. Hugsaðu þér hvað það væri frábært ef við gætum fengið að vinna okkar starf í hverj- um skóla fyrir sig og látið svo framhalds- skólana um að meta krakkana inn. Þeir kæmu örugglega ekkert verr út. Til hvers eigum við að vera að því í tíu ár, með þremur stórum samræmdum prófum, sem framhaldsskólinn gæti gert á einum mán- uði, sérstaklega ef forspárgildi samræmdra prófa er ekki meira en raun ber vitni?“ Öll eru þau sammála um að þetta komi fyrst og fremst niður á skapandi starfi í skólunum og hamli skólaþróun, þá sérstak- lega á gagnfræðastigi þegar kennarar leggi megináherslu á upprifjun og kennslu sem miðar að því að ná sem bestum árangri á prófunum. Staðreyndapróf afturhvarf til gamla landsprófsins „Þetta er að færast yfir í gamla lands- prófið. Til þess að geta gengið hindrunar- laust inn í hvaða framhaldsskóla sem er þarf einkunnina sex. Er þetta ekki að verða sama tóbakið? Nú er búið að taka upp próf í samfélagsfræði svo það er eins gott að fara að bursta rykið af ártalalistanum, í náttúru- fræði eru eintómar krossaspurningar og menn læra utanbókar, þetta eru bara stað- Skóla l í f á Höfn 11 Þórgunnur: Hugsaðu þér hvað það væri frábært ef við gætum fengið að vinna okkar starf í hverjum skóla fyrir sig og látið svo framhalds- skólana um að meta krakkana inn. Þeir kæmu örugglega ekkert verr út. Til hvers eigum við að vera að því í tíu ár, með þremur stórum sam- ræmdum prófum, sem framhaldsskólinn gæti gert á einum mánuði, sérstaklega ef forspárgildi samræmdra prófa er ekki meira en raun ber vitni? Skólafólkið á Höfn sér ýmsa vaxtarbrodda í skólastarfinu og er ánægt með samvinnuna á milli skól- anna. En þegar talið berst að hinum miðstýrðu samræmdu prófum hleypur þeim kapp í kinn.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.