Skólavarðan - 15.10.2002, Side 16

Skólavarðan - 15.10.2002, Side 16
frekar kjósa að hljóðfæratímar nemenda væru í föstum skorðum. Skýrsluhöfundar segja að huga þurfi sér- staklega að eftirfarandi faglegum atriðum þegar valið er á milli fastrar og hlaupandi stundaskrár: • Fjölda nemenda í stundaskrá hljóðfærakennarans. • Styrkleikum þeirra og veikleikum í hinum ýmsu greinum. • Aldri þeirra og þroska. • Námsáhuga nemandans bæði í almennu námi og tónlist. • Tímasetningu námsgreina sem nemandinn vill ógjarnan missa af. • Óskum nemandans um að vera í árdegis- eða síðdegistímum. Nauðsynlegt er að skipuleggjendur tón- listarkennslu í grunnskólum sýni sveigjan- leika og fari að óskum skólastjóra, kennara og nemenda eftir því sem frekast er unnt. Nauðsynlegt er jafnframt að mati Þóris og Sigurgríms að varðveita þann velvilja í garð hljóðfærakennslu í grunnskólum sem kom- ið hefur í ljós í þessari tilraun. Ekki allsherjarlausn Meginniðurstöður tilraunarinnar eru eft- irfarandi: a) Sú tilhögun að börn fái að fara út úr bekkjartíma í hljóðfæratíma í 30 mínútur tvisvar í viku skaðar ekki námsárangur þeirra í kjarnagreinunum íslensku og stærðfræði. b) Fyrirkomulagið nýtur stuðnings mik- ils meirihluta foreldra, barna, hljóðfæra- og bekkjarkennara eins og það var framkvæmt í þessari tilraun. c) Fyrirkomulagið getur gengið í góðri sátt þessara aðila ef rétt er að málum staðið. d) Ekki ætti að líta á fyrirkomulagið sem allsherjarlausn á vanda tónlistarfræðslunnar heldur sem eitt úrræði til að létta á megin- þunga hennar síðdegis. Á grundvelli þessara niðurstaðna og reynslunnar sem fékkst í verkefninu leggja Þórir Þórisson og Sigurgrímur Skúlason fram eftirfarandi tillögur: 1. Að haldið verði áfram að taka nem- endur út úr bekkjartímum til hljóðfæra- náms og litið á það sem eina af þremur leiðum til að lengja starfsdag tónlistar- fræðslunnar og gefa fleirum kost á slíku námi. Í annan stað standi nemendum til boða að stunda hljóðfæranám síðdegis eins og verið hefur. Í þriðja lagi verði könnuð sú leið að skipta stundaskránni í náms- blokkir og nýta lausar blokkir til hljóðfæra- náms. 2. Að hugað verði að þáttum eins og stöðu nemenda í almennu námi, metnaði, áhrifum fjölbreyttari skóladags á nám þeirra, félagslegri stöðu, ásamt þörf og getu nemenda til að takast á við ábyrgð á eigin námi. Nemandinn, bekkjarkennari og for- eldri verða að meta þessa þætti saman og vega kosti og ókosti fyrir hvern og einn. 3. Reykjavíkurborg byggi upp aðstöðu til hljóðfærakennslu í 1-2 grunnskólum í Reykjavík fyrst í stað, þar sem bæði verði nýttar lausar blokkir í stundaskrá til hljóð- færanáms og jafnframt haldið áfram að þróa það kerfi að taka nemendur út úr bekkjartímum. 4. Að hámarki verði teknir 2-3 nemend- ur til hljóðfæranáms út úr hverjum bekk. 5. Að eingöngu verði teknir út úr tíma þeir nemendur sem eru ánægðir með það. Aðrir mæti í hljóðfæratíma síðdegis. 6. Að fara út úr bekkjartíma til hljóð- færanáms hentar best áhugasömum nem- endum bæði í almennu námi og á tónlistar- sviðinu. Þeim sem hlakka til tónlistartím- anna og líta á þá sem kærkomna tilbreyt- ingu. 7. Hljóðfæra- og bekkjarkennarar hafi náið samstarf um að þróa þá stundaskrá hljóðfæratímanna sem best hentar á hverj- um tíma: Hlaupandi stundaskrá, fasta, eða sambland af hvoru tveggja. 8. Sé hlaupandi stundaskrá notuð ætti hún bæði að hanga uppi í bekkjarstofunni og á heimili nemandans. 9. Æskilegt væri að láta fyrstu tíma skóladagsins ótruflaða þar sem flestir bekkjarkennarar nota þá mest til innlagnar og útskýringa. 10. Hljóðfærakennarar sæki sjálfir börnin eða hringi eftir þeim í hljóðfæratímana og noti þá boðleið sem bekkjarkennarinn kýs frekar. Hljóðfærakennarar hafi tíð samskipti við bekkjarkennara og foreldra um framkvæmd þess fyrirkomulags að leyfa börnum að fara út úr tímum til hljóðfæranáms. 12. Að fyrirkomulagið verði notað til að veita meiri tónlist inn í grunnskólana, svo sem með tónlistaratriðum á bekkjar- skemmtunum o.fl. Unnið upp úr skýrslunni „Hljóðfæranám sem hluti af samfelldum skóladegi“ eftir Þóri Þórisson og Sigurgrím Skúlason. keg Ti l raun í h l jóðfæranámi 17 X hætti í tónlistarskóla í fyrra vegna þess að hún þurfti alltaf að fara dauð- þreytt eftir skóla. Hún er miklu ánægðari í þessu kerfi. Foreldri Ávinningur af fyrirkomulaginu þarf að vera á báða vegu. Bekkj- arkennarinn geti til dæmis nýtt sér tónlistaratriði á bekkjar- skemmtunum. Hljóðfærakennari

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.