Skólavarðan - 15.10.2002, Síða 15

Skólavarðan - 15.10.2002, Síða 15
• Að hljóðfærakennarinn festi hljóðfæra- tíma nemanda þar sem hann er sterkastur fyrir. • Að forðast sé að skerða frímínútur með því að gera hlé á hljóðfærakennslu samtímis. • Að sneitt sé hjá leikfimitímum nemenda við skipulagningu hljóðfæratíma. Einnig kom fram að stundum væri hægt að senda nemendur í sérgreinar (t.d. tölvu) á öðrum tíma. Beittu ýmsum ráðum Annar ókostur sem nefndur var til sög- unnar var sá að hluti barnanna gleymdi hljóðfæratímum. Fjórðungur nemenda nefndi að þeim þætti erfitt að muna eftir tímunum af því að tímasetningar breyttust vikulega. Fjarvistir vegna gleymsku eru einnig vandamál í síðdegiskennslu þar sem tímar eru í föstum skorðum en hlaupandi stundaskrá í árdegiskerfinu virðist þó eiga nokkra sök á þessu. Til úrbóta beittu hljóðfærakennarar ýmsum ráðum þennan vetur. Flestir sendu nemendur heim með stundaskrá hljóðfæratímanna fyrir 4-6 vik- ur í senn og létu afrit hanga í bekkjarstof- unni. Það dugði sumum en ekki öllum. Viðhorf foreldra og bekkjarkennara voru þau að í svona kerfi væri raunhæfasti kost- urinn sá að hljóðfærakennarinn bæri meg- inábyrgð á því að börnin mættu í tíma. Al- gengustu röksemdir voru þær að bekkjar- kennarinn hefði of margt á sinni könnu og að foreldrar væru ekki á vettvangi til að minna barnið á. Þrjú áhersluatriði Þrjú meginstef komu ítrekað fram í við- tölum við jafnt bekkjar- og hljóðfærakenn- ara sem foreldra og nemendur: 1. Að fyrirkomulagið henti mörgum börnum en ekki öllum. 2. Að fjöldi þeirra barna sem tekin séu út í hverjum bekk skipti kennara máli. 3. Hvort hlaupandi tafla eða föst stunda- skrá hljóðfæratíma sé heppilegri lausn. Í viðtölum við bekkjarkennara kom fram að huga þurfi að ýmiss konar einstaklings- mun áður en ákvörðun er tekin um hvort barn skuli tekið út úr bekkjartímum til hljóðfæranáms eða ekki. Þriðjungur þeirra taldi það skipta meginmáli hvers konar börn ættu í hlut - fyrirkomulagið hentaði mörgum börnum en ekki öllum og þá sér- staklega ekki börnum með námsörðugleika og kærulausum börnum. Öndverð skoðun, að öll börn þoli að víkja úr kennslustund til hljóðfæranáms, kom þó fram hjá nokkrum hópi bekkjarkennara og meðal annars nefnt að erfiðir nemendur kæmu oft rólegri til baka úr hljóðfæratímunum. Í þessu samhengi er einnig mikilvægt að huga að félagslegri stöðu nemandans, en sú athygli sem hann dregur að sér með því að fara út úr tíma getur verið óþægileg fyrir óörugg börn og tveir nemenda kvörtuðu undan að hafa orðið fyrir aðkasti vegna þessa. Einnig kjósa sumir nemendur af ýmsum orsökum að halda tónlistar- og almenna náminu aðskildu og fara í hljóðfæratíma síðdegis, meðal annars vegna þess að þau eru regluföst og orðin vön því fyrirkomu- lagi eða vegna þess að þau búa nálægt skól- anum og finnst ekkert mál að fara sérferð síðdegis. Þórir og Sigurgrímur mæla með því að fyrirkomulagið verði eingöngu notað fyrir þá nemendur sem eru ánægðir með að vera teknir út úr tíma. Þeir sem eru það ekki mæti síðdegis. Fyrirkomulagið hentar best áhugasömum nemendum bæði í almennu námi og á tónlistarsviðinu, þeim sem hlakka til tónlistartímanna og líta á þá sem kærkomna tilbreytingu. Að sama skapi verður að huga að því hvort það reynist já- kvætt fyrir nemendur sem standa miðlungi vel í námi að gera kennsludaginn fjöl- breyttari með því að fara úr tíma í tónlist tvisvar í viku. Fyrirkomulagið gæti því einnig verið leið fyrir nemendur sem finna fyrir leiða eða áhugaleysi í námi. Varðandi annað atriðið, um fjölda barna sem tekin eru út úr bekk, kemur fram hjá fjórðungi bekkjarkennara að gæta þurfi hófs. Flestir nefndu tvö til þrjú börn sem hámark. „Það fyrirkomulag að taka börn út úr bekkjartímum til hljóðfæranáms á skóla- tíma,“ segir í skýrslunni, „á allt sitt undir góðri sátt við bekkjarkennara. Ljóst er... að hljóðfærakennarar og skólayfirvöld sem binda vonir við þetta fyrirkomulag ættu að forðast að ofnota það.“ Ein bekkjardeild skar sig reyndar úr hvað fjölda varðaði með átta nemendur í hljóðfæranámi í bekknum en þess má geta að sá bekkjarkennari var einn þeirra jákvæðustu gagnvart fyrir- komulaginu. Þriðja atriðið er spurningin um hlaup- andi eða fasta stundaskrá. Bekkjarkennarar skiptust í tvo álíka stóra hópa hvað þetta snerti og taldi annar hópurinn að hlaup- andi stundaskrá væri betri en hinn sagðist Ti l raun í h l jóðfæranámi 16 Ég gerði það samkomulag við hljóðfærakennarann að hann bankaði ekki heldur opnaði bara hljóðlega hurðina og gæfi nemandanum merki um að koma. Á þennan hátt truflaði þetta mig ekkert, ég hélt bara áfram að kenna og missti ekki athygli bekkjarins. Það truflar miklu meira þegar yfirkennarinn er að hringja út af alls kyns erindum með beiðnir um að gera hitt og þetta. Bekkjarkennari

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.