Skólavarðan - 15.10.2002, Síða 13

Skólavarðan - 15.10.2002, Síða 13
Skólaárið 2001-2002 fór fram tilraun í níu grunnskólum í Reykjavík þar sem könnuð voru þau áhrif sem fjarvera nem- enda úr bekkjartímum vegna hljóðfæra- náms hefur á námsárangur þeirra í kjarna- greinunum íslensku og stærðfræði. Að taka nemendur úr tímum í grunnskóla til tón- listarnáms er ein þeirra leiða sem unnt er að fara til að mæta breyttum aðstæðum. Tilraunin og niðurstöður hennar voru unnar af Þóri Þórissyni tónlistarkennslu- fræðingi og Sigurgrími Skúlasyni próffræð- ingi hjá Námsmatsstofnun með styrk frá Fræðsluráði Reykjavíkur. Þeir Þórir og Sigurgrímur hafa nú lokið við gerð skýrslu um tilraunina þar sem lagðar eru fram tillögur að frekari þróun þessa fyrirkomulags. „Víða erlendis,“ segir í skýrslunni, „tíðkast að hljóðfærakennsla fari fram sam- hliða kennslu og er nemendum þá veitt leyfi úr bekkjarkennslu á meðan þeir sækja hljóðfæratíma. Erlendar rannsóknir benda til að almennt komi þetta ekki niður á ár- angri nemenda í skólanámi.“ Á annað hundrað nemendur tóku þátt í tilrauninni og ríflega fimmtíu grunnskóla- kennarar og hljóðfærakennarar. Stofnanir sem tóku þátt voru Skólahljómsveit Aust- urbæjar, Skólahljómsveit Árbæjar og Breið- holts, Skólahljómsveit Grafarvogs, Skóla- hljómsveit Vesturbæjar og Tónskóli grunnskólanna í Grafarvogi. Níu grunn- skólar sem skólahljómsveitirnar tengjast samþykktu þátttöku og fór hljóðfæra- kennslan þar fram: Breiðholtsskóli, Engja- skóli, Foldaskóli, Grandaskóli, Hamraskóli, Húsaskóli, Laugarnesskóli, Melaskóli og Rimaskóli. Tilhögunin skaðar ekki námsárangur Til þess að kanna áhrif fjarveru vegna hljóðfæranámsins á annað nám barnanna voru lögð próf í íslensku og stærðfræði fyr- ir nemendur fyrir og eftir tilraunina. Nemendum var skipt í tilrauna- og saman- burðarhóp: Í tilraunahópi voru þeir nemendur sem viku úr kennslustund til hljóðfæranáms. Samanburðarhópurinn var myndaður með pörun. Bekkjarkennarar voru beðnir að tilnefna sambærilegan nem- anda í íslensku og stærðfræði af sama kyni og þann sem þeir höfðu samþykkt að viki úr kennslustund til hljóðfæranáms. Til- rauna- og samanburðarnemandi voru því alltaf úr sömu bekkjardeild. Nemendur fóru út úr bekkjartíma í 30 mínútur tvisvar í viku til að sækja hljóðfæra- tíma innan skólans. Tilraunin var keyrð eftir svokallaðri hlaupandi stundaskrá hljóðfæra- tímanna til að fjarvist lenti ekki oft á sömu skyldunámsgrein, til dæmis íslensku. Þannig var sá nemandi, sem var tekinn síðastur út úr kennslustund í fyrstu kennsluviku, tekinn fyrstur í annarri viku og svo koll af kolli. Þessi tilhögun er víðast hvar höfð þar sem hljóðfæranám fer fram á skólatíma. Í ljós kom að sú tilhögun að börn fái að fara úr bekkjartíma í hljóðfæratíma í 30 mínútur tvisvar í viku skaðar ekki námsár- angur þeirra í kjarnagreinunum íslensku og stærðfræði. Sú niðurstaða kemur kannski ekki verulega á óvart þegar um er að ræða tvisvar sinnum þrjátíu mínútna fjarveru á viku, en notuð voru tengslalíkön í tölfræði- greiningu á námsárangrinum. Tengslalíkön (structural equation modelling) eru svipuð þáttagreiningu að því leyti að samskonar jöfnur eru notaðar til að skýra tengsl breyta við duldar breytur og að duldu breytunum svipar að nokkru til þátta í þáttagreiningu. Tengslalíkönin hafa það hins vegar fram yfir þáttagreiningu að geta metið tengsl fylgibreyta og frumbreyta samtímis og að Ti l raun í h l jóðfæranámi 14 Blómlegt starf tónlistarskólanna und- anfarna áratugi hefur meðal annars þrifist í skjóli tvísetinna grunnskóla og stutts skóladags. Nú er svo komið, með einsetningu grunnskóla og leng- ingu skóladagsins, að svigrúm til hljóðfærakennslu minnkar verulega og enn erfiðara verður fyrir tónlistar- skóla að anna eftirspurn eftir hljóð- færanámi. Brýnt er að fundnar verði lausnir á þessum vanda, en hvað er til ráða? Endurskipulagning tónlistarfræðslunnar aðkallandi í framhaldi af einsetningu grunnskóla og lengingu skóladags Fyrirkomulag tónlistarfræðslu í borginni er að nokkru leyti barn liðins tíma... Hægt var að nýta morgnana til hljóðfærakennslu nemenda í síðdegisbekkjum og öfugt. Eftir einsetningu skóla, sem nú er komin til framkvæmda, þrengir mjög að þessu kerfi. Og enn á skóladagurinn eftir að lengjast. Þegar matarhlé hefur verið innleitt í öllum skólum má búast við að fyrstu nemendurnir geti ver- ið mættir í hljóðfæratíma klukkan þrjú síðdegis. Úr inngangi skýrslunnar

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.