Skólavarðan - 15.10.2002, Blaðsíða 19

Skólavarðan - 15.10.2002, Blaðsíða 19
Miðvikudaginn 11. september var haldið málþing Viku símenntunar sem bar yfir- skriftina Símenntun í atvinnulífinu, hver er staðan - hvert stefnir? Hrafnhildur Tómasdóttir, náms- og starfsráðgjafi, hélt þar fyrirlestur á vegum FNS sem bar heitið „Er náms- og starfs- ráðgjöf lykillinn að símenntun fyrir alla?“ Hún kom víða við í erindi sínu og sagði m.a. frá viðamikilli könnun sem Evrópu- sambandið, OECD, Cedefop og Alþjóða- bankinn stóðu fyrir á stöðu og stefnumót- un í náms- og starfsráðgjöf í mörgum löndum Evrópu, m.a. á Íslandi, í Asíu, Ástralíu og víðar. Verið er að vinna úr nið- urstöðum könnunarinnar og munu þær verða birtar á heimasíðu OECD. Til stendur að byggja á upplýsingum sem fram koma á ýmsum vettvangi, m.a. við gerð stórs gagna- banka um málaflokkinn og einnig verða niðurstöður nýttar í þá þágu að vekja stjórnvöld og almenning til vitundar um mikilvægi náms- og starfsráðgjafar í þróun símenntunar. Þá fjallaði Hrafnhildur um tilgang náms- og starfsráðgjafar og stöðuna á Íslandi og sagði meðal annars: „Í heimi sem gerist æ flóknari og þar sem streymi upplýsinga er mikið og breytingum háð, er erfiðara fyrir hvern og einn að finna viðeigandi upplýsingar og vinna úr þeim svo vel fari. Við þessar aðstæður er náms- og starfsráð- gjöf bæði sjálfsögð og hagkvæm þjónusta því hún miðar að því að auka vitund ein- staklingsins um eigin viðhorf, áhuga og hæfni þannig að hann geti sjálfur tekið ákvarðanir sem verða honum til heilla.“ Í fyrirlestri sínum kom Hrafnhildur jafn- framt inn á sérstakt áhugamál náms- og starfsráðgjafa á Íslandi sem snýst um að koma á fót aðgengilegri ráðgjöf fyrir allan almenning. Í nefndaráliti menntamálaráðu- neytis frá árinu 1998 um eflingu náms- og starfsráðgjafar er lagt til að komið verði á fót slíkri miðstöð náms- og starfsráðgjafar sem opin yrði almenningi og hefði það að markmiði að þjóna: „...ungu fólki á krossgöt- um í námi og starfi sem kýs að leita til utan- aðkomandi hlutlausra aðila, sem og fólki á öll- um aldri sem hefur hug á að skipta um starf og/eða afla sér framhalds- og/eða endur- menntunar.“ (Bls. 10) Verkefni slíkrar miðstöðvar væru: • ráðgjöf um náms- og starfsval • ráðgjöf um starfsþróun • upplýsingar um nám og störf • aðstoð við náms- og starfsleit • fagleg greining áhugasviða • mati á hæfni og ráðgjöf um uppbyggingu á hæfni Vika s ímenntunar 20 Vika símenntunar, sem bar yfirskrift- ina Símenntun í atvinnulífinu, var sett á Hofsósi sunnudaginn 8. september sl. og í kjölfarið sigldu ýmsir atburðir vítt og breitt um landið. Vikunni lauk á höfuðborgarsvæðinu með fræðslu- hátíð í Smáralind þar sem m.a. fræðsluaðilar kynntu námsframboð af ýmsu tagi. Félag náms- og starfsráð- gjafa (FNS) tók virkan þátt í Viku sí- menntunar en félagsmenn þess eru margir hverjir jafnframt félagsmenn í FG og FF. Náms- og starfsráðgjöf í Viku símenntunar Hrafnhildur Tómasdóttir náms- og starfsráðgjafi hélt erindi á málþingi Viku símenntunar þar sem hún kynnti meðal annars hugmynd FNS að ráðgjafarmiðstöð fyrir almenning, en í tengslum við fræðsluhátíð Vikunnar var vísi að slíkri miðstöð komið á.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.