Skólavarðan - 01.06.2011, Síða 8
8
Skólavarðan 2.tbl. 20115. þIng kí
Texti: Tryggvi Gunnarsson
Sjálfstæði og betri menntun kennara
leiðir af sér betra menntakerfi
Meðal þeirra sem héldu erindi á 5. þingi Kennarasambands Íslands var
Anders Rusk. Hann er framkvæmdastjóri Samtaka norrænna kennara-
sambanda, NLS. Hann á að baki langa setu í stjórn samtakanna, auk
þess sem hann gegndi formennsku í finnsku kennarasamtökunum. Rusk
þekkir því að eigin raun hvaða áhrif kreppa hefur á nútíma skandinavísk
menntakerfi, en Finnar gengu í gegnum sitt eigið „Icesave“ snemma á
tíunda áratuginum. Hann telur Íslendinga geta lært af Finnum.
Hið fullkomna fyrirkomulag
Eitt af meginmarkmiðum NLS er að skapa grundvöll þar sem kennarar
allra Norðurlandanna geta deilt með sér reynslu, bæði af því sem vel
hefur reynst og því sem ber að forðast.
„Ljóst er að Norðurlöndin eru svo lík að það sem gefur góða reynslu
í einu landi, gefur yfirleitt sömu niðurstöðu á hinum Norðurlöndunum,“
segir Rusk. „Samt eru löndin nógu ólík til að mismundandi hugmyndir
vakni í þeim, hugmyndir sem svo er hægt að dreifa og nota til að hvert
land geti bætt sitt eigið kerfi. Þetta er í raun hið fullkomna fyrirkomu-
lag. Ég er líka formaður Norðurlandaráðs Finnlands, og ég sé þar að
þetta á við ekki bara um menntakerfi heldur á flestum sviðum sam-
félagsins.“
Finnska leiðin
Árangur Finna í menntamálum hefur verið til eftirbreytni síðustu tvo
áratugi. Þær endurbætur sem þeir gerðu á kerfinu í kjölfar fjármála-
hruns finnska bankakerfisins í byrjun tíunda áratugarins hafa gefið góða
raun og eðlilega líta íslensk stjórnvöld og kennarar til Finnlands í leit
að svörum um hvert skuli haldið nú eftir okkar eigið hrun.
„Ég hef alltaf tekið skýrt fram, þegar ég tala um finnska mennta-
kerfið og PISA niðurstöður þess, að engin þjóð getur með góðu móti
tekið finnska menntakerfið og mótað sitt eigið kerfi eftir því í óbreyttri
mynd. Þetta er vegna þess að finnska kerfið er byggt upp með hliðsjón
af finnskri menningu, sögu, samfélagi og viðhorfum. Þú getur því
ekki tekið kerfið, farið heim og skellt því í gang,“ segir Rusk. „Eins
og ég minntist á áðan þá eru Norðurlöndin svo lík, sérstaklega Ísland
og Finnland. Bæði löndin eru útverðir Norðurlandanna landfræðilega,
þjóðirnar eru vinnusamar og saga okkar beggja er mörkuð átökum og
erfiðum tímum. Því tel ég gáfulegt að skoða hvað Íslendingar geta lært
af þeim breytingum sem við gerðum á okkar kerfi og yrðu þær lagaðar
að íslensku samfélagi gætu þær gefið góða raun.“
„Norðurlöndin eru svo lík að það
sem gefur góða reynslu í einu landi,
gefur yfirleitt sömu niðurstöðu á
hinum Norðurlöndunum“
Hafnarstræti 20, 101 Reykjavík / 540 1313 / ruta@allrahanda.is / www.allrahanda.is
Flottir bílar og frábær þjónusta!
www.allrahanda.is
Er bekkurinn að fara í bekkjarferð?
Er lúðrasveitin eða hljómsveitin að fara
í æfingaferð eða á mót?
Er íþróttafélagið að fara að keppa eða
í æfingabúðir?
Við komum hópnum á staðinn í fyrsta
flokks rútum og á hagstæðu verði.
Við bjóðum rútur í öllum stærðum
með rúmgóðum farangursrýmum fyrir
hljóðfæri, farangur og annað sem
nauðsynlegt er að koma á staðinn.
Einnig bjóðum við upp á áætlunarferðir
til og frá Keflavíkurflugvelli.
Kíktu við, hringdu eða skrifaðu okkur línu
og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.
Dagsferðir, Afþreying