Félagsbréf - 01.05.1971, Page 6
um fyrir þessar sakir. Þeir geta
hver um sig verið mikið meim-
ingartæki og haft, að minnsta
kosti í svip, miklu viðtækari
áhrif en nokkur ein bók, jafn-
vel þótt hún seljist í stórum
upplögum.
En vandi þeirra og ábyrgð, sem
stjórna þessum áhrifaríku
tækjum, eykst með ári hverju,
því að áhrif þessara fjölmiðla
segja æ meir til sin á öllum
sviðum mannlegra samskipta.
Einkum á sjónvarpið hér stór-
an hlut að máli.
Viða erlendis hefur verið tal-
ið, að með aukinni útbreiðslu
sjónvarps hafi bóklestur og
bókakaup vaxið að sama skapi.
Vel má það vera, en með ólík-
indum væri, ef slíkt gerðist á
íslandi.
Útvarpið íslenzka hefur frá
upphafi lagt á það ríka áherzlu
að kynna bókmenntir fyrir
þjóðinni og með ýmsum hætti
reynt að örva áhuga fólks á
íslenzkum bókum og beinlínis
leiðbeint því við kaup á bók-
um. Með líkum hætti hafa
blöðin stutt íslenzka bókaútgáfu
og gefið lesendum sínum gott
færi á að fylgjast með því, sem
er að gerast í bókmenntastarfi
þjóðarinnar.
En hjá sjónvarpinu íslenzka
horfir málið við með nokkuð
öðrum hætti. Þar virðist bókin
nánast sæta fullkominni bann-
færingu, því að með öllu er
óheimilt að sjónvarpið geti þess
í fréttum að bækur séu gefn-
ar út á Islandi. Stjórnendur
sjónvarpsins hafa sett þá furðu-
legu reglu að ekki megi í frétt-
um sjónvarpsins skýra frá nýj-
um eða gömlum bókum, sér i
lagi íslenzkum. Undantekning
hefur þó verið veitt, þegar síma-
skráin kemur út, enda mun
talið fullsannað, að hún sé ekki
bókmennta verk.
Á hinn bóginn tekur sjónvarp-
ið fegins hendi við bókaaug-
lýsingum, og telur meira að
segja ekki eftir sér að hækka
auglýsingaverðið einmitt þann
hluta úr árinu, þegar útgef-
endur auglýsa bækur sínar.
Með vissu má því fullyrða, að
íslenzka sjónvarpið stuðlar ekki
að auknum bóklestri eða bóka-
kaupum á fslandi. Ef til vill
telur útvarpsráð það ekki hlut-
verk sjónvarpsins. En því verð-
ur þó vart trúað. Að minnsta
kosti leyfa íslenzkir bókaút-
gefendur og bókaunnendur sér
að standa enn um hríð í þeirri
barnalegu trú, að hjá „mestu
bókmenntaþjóð heims“ hafi
valizt a. m. k. svo bókelskir
menn til stjórnar sjónvarpinu,
áhrifaríkasta fjölmiðli þjóðar-
innar, að þeir telji i framtíð-
inni litkomu fleiri bóka en is-
lenzku simaskrárinnar umtals-
verða í fréttum í sjónvarpinu.
B. Tr.