Félagsbréf - 01.05.1971, Síða 7
BÓKFELLSÚTGÁFAN
Á bókaskrá eru nú 69 bœkur í misstórum upplögum, en nokkr-
ar eru nú þegar á þrotum.
Eins og sagt er frá hér a<5 framan fá félagsmenn AB bœkurnar
keyptar fyrir 20% lægra verð en utanfélagsmenn.
Auk þess sem bœkurnar eru til sölu hver um sig, verða þœr
einnig seldar í flokkum og unnt að komast að hagstœðum
greiðsluskilmálum.
MERKIR ÍSLENDINGAR
Eldri og nýrri flokkur.
Ritsafn þetta kom út í tveimur flokkum, sem hvor um sig er í sex
stórum bindum. Þar eru alls leiddir fram á sjónarsviðið ekki færri
en 172 af þeim fyrirmönnum Islendinga að fornu og nýju, sem
dýpst spor hafa markað i sögu Islendinga, stjórnmálum, atvinnulífi
og bókmenntum.
Af eldra flokki Merkra Islendinga, sem Þorkell heitinn Jóhannes-
son hjó undir prentun, er II. bindi þrotið og einungis örfá eintök
eftir af hinum fimm. Af yngri flokknum, sem Jón Guðnason, fyrrv.
skjalavörður, sá um, eru öll bindin, I—VI, enn fáanleg. Þetta veg-
lega ritsafn er hverjum þjóðhollum manni hin mesta náma fróð-
leiks og skemmtunar. Flestir Islendingar munu og sennilega eiga
til skyldleika að telja við einn eða fleiri af þeim mönnum, sem
þar er fjallað um. Þá eru höfundar ævisagnanna margir hverjir
i hópi ritfærustu Islendinga fyrr og síðar.
MfeRKIR
ISLSNDINGAR
NfR FLOKKUR
___________________
5