Félagsbréf - 01.05.1971, Blaðsíða 9
ENDURMINNINGAR THOR JENSENS
I. REYNSLUÁR
II. FRAMKVÆMDAÁR
Þetta er sjálfsævisaga eins stórbrotnasta hugsjónamanns og braut-
ryðjanda, sem hér hefur starfað, skráð í tveimur bindum af Valtý
Stefánssyni. í bókum þessum gefst lesandanum ekki aðeins kostur á
að kynnast Thor Jensen af náinni samfylgd frá uppvaxtarárum til
ævikvölds, heldur lifir hann með honum aldarfar og atvinnuþróun á
einu mesta breytingartímabili i sögu þjóðarinnar. En áhrifamest
og minnisstæðust verður þó þessi frásaga öll sem einstæð persónu-
leg heimild um óvenjulegan mann, sem allslaus og einn síns liðs
sezt að í gjörsnauðu landi og kemst þar fyrir óbilandi dugnað, fram-
sýni og stórhug til meginforustu um þær efnalegu framfarir, er
lögðu grundvöll nútímaþjóðfélags á íslandi.
MEÐ GÓÐU FÓLKI
Á FULLRI FERÐ
VIÐ YL MINNINGANNA
Sjálfsævisaga í þremur bindum. Höfundurinn er kaupmannssonur,
af hinni kunnu Clausens-ætt, sem lengi rak verzlun á Islandi og
tengdist landi og þjóð nánar en flestir hinna erlendu kaupmanna,
sem hingað komu, en í móðurætt á hann að telja til þekktra fræði-
manna, presta og skálda. I ævisögunni segir hann frá uppvexti
sinum á merku menningarheimili í Stykkishólmi og frá lífinu í
Reykjavik upp úr aldamótunum, heimilishaldi, bæjarbrag og sam-
kvæmisháttum, kynnir lesendunum fjöldann allan af sérkennilegu
fólki, auk þess sem brugðið er upp margri skemmtilegri svipmynd
af ýmsum leiðandi mönnum í viðskiptalífi og stjórnmálmn, enda
kom höfundurinn þar mn skeið talsvert við sögu. Þá er Oscar
Clausen manna fróðastur um ýmis dulræn efni og miðlar óspart
af reynslu sinni á því sviði.
Thor Jensen
Oscar Clausen
7