Gestur - 15.09.1933, Side 13

Gestur - 15.09.1933, Side 13
GESTUR 11 1,1. »1 Böinu 8vipan tók alda dyraumgerðina og sleit okkur frá bátnum. Ég heyrði formanninn skipa fyrir, og möglandi tóku skipsmenn til ára, og þeir hurfu okkur fljótt sýnum. — Fullur örvæntingar yfir því að áætlun mín misheppnað- ist, starði ég í myrkrið á eftir bátnum, og hugsunarlaust dró ég ungu stúlkuna, sem mér heppnaðist ekki að bjarga, fast- ara að mér. Pá hljómaði aftur rödd stúlkunnar, þessi ákveðna, hljómmikla rödd, sem einu sinni hafði gjört það að verkum að ég gleymdi sjálfum mér, »Þér þurfið ekki að halda mér svona fastri«. sagði hún, og ég held í raun og veru að hún hafi brosað. — »Ég hleyp ekki frá yður. Við ættum heldur að setjast niður, annars fljótum við fyr eða síðar í burtu«. Ég hlýddi henni og fór svo að hugsa um kringumstæð- urnar. Pað var í raun og veru vonlaust. Dyraumbúningurinn var of lítill til að halda tveimur uppi. öldurnar gengu hver af annari yfir hann, og ógnuðu okkur með því að færa okk- ur í djúpið með sér. Svo tók ég beltið af mér og batt hönd hennar með því við járnhringinn. Ég lét aftur augun og ætlaði að renna mér alveg í sjóinn, því öðru hvoru okkar varð að offra, og hluturinn hlaut að falla á mig, sem hvorki átti foreldra né unnustu. En um leið og ég var að renna mér út, greip hún fast í kragann á yfirfrakka mínum, þessi röska, litla kona. »Varið þér yður!« hrópaði hún. Ég heyrði að hún var reið. »Hvað ætlið þér eiginlega að gera? Ég get sagt yður, að ef þér farist hér, vil ég fylgja yður. Ég get ekki hugsað til þess að fljóta hér eina stund einsöniul í myrkrinu«. Hún leysti af sér belti mitt og fékk mér það, og ég sá, að augu hennar voru full af tárum. Ég batt mig sjálfan fastan og hélt henni í fangi mínu, um leið og ég reyndi að hlífa henni fyrir ölduganginum. Alt í einu lagði hún hendurnar um háls mér og hallaði höfði sínu að vanga mér. 1 því hevrði ég ólgandi gný í

x

Gestur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gestur
https://timarit.is/publication/1192

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.