Víkurfréttir - 04.12.1980, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 4. desember 1980 7
VÍKUR-fréttir
Trésmiðja Einars Gunnars-
sonar flytur í nýtt húnæði
Eins og kunnugt er hefur Einar
Gunnarsson selt Fjölbrautaskól-
anum verkstæðishús sitt að Iða-
völlum 1 í Keflavík. Einar byggði
síðan annað verkstæöishús að
Iðavöllum 10a, sem byrjaö var á í
ágúst sl„ og flutti í þaö um miðj-
an nóvember.
Einar byrjaði með fyrirtæki sitt
árið 1961 i 120 ferm. húsnæöi að
Hátúni 19, þar sem nú er Ragn-
arsbakari. 1972 flutti hann í 700
ferm. húsnæði að löavöllum 1,
uns flutti að Iðavöllum 10a, sem
eru 480 ferm. Einar kvaðst hafa
orðið var við að fólk héldi að
hann væri hættur, þar sem hann
seldi Iðavelli 1, en svo væri ekki,
heldur héldi hann áfram af full-
um krafti eins og áður.
Trésmiðja Einars Gunnars-
sonar er þekkt fyrir smekkvísi og
vandaða vinnu við smíði alls
konar innréttinga og uppsetn-
ingu þeirra, og mun verkstæðið
halda áfram á þeirri braut.
Úr vinnusal Trésmiðju Einars Gunnarssonar
Keflavíkurbær hefur brugðist skjótt við göngustígamálum íbúanna í
Eyjabyggð. Hafa veriö lagðir breiöir og vandaðir gangstígar á milli
Garðahverfis og Eyjabyggöar. Er fyrirhugað að setja olíumöl á þá við
fyrsta tækifæri. Er þetta framtak öllum til sóma sem að því stóðu.
Sjúkrahús Kefla-
víkurlæknishéraðs
Frá og með 4. desembereru heimsóknartímarað-
eins sem hér segir:
Mánudaga - föstudaga kl. 18.30 - 1930
Laugardaga og sunnudagakl. 15-16og 19-19.30.
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs
DRAUMALAND
Hafnargötu 48 - Keflavík
AUGLÝSIR:
Erum með hin vinsælu amerísku
teygjulök og koddaver, baðhengi, handklæði,
jóladúka og fleira.
Einnig höfum við fengið meira úrval af
snyrtivörum frá Body Shop.
Gjörið svo vel og lítið inn.
Loftpressa
Tek að mér
múrbrot,
fleygun
og borun fyrir
sprengingar.
Geri föst
verðtilboð.
Sigurjón Matthíasson
Brekkustíg 31 c - Y-Njarðvík
Suðurnesjabúar
Tökum að okkur alla innrétt-
ingasmíði eftir ykkar ósk.
ÖNNUMST:
alls konar
bygginga-
framkvæmdir
og viðgerðir.
SELJUM:
Saum, kítti,
skrúfur, gluggalista
o.m.fl.
Gerum föst tilboð ef óskað er.
Húsabygging hf. - Trésmiðja
Garði - Sími 7140
SMÍÐUM M.A.:
Útihurðir, svalahurðir,
bílskúrshurðir,
glugga,
lausafög í glugga,
sólbekki.
SÍMI 3987